Dagur - 21.12.1983, Blaðsíða 20

Dagur - 21.12.1983, Blaðsíða 20
WILLYS VARAHLUTIR Söluhæstu jólabækurnar á Norðurlandi: „Skrifað í skýin“ er enn í efsta sætinu „Skrifaö í skýin“ eftir Jóhann- es Snorrason er enn í efsta sæti yfir söluhæstu bækur á Norðurlandi samkvæmt könn- un Dags í gær, en þá höfðum við samband við bókabúðii víðs vegar á Norðurlandi. Frá því við birtum listann í síð- ustu viku hafa fremur litlar breyt- ingar orðið á honum. „Skærulið- ar“ Alister McLean eru í 2. sæti og fylgja reyndar bók Jóhannesar Snorrasonar fast eftir. Tvær bækur sem einkum höfða til ung- linga komast nú á listann yfir 11 söluhæstu bækurnar, „14 bráðum 15“ eftir Andrés Indriðason og „Sitji Guðs englar“ eftir Guð- rúnu Helgadóttur. Annars lítur listinn yfir 11 söluhæstu jólabækurnar á Norð- urlandi að þessu sinni svona út samkvæmt þeim upplýsingum sem við öfluðum okkur í gær: 10. 1. Skrifað í skýin Jóhannes Snorrason 2. Skæruliðarnir Alister McLean 3. Aldnir hafa orðið Erlingur Davíðsson 4. Landið þitt Þorsteinn Jósepsson og Steindór Steindórsson. 5. Sitji Guðs englar Guðrún Helgadóttir 6. Öldin okkar Gils Guðmundsson 7. Jói Konn Gísli Sigurgeirsson 8. 14 bráðum 15 Andrés Indriðason 9. Eysteinn í hringiðu stjórnmálanna Vilhjálmur Hjálmarsson -11. Furður og fyrirbæri Erlingur Davíðsson 10.-11. Dómsorð þýdd Hljómplötur: Rás 4 selstbest Safnplatan Rás 4 virðist vera sú plata sem selst best á Akur- eyri fyrir jólin. Ailir þeir kaup- menn sem Dagur ræddi við nefndu þessa plötu fyrst en aðrar plötur sem einnig seljast mjög vel eru: Rás 3 og safn- platan Á milli tveggja elda og plötur bræðranna Kristjáns og Jóhanns Más Jóhannssona. Virðist Jóhann Már ekkert gefa bróður sínum eftir í söl- unni. Hér á eftir fer listi yfir þær plötur sem nefndar voru á hverj- um stað sem hringt var á: Tónabúðin: Rás 4, Jólagleði, BARA-Flokkurinn, Milli tveggja elda, Jóhann Már og Kristján Jóhannssynir. Vöruhúsið: Rás 4, Rás 3, Milli tveggja elda, Kristján og Jóhann Már. Hljómver: Rás 4, Rás 3, Bubbi Morthens, Billy Joel, Genesis, Kristján og Jóhann Már. Radíóvinnustofan Kaupangi: Rás 4, Jólagleði, Paul Young, Milli tveggja elda og Kristján og Jóhann Már. Það sem vekur kannski hvað mesta athygli er hve „Bóndinn" plata Jóhanns Más selst vel en á þrem stöðum seldist sú plata bet- ur en plata Kristjáns Jóhanns- sonar. Mynd: KGA. Jólafreisting. Ingvi Steinn. Söfnunin fyrir Ingva Stein gengur vel Söfnunin fyrir Ingva Stein, drenginn sem dvelst til læknisað- gerðar í Bostón í Bandaríkjun- um, hefur fengið mjög góðar undirtektir. Meðal barnanna í Lundarskóla, sem upphaflega komu söfnuninni af stað, söfnuð- ust tæplega fimmtán þúsund krónur og í Barnaskóla Akureyr- ar söfnuðust tæplega 7 þúsund krónur. Einnig er blaðinu kunn- ugt um að á nokkrum vinnustöð- um hefur starfsfólkið tekið sig til og efnt til samskota. Þá verður Tónlistarskólinn með tónleika í Akureyrarkirkju á nýársdag og rennur ágóðinn af tónleikunum til Ingva Steins. Opið í Hlíðarfjalli Opið verður í Hlíðarfjulli á milli