Dagur - 21.12.1983, Blaðsíða 2

Dagur - 21.12.1983, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 21. desembér 1983 Jólin nálgast óðum enn . Fyrstu vísurnar eru eftir Guöna Þorsteinsson. lólin nálgast óðum enn. Ýmsu þarf að sinna. Mundu að guð og góðir menn gæta verka þinna. Ein er til þín ósk mér frá, ég því bið og segi: Misstu aldrei eina tá út af réttum vegi. Minni létta myndi þrá, meina ég það af sanni ef éggæti gul! í tá gefið hverjum manni. Næsta vísa er eftir Jóhannes Engimýri: Menn sem halla aðra á ei mér falla í sinni, Peir ei galla sína sjá suma varla minni. Á efri árum kvað Jóhannes til séra Sigurðar á Möðruvöllum: Lífs er svalli Ifð ég frá laus við alla mæðu yfir kalli þú munt þá þylja snjalla ræðu. Pá koma vísur eftir Arnór Sig- mundsson. Vermi guðleg sælusól sérhvert mannlegt hjarta. Lýsi um jól hvert jarðarból jólastjarnan bjarta. Vanta má ei vitsins þátt né viljann göfga, sanna. En mestu varðar ef þú átt ást til guðs og manna. Sölna og falla sumarblóm, samt er helst í minni glóbjart vor á grænum skóm og góðra vina kynni. Sá er prýðir land og lýð laun um síðir hlýtur. Allra bíður eilífð víð ævitíð er þrýtur. Iðunn Ágústsdóttir kveður: Allirgeta ræktað rós, rétt að manni ípínu. Allirgeta látið Ijós loga í hjarta sínu. Allirgeta hönd í hönd haldið lífs á vegi. Vináttunnar bönd við bönd bundið á hverjum degi. Sigtryggur Símonarson á næstu vísurnar og nefnir þær vorþrá: Vetrarbylur vekur þor, þó vart sé ylur hans í slóð. Vorið hylur vetrarspor, vonin þylur lífsins óð. Himins blá menn horfa til, hugur dáir lífsins rós. Sumar stráir sólaryl. Sálarþrá er: Meira ljós. Benedikt Ingimarsson yrkir í svipuðum dúr: Fjalladrottning móðir mín, mér er sama um élin. Ég síðar veit að sólin skín og signir jarðarhvelin. Páll Helgason kveður og er vonglaður sem hinir, þó syrti að um skeið: Þó að hríðin hrelli lýð, herði kvíða veður stríð, mun um síðir sólin blíð svellin þíða úr fjallahlíð. Gleðileg jól. Jón Bjarnason. Snjólaug Bragadóttir. Söguleg skáldsaga um Skúla Skúlason hinn oddhaga. Höfundur: Valgarður Stefánsson. í fylgd söguhetjunnar Skúla hins oddhaga er lesand- inn leiddur inn á nýtt sögusvið sem er Akureyri um aldamótin. Úr ritdómum: Höfundur lifir sig vel inn í gamla tímann ekki aðeins húsaskipan, klæðnað, viðurværi og þar fram eftir götun- um, heldur líka andblæinn - þetta sem vandasamast er að skynja og lýsa: Fínu blæbrigðin í hrynjandi lífsins. Erlendur Jónsson. Bók þessi á skilið að vera lesin. Kristján frá Djúpalæk. Skjaldborg. Mamma, fær Grýla jólaskó? Þá er jólaskriðan að skella á manni með öllum sínum flóðum, bókaflóði, kortaflóði, kökuflóði og stöðugum straumi fólks að dyrunum, sem endilega vill selja manni eitthvað. Fyrstu merki jólanna í ár voru áreiðanlega aðventuljósin sem skyndilega birtust í glugga hverr- ar íbúðar síðasta sunnudag í nóv- ember. Fyrstu dagana á eftir var það helsta skemmtun barnanna að bregða sér í gönguferð eftir að dimma tók til að telja „upp-og- niður-ljósin“ sem þau eru gjarn- an kölluð á þessu heimili og mikið er smáfólkið hneykslað, ef einhver hefur gleymt að kveikja á dýrðinni í glugganum sínum. Álveg er ég handviss um að enginn tími ársins er eins fljótur að líða í augum húsmæðra og fyrstu þrjár vikur desember. Áuðvitað hefur maður svo sem lengi vitað að allt þetta þurfti að gera, en einhvern veginn dregst það og dregst, þangað til allt í einu er kominn desember og dag- arnir taka að verða undarlega stuttir og ódrjúgir. Pað þarf að baka, ákveða hvað á að gefa hverjum, kaupa það, pakka inn og senda, skrifa á stafla af kortum og koma þeim í póst, sauma jólaföt á börnin og kaupa jólaskó, ákveða hvað á að hafa í jólamatinn og verða sér úti um það, þrífa eitthvað innan- húss, skipta um gluggatjöld hér og þar, kaupa kerti, reykelsi, jólaservíettur og sitthvað smá- vegis sem helst ekki má vanta, lit- aðar ljósaperur, eitthvað skraut til viðbótar o.s.frv. Gaman er að tala við börnin á þessum tíma, þau eru full af alls kyns hugleiðingum og spyrja margs: - Hvað eru núna margir dagar til jóla? Hvenær kemur jólasveinninn á næturnar til að setja í skóinn? Mamma, viltu syngja jólalag? Má ég prófa jóla- sícóna? Má ég fá krullur í hárið á jólunum? Eigum við ekki bara að senda okkur sjálfum þetta kort, það er svo fallegt? Svo eru teikn- uð jólatré og jólasveinar, daginn út og inn og allt á að hengja upp á veggi. Auglýsingatíminn í útvarpinu lengist og lengist, svo sumum finnst víst nóg um. En mér finnst alltaf gaman að hlusta og þegar nær dregur jólunum, fer ég gjarn- an að sjá fyrir mér mannmergð- ina í miðbæ Reykjavíkur, pökk- um hlaðið fólk, hlaupandi milli skrautlegra verslana, gjarnan hálfdragandi angana sína, sem væla og rella um allt þetta fína dót. Áðan, þegar ég var einmitt að hlusta á öll freistandi jólatilboð- in, rifjaðist upp fyrir mér, að ein- hvern tíma á þessum árstíma, lík- lega fyrir 10-15 árum, þegar ég var einbúi í gamla miðbænum í Reykjavík, setti ég saman lítið ljóð sem ég kallaði Jólaös. Til gamans læt ég það fljóta hér með, þó því hafi svo sem aldrei verið ætlað að birtast á prenti: Mig vantar salt til að sjóða fiskinn. En það er ekki pláss fyrir mig í búðinni fyrir virðulegum frúm, sem kaupa rjúpur, hryggi og dósamat fyrir þúsundir. Mig vantar spotta fyrir gatið á sokknum. Ég kemst ekki fyrír kerlingamar hamast svo við að kaupa eitthvað, handa Önnu, Gunnu og Sigga, að ég hætti við. Það eru svo mikil læti úti, að ég gefst upp, ryð mér braut heim. Þar finn ég fríðinn, jólafríðinn. Löngu fyrír jól saltlaus og sokkalaus. n SAMBANDSHUSINU SÖLVHÓLSGÖTU 4 REYKJAVIK SÍMi (91)28200 SK/PADEILD SAMBANDS/NS Við önnumst flutninga fyrir þig frá KAUPMANPÍAHOFN

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.