Dagur - 12.12.1983, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
66. árgangur
Akureyri, mánudagur 12 . desember 1983
140. tölublað
„Jóla glaðningur“
Verðstríð gosdrykkjaframleið-
endanna, Vífilfells og Sana,
heldur áfram af fullum krafti.
í síðustu viku sögðum við frá
„jólaglaðningi“ Vífilfells til
Norðlendinga, í formi 30-34%
lækkunar á Coca cola, Fanta,
Tab, Fresca og Sprite í líters
umbúðum. Nú hefur Sana
boðið enn betur og Iækkað
verð á sínum gosdrykkjum í Iít-
ers umbúðum niður fyrir það
sem Vífilféll býður.
„Pegar kóktilboðið kom fram
ákváðum við að vera ekkert að
tvínóna við þetta og lækkuðum
verð á okkar gosdrykkjum í líters
umbúðum í 29.20, en kók-verðið
er 32.40. Okkar gosdrykkir eru
því enn ódýrari í verslunum á
Akureyri,“ sagði Ragnar Birgis-
son hjá Sana, í samtali við Dag.
- Hvernig er þetta hægt?
„Við verðum að mæta sam-
keppninni og hér er um jólatil-
boð að ræða. Við ætlum ekkert
að hleypa kókurunum upp. Við
bjóðum 20% afslátt frá ver-
smiðjuverði á þeim tíma sem sal-
an er mikil. Kókararnir bjóða
10% afslátt frá verksmiðjuverði
og gefa flutningskostnaðinn til
Akureyrar að auki. Þaö væri nær
að spyrja þá, hvernig það er
hægt,“ sagði Ragnar Birgisson.
- En ætla „kókarar" að bjóða
betur?
„Reyndar ekki, því okkar hug-
mynd hefur aldrei verið sú, að
fara út í verðstríð,“ svaraði Jó-
hann Magnússon, skrifstofustjóri
hjá Vífilfelli. „Það er ekki stætt
á því með neinu skynsamlegu
móti, að fara lægra með verðið,
enda er hér fyrst og fremst um til-
raun að ræða, sem stendur fram
að áramótum, til að kanna hver
viðbrögð neytenda verða við
lægra verði vörunnar.“
- Er hægt að standa undir
10% afslætti og gefa flutnings-
kostnað að auki?
„Nei, ekki til lengdar. Það hafa
hins vegar lengi verið uppi þær
hugmyndir hjá ölgerðunum,
hvort skynsamlegt væri að taka
upp landsverð á okkar fram-
leiðslu og hugsanlegt er að niður-
stöður desembersölunnar gefi
einhver svör í því sambandi,“
sagði Jóhann Magnússon.
Samkvæmt upplýsingum Jó-
hanns er mesti verðmunur á gos-
drykkjum nær 40%. Hæst er
verðið í Norður-Þingeyjarsýslu
en lægst á framleiðslustað.
Verðkönnun Neytendafélagsins:
Sama verð í Hrísa-
lundi og Hagkaupum
1 verðkönnun sem Neytenda-
félag Akureyrar og nágrennis
gerði í nokkrum verslunum á
Akureyri 1. desember sl. kem-
ur fram að vöruverð í Vöru-
markaði KEA í Hrísalundi og
Hagkaupum er því sem næst
það sama. Samanlagt verð á 30
vorum í Hagkaupum var
1.472,70 en í Hrísalundi
1.471,85. Munurínn er ekki
nema 85 aurar eða 0,06%.
%
Af 30 sambærilegum vöruteg-
undum voru 14 ódýrastar í Hrísa-
lundi, þar af 2 á sama verði í
KEA Sunnuhlíð, 10 tegundir
voru ódýrastar í Hagkaupum, 2 í
Garðshorni, 2 í Búrinu og 2 í
Kaupfélaginu á Svalbarðseyri.
Þegar bornar eru saman niður-
stöðurnar varðandi 18 vöruteg-
undjr sem sambærilegar voru í 8
verslunum kemur í'ljós við hlut-
fallslegan samanburð, þegar
meðalverð er sett 100, að þessar
vörur kostuðu 89,8 í Hagkaup-
um, 88,5 í Hrísalundi, 104,4 í
Búrinu, 104,5 í KEA Brekku-
götu, 112,3 í Hafnarbúðinni, 99,9
í KEA Sunnuhlíð og 100,5 í
Kaupfélaginu á ' Svalbarðseyri.
Nánari upplýsingar eru í frétta-
bréfi NAN.
—6 verktakar á Akur-
eyri sameinast
um stærri verkefni
„Við viljum vera viðbúnir því
að hér verði farið út í stórar
framkvæmdir á næstunni; þess
vegna stofnuðum við þetta
verktakafyrírtæki, til að reyna
að fyrirbyggja einokun sunn-
lenskra verktaka á stórverk-
efnum á Norðuriandi,“ sagði
Hörður Tuliníus, stjórnarfor-
maður Eyfirskra verktaka hf.,
í samtali við Dag.
Eyfirskir verktakar hf. er hluta-
félag 6 fyrirtækja; Norðurverks
hf., Aðalgeirs og Viðars hf., Hí-
býlis hf., Barðs sf., Malar og
sands hf. og Slippstöðvarinnar
hf. Félagið var stofnað 12. mars
sl.
Tilgangur félagsins er að efla
samstarf og þátttöku hluthafa í
meiri háttar byggingarfram-
kvæmdum og verktakastarfsemi.
Ekki er stefnt að fjárhagslegum
hagnaði félagsins af framkvæmd-
um hluthafa. Tilgangi sínum
hyggst félagið ná með því að ann-
ast skipulagða upplýsingaöflun
um fyrirhugaðar framkvæmdir,
sem gætu hentað tveimur eða
fleiri aðilum innan samsteypunn-
ar í sameiningu, jafnframt því
sem félagið mun sjá um sameig-
inlega tilboðsgerð í slík verkefni.
Þá mun félagið hafa milligöngu
um að fyrirtæki innan þess leigi
hvert öðru afnot af tækjum og
mannskap í meiri háttar verk,
eftir því sem hagkvæmt er talið
og unnt er á hverjum tíma.
„Hvað viltu svo fá í skóinn, góði?“ sagði jólasveinninn. Sá stutti var soldið á báðum áttum, enda ekki á hverjum degi
að maður er ávarpaður af sjálfum jólasveininum. Mynd: KGA.