jóla og nýárs, alla dagana á meðan bjart er, þ.e. frá því klukkan hálf ellefu til hálf fjögur, eða um það bil. Stólalyftan og Stromplyftan verða opnar og einnig verður lögð göngubraut. Skfðafæri er aldeilis frábært í Hlíðarfjalli núna, að sögn ívars Sigmunds- sonar, forstöðumanns Skíða- staða. Ferðir verða kl. 10.30 og 12.20. Gert er ráð fyrir að starfsemin í Hlíðarfjalli fari í fullan gang með daglegri veitingasölu í febrúar, en strax eftir áramót verður veitingasala um helgar. Skíðaskólinn byrjar starfsemi strax í byrjun janúar. Veður Reiknað er með vaxandi norð-austanátt og éljagangi norðanlands á morgun og föstudaginn, en síðan er reiknað með því að létti til og allt útlit er fyrir stillt jóla- veður, samkvæmt upplýs- ingum Veðurstofunnar í mogun. Einhver órói er þó í uppsiglingu á Grænlands- hafí, sem hugsanlega segir til sín hér á landi á sunnu- daginn, en þá einkum sunn- anlands. # Atvinnu- ieysisbætur Eins og sagt var frá í síðasta blaði eru atvinnuleysisbætur nú 500 krónur og 8 aurar á dag, fimm daga vikunnar, og 20 kr. eru greiddar með hverju barni. Þetta hefur vald- ið nokkrum misskilningi, en þessi upphæð nær aðeins til þeirra sem hafa unnið 1700 tíma eða meira á síðustu 12 mánuðum. Það samsvarar um 141 tíma á mánuði eða um 6 og hálfs tíma vinnu á dag 5 daga víkunnar. Eins og að líkum lætur fá fjölmargir minna, vegna þess að þeir uppfylla ekki þetta skilyrðl. Menn verða minnst að hafa unnið 425 tíma á sl. 12 mán- uðum til að fá einhverjar bæt- ur og þá er lágmarksgreiðsl- an 25% af fullri greíðslu, eða 125 kr. á viku. Alltaf eru þó greiddar 20 kr. með hverju barnl vikulega. • Ekki háar greiöslur Þetta eru ekki háar greiðslur, það sér hver maður, en þetta er aðeins ein hliðin á atvinnu- leysisbölinu. Hin er félagslegs eðlls og er miklu alvarlegri. Langvarandi atvinnuleysi hefur áhrif á allt líf manna, er niðurdrepandi. Sérstaklega er það slæmt þegar fullfrískt ungt fólk fær ekki vinnu þegar það er tilbúlð til að fara út á vinnumarkaðinn. Nú er búið aö segja upp fólki svo hundr- uðum skiptir í sjávarplássum út um altt land og lltlar líkur á að unnt verði að komast í vinnu annars staðar, eins og oft hefur verið. # Atvinnuleysi versti kosturinn Það hlýtur að vera meginvið- fangsefni íslenskra stjórn- vaida í dag að skapa þær að- stæður í þjóðfélaginu að allir geti fengið vinnu. Þá verða sveitarstjórnir að gera allt sem í þeirra valdi stendur tll að koma í veg fyrir að fyrir- tæki leggl niður starfsemi. Það er hægt að gera án beinna fjárframlaga. Það má draga úr álögum á fyrirtækin, fresta greiðslum opinberra gjalda eða afskrifa þær. Þetta þýðir minni peninga í sam- eiginlega sjóði en kostar örugglega miklu minna en þegar fólk fer á atvinnuleys- Isbætur í stórum stíl, hættir að greiða gjöld sín til samfé- lagsins og fyrirtæki hætta rekstri. Stuðningur til að halda uppi atvinnu er vafa- laust mun kostnaðarminni en kostnaðurinn vegna atvinnu- brests, auk alls annars sem honum fylgir.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.