Dagur - 12.12.1983, Blaðsíða 6
6 - DAGUR -12. desember 1983
12. desember 1983 - DAGUR - 7
Norðurlandsriðill 2. deildar í blakinu:
KA náði að
jafna metin
- með 3:1 sigri gegn keppinautunum í Reynivík
vann
Fram
IJð UIVIFL sem Þór sigraði
létt í síðustu viku náði að
hleypa spennu í keppnina í
l. deildinni í körfuknattleik
með því að sigra efsta lið
deildarinnar, Fram, um
helgina. Leikið var á Sel-
fossi og UMFL sigraði með
60 stigum gegn 54.
Þetta voru óvænt úrslit,
en sýna að Framliðið er ekki
ósigrandi eins og reyndar
hafði komið i Ijós er Þór
vann Fram létt á Akureyri á
dögunum.
Fram hefur nú tapað 4
stigum en Þór og ÍS sem um
hclgina vann UMFG hafa
tapað 6 stigum. ÍS og Fram
eiga að leika á fimmtudags-
kvöld og ef IS sigrar í þeim
leik jafnast staðan í deild-
inni enn. En hvað sem því
líður eru Þórsarar vel inn í
myndinni um sigurinn í
deildinni og sæti í Úrvals-
dcildinni að ári eftir fimm
slgra í röð að undanförnu.
Með 3:1 sigri sínum yfir Reyni-
vík um helgina náði KA að
jafna metin á toppi Norður-
landsriðils 2. deildar karla, en
Reynivík hafði unnið fyrsta
leik liðanna af fjórum í
keppninni. Liðin eru því jöfn
að stigum, en einum leik er
ólokið fyrir jól, viðureign SA
og KA, sem fram fer í dag kl.
17 I Höllinni.
Fyrsta hrinan í leik KA og
Reynivíkur var dauf og liðsmenn
Reynivíkur náðu ekki saman. KA.
vann auðveldlega 15:2 en strax í
næstu hrinu komu góðir kaflar
hjá Reynivíkurmönnum. Sú
hrina var mjög jöfn og liðin yfir
til skiptis áður en Reynivík jafn-
aði metin með því að sigra 16:14.
í þriðju hrinunni var mikil bar-
átta. Þá meiddist „gamla brýnið“
Halldór Jónsson hjá Reynivík og
varð að yfirgefa völlinn og KA
náði að tryggja sér sigur 15:11 og
innsigla síðan sigurinn í 4. hrin-
unni með 15:7.
Þetta var baráttuleikur en ekki
sérlega vei leikinn þegar á heild-
ina er litið. Það sem virðist há
Reynivíkurliðinu er að þar er
liðsheildin ekki eins sterk og hjá
KA, sterkir einstaklingar halda
liðinu á floti en veikir hlekkir eru
í liðinu sem draga það niður.
KA-liðið er mun jafnara og það
hefur mikið að segja í blakinu.
Gunnar Straumland átti mjög
góðan dag hjá KA og sömuleiðis
Sigvaldi Jónsson sem er sterkur
uppspilari en annars var liðið
jafnt. Hjá Reynivík eru þeir Stef-
án Jóhannesson, Hjalti Halldórs-
son og Björn Víkingsson bestu
menn en aðrir standa þeim nokk-
uð að baki.
Sem fyrr sagði eru liðin jöfn í
riðlinum, hafa tapað einum leik
hvort og stigatafla þeirra er einn-
ig jöfn, bæði hafa tapað tveimur
hrinum. En bæði liðin munu
komast í úrslitakeppnina sem
haldin verður í vor og þá verður
úr því skorið hvaða lið komast
upp í 1. deild.
Þróttur
kom ekki
Kvennalið Þróttar í blaki átti
að koma norður um helgina og
leika tvo leiki, gegn Völsungi
og KA í deildinni.
Ur leik KA og Reynivíkur, Gunnar Straumland smassar og hávöm Reynivíkur kom engum vömum við.
Mynd: KGA.
Þór gegn UMFG
Þróttarar báðu um frestun á
þessum leikjum vegna veikinda
og meiðsla leikmanna sinna og
var sá frestur veittur. Munu
Þróttarar ekki hafa átt í lið og
því ekki um annað að ræða en
veita þennan frest. Á meðal
þeirra sem eiga við meiðsli að
stríða í liði Þróttar er ein albesta
blakkona landsins, Hulda Laxdal
og er ekki talið að hún verði
meira með í vetur.
„Hermanns-
lyfta“ í
Hlíðar-
fjall?
Formenn íþróttabandalags
Akureyrar, Knattspyrnufélags
Akureyrar, íþróttafélagsins
Þórs og Skíðaráðs Akureyrar
hafa ritað bæjarstjórn Akur-
eyrar bréf þar sem þeir skora
á bæjarstjórnina að setja upp
nýja lyftu í Hlíðarfjalli til
minningar um Hermann Stef-
ánsson.
í bréfi sínu til bæjarstjórnar-
innar segja formennirnir m.a.:
„Lengi hefur staðið til að bæta
aðstöðu skíðafólks í Hlíðarfjalli
með nýrri lyftu. Nú þegar Her-
mann Stefánsson er allur, væri
við hæfi að minnast hins fallna
forystumanns með reisn og setja
upp nýja lyftu, Hermannslyftu,
en óeigingjarnt brautryðjanda-
starf hans í Hlíðarfjalli gleymist
seint.
Síðasti leikurinn í körfuknatt-
leik sem háður verður á Akur-
eyri, fyrir jólin verður viður-
eign Þórs og UMFG sem fram
fer í íþróttahöllinni kl. 14 á
laugardag.
Þetta er önnur viðureign lið-
anna af fjórum í Islandsmótinu.
Sú fyrsta var í upphafi mótsins og
þá sigraði UMFG í heimaleik
með 8 stiga mun eftir harða bar-
áttu. Þórsarar hafa verið í mikilli
framför síðan og lagt öll hin liðin
í deildinni að velli og hafa fullan
hug á því að bæta UMFG í þann
hóp á laugardag.
Lið UMFG er hins vegar sýnd
veiði en ekki gefin og er skemmst
að minnast sigurs liðsins yfir ÍS á
dögunum og naums ósigurs gegn
Fram. Það getur því allt gerst á
laugardaginn.
Við leyfum okkur því að
skora á bæjarstjóm Akureyrar að
bregðast vel við og leysa þetta
mál, en áhugamenn um skíða-
íþróttina heita því samtímis ,að
láta ekki sitt eftir liggja svo
Hermannslyftan verði að veru-
leika“.
Jóhannes Bjarnason skorar annað marka sinna gegn Þrótti af línunni. mynd: gk-.
Úrslitin 19:19 - Slæmi kaflinn og fleira dapurt í seinni hálfleik
nægði Þrótti til að vinna upp forskot KA og komast yfir
„Mér fannst þetta slakur leikur af
beggja hálfu og við komumst að
mínu mati aldrei almennilega í
gang,“ sagði Þorleifur Ananías-
son fyrirliði KA eftir 19:19 jafn-
tefli gegn Þrótti í 1. deildinni á
föstudagskvöld. „Við vorum yfir
þegar komið var fram í síðari hálf-
leik eins og venjulega, en undir
lokin máttum við þakka fyrir jafn-
teflið“ bætti Þorleifur við.
Já, Þróttarar fengu gullið tækifæri
til að gera út um leikinn á síðustu
sek. hans. Þá fengu þeir aukakast og
Páll Ólafsson komst einn inn af lín-
unni fyrir miðju marki. En landsliðs-
manninum brást bogalistin, skot
hans fór í þverslá og aftur fyrir mark-
ið og þar sluppu KA-menn með
skrekkinn.
Þróttararnir fengu óskabyrjun í
leiknum, komust í 4:0 og virtust ætla
að eiga auðveldan dag. En það
breyttist heldur betur þegar Gauti í
marki KA fór að verja eins og ber-
serkur. Hann sýndi ævintýralega
markvörslu í fyrri hálfleiknum og
varði 10 skot og tvö vítaskot. Það
munar um minna og félagar hans
náðu að fylgja markvörslu hans eftir.
KA minnkaði muninn hægt og bít-
andi, jafnaði síðan 6:6 og komst í
fyrsta skipti yfir á 27. mínútu með
marki Sigurðar Sigurðssonar 8:7 og
leiddi í hálfleik 9:8.
í síðari hálfleik byrjaði KA vel.
Sigurður og Erlingur Kristjánsson
skoruðu tvö fyrstu mörkin og staðan
11:8. Þróttur minnkaði muninn í
12:11 en tvö góð mörk hins unga
Jóns Kristjánssonar bættu stöðu KA
þannig að staðan var 14:12 fyrir KA
og 8 mínútur af síðari hálfleik. En
þá kom vendipunkturinn og hjálpað-
ist margt að. Óðagot KA-manna í
sókninni, hroðaleg mistök dómar-
anna og að mínu mati var á þessum
kafla skipt of ört inn á hjá KA, þrír
heitir menn teknir út af á sama tíma.
iÞróttur jafnaði og komst yfir 15:14.
Síðan var jafnt á öllum tölum upp í
18:18 og 5 mínútur eftir.
Nú gengu sóknir liðanna á víxl, en
Þróttur komst yfir 19:18 er rúm mín-
úta var eftir með marki Páls Björg-
vinssonar. Þegar 50 sek. voru til
leiksloka fiskaði Sæmundur Sigfús-
son vítakast og Pétur Bjarnason
skoraði af öryggi. Það sem eftir var
leiksins voru Þróttarar með boltann
og Páll Ólafsson fékk tækifærið góða
af línunni sem fyrr sagði til að
tryggja Þrótti sigurinn.
Ég held að þessi slæmi kafli sem
kemur alltaf í síðari hálfleik hjá KA
sé farinn að leggjast þungt á liðið og
það var eins og hrein uppgjöf gripi
um sig á kaflanum í síðari hálfleik
núna. Dómararnir lögðu á þeim
kafla sitt af mörkum, dæmdu ruðn-
ing og tafir á KA meðan þeir reyndu
að halda boltanum einum færri en
létu sams konar leik Þróttara undir
sömu kringumstæðum óátalinn.
Þetta vó þungt á meðan Þróttur var
að vinna upp forskotið.
í heildina var þetta fremur slakur
léikur og .mikið um mistök undir
þeirri spennu sem var í leiknum.
Gauti í marki KA var besti maður
vallarins og slæmt að svo góð mark-
varsla nægi ekki til áð tryggja sigur.
Þá kom Pétur Bjarnason mjög á
óvart og var geysidrjúgur er á leikinn
leið. Annars var KA-liðið jafnt en
getur betur. Þróttarar voru ekkert
sérstakir en reynsla Pálanna tveggja
þar var dýrmæt í síðari hálfleiknum.
Mörk KA:
Jón Kristjánsson og Pétur Bjarna-
son 4 hvor, Magnús Birgisson, Er-
lingur Kristjánsson, Jóhann Einars-
son, Sigurður Sigurðsson og Jóhann-
es Bjarnason 2 hver og Þorleifur An-
aníasson 1.
Markahæstir Þróttara voru Páll
Ólafsson með 6 og Páll Björgvinsson
með 4. - Dómarar Þorgeir Pálsson
og Guðmundur Kolbeinsson. Þeir
voru slakir dómarar og sérstaklega á
kafla í síðari hálfleik, alls engir
heimadómarar, þvert á móti.
„Ekki nóg
fyrir okkur
að mæta
í leikina"
„Ég verð því miður að segja
það að félögin hér fyrir norðan
hafa ekki sinnt þessum málum
nægilega vel og það vantar
orðið dómara tilfinnanlega því
það hafa komið fáir nýir dóm-
arar inn á undanförnum
árum“, segir Þóroddur Hjalta-
Iín knattspyrnudómari, en
hann er annar tveggja dómara
á Norðurlandi sem dæmdu í 1.
deild sl. keppnistímabil og
mun hann ásamt Kjartani
Tómassyni dæma í 1. deild
næsta sumar. „Mér sýnist
hreinlega að það stefni í óefni
í þessum málum ef það verður
ekki gert eitthvað til úrbóta
fyrr en seinna“, bætti Þórodd-
ur við.
Á ársþingi Knattspyrnusam-
bandsins á Húsavík um síðustu
helgi komu dómaramálin til um-
ræðu. Ákveðið var að greitt yrði
ákveðið gjald til Knattspyrnu-
dómarafélags íslands ef íslenskir
dómarar dæmdu í leikjum við er-
lend lið. Þá kom fram tillaga um
að þingið heimilaði stjórn Knatt-
spyrnusambandsins að gera
bráðabirgðasamkomulag við
Knattspyrnudómarasambandið
um velferð og aðbúnað dómara,
en sú tillaga var felld. Við spurð-
um Þórodd hvernig væri búið að
dómurum hér norðanlands.
„Það er auðvitað ýmislegt að
sem okkur finnst að betur mætti
fara. Hvað varðar okkur hérna
fyrir norðan má nefna að við
þurfum að kaupa sjálfir búninga,
skó og annað sem til þarf, en fyrir
sunnan sjá félögin sem menn
dæma fyrir um þessi mál fyrir
sína dómara og gera þá út. Að
þessu leyti sitjum við ekki við
sama borð og starfsbræður okkar
fyrir sunnan".
- Og fáið þið ekki færri verk-
efni en ella vegna þess að þið
eruð hér fyrir norðan?
„Jú, og það sést best í skýrslu
Knattspyrnudómarasambands-
ins. Ég var t.d. með 13 verkefni
á s.l. sumri og fékk ekkert auka-
verkefni. Á sama tíma eru menn
fyrir sunnan með allt upp í 25
verkefni og þar af með 6 auka-
verkefni. Ég sendi aldrei afboð
og er einn af þremur mönnum
sem gerði það aldrei, en ég
fékk ekkert aukastarf samt sem
áður.“
Þóroddur að störfum ó knattspyrnu-
vellinum.
Þess má geta að Þóroddur var
í haust línuvörður í Evrópuleik
danska liðsins OB og Liverpool
og fékk þar sitt fyrsta verkefni á
erlendri grund. „Þetta var mikil
reynsla, enda 30 þúsund áhorf-
endur og mikil stemmning.
- Og að lokum aðeins um
gagnrýnina sem dómarar fá oft
eftir leiki?
„Þetta hefur verið óskaplega
meinlaust upp á síðkastið. Mér
fannst gagnrýnin vera miklu væg-
ari s.l. sumar en oft áður. Við
höfurn e.t.v. verið betri en áður!“
- Hvernig undirbýrð þú þig
fyrir keppnistímabilið?
„Ég held mér alltaf við, hleyp
minnst 2 í viku úti og svo les ég
lögin við og við, a.m.k. tvisvar f
mánuði. Það er ekki nóg fyrir
okkur að mæta í leikina, við þurf-
um að halda okkur við líkamlega
og einnig að kunna lögin“.
Skotkeppni hjá lögreglumönnum:
Daníel
flest
Lögreglumenn á Akureyri eru
viö öllu búnir á þessum síðustu
og verstu tímum. Þeir æfa
nefnilega skotfimi meö
skammbyssum einu sinni í viku
hverri og á dögunum héldu
þeir mót og reyndu hæfni sína.
Það var rannsóknarlögreglu-
maðurinn Daníel Snorrason sem
hlaut
stig
skaut best allra í þeirri keppni og
hlaut hann 84 stig. í öðru sæti
kom Vörður Traustason með 82
stig og Felix Jósafatsson varð
þriðji með 79 stig.
Keppt var um vegleg verðlaun
sem Gísli Ólafsson gaf og er önn-
ur keppni áformuð innan
skamms.