Dagur - 21.12.1983, Blaðsíða 13

Dagur - 21.12.1983, Blaðsíða 13
21. desember 1983 - DAGUR - 13 Fréttaannáll 1983 - Fréttaannáll 1983 - Fréttaam Heyskapur gekk nokkuð vel á Norðurlandi, einkum í sveitum Eyjafjarðar innanverðum, þar sem hey voru vel í meðailagi að magni og mjög vei verkuð. Leiruvegurinn fyrirhugaði kemst í fréttirnar og flugumferð- arstjórar lýsa yfir áhyggjum sín- um um að vegurinn verði til þess að flugvöllurinn fari á kaf í flóðum. „Veitustjóramálið" á Siglufirði er stöðugt í fréttum. Rætt er um „fjárdrátt“ og orð eins og „póli- tískt klámhögg" fléttast inn í um- ræðuna. Ákveðið er að seinka morgun- flugi til Akureyrar um hálftíma vegna þess að vinna á veliinum hefst of seint að mati Fiugleiða. Sjávarútvegsráðherra fer í yfir- reið um Norðurland og fundar á öllum þéttbýlisstöðum. Víkurskarðsvegur er opnaður fyrir umferð en óljóst er hvenær framkvæmdir við Leiruveginn hefjast. „My fair Lady“ er frumsýnd. Viðtökur eru frábærar og stykkið setur met á árinu hvað aðsókn varðar. Mikil barátta hefst um rann- sóknarskipið Hafþór. ÚA vill fá skipið fyrir togara en það vilja líka aðilar á Húsavík og Siglu- firði. Niðurstaðan er sú að Haf- þór er saltaður um sinn, enda ekki pláss fyrir hann á miðunum að mati sjávarútvegsráðherra. Ný tegund sullaveiki kemur upp á Norðurlandi. Yfirdýra- læknir telur veikina hafa borist til landsins með hundum sem smygl- að hefur verið inn. Wilhelm V. Steindórsson ritar lokagrein sína um-málefni Hita- veitu Akureyrar. Trimmstöð er opnuð í sund- lauginni. A Húsavík byggir bærinn en allt útlit er fyrir að sýslan sitji eftir með sárt ennið í litlu og þröngu húsnæði. Hallbjörn leggur unga jafnt sem aldna Akureyringa að fótum sér. Ljóst er að söngvarinn frá Skagaströnd er geysivinsæll og fagnaðarlátunum í Sjallanum og Dynheimum er líkt við bítlaæðið. Áskrifendaherferð Dags ber glæsilegan árangur. Bóndi í Bárðardal missir 20 kindur í fönn. Nóvember: Atvinnuástand á Húsavík er mjög slæmt í upphafi mánaðar- ins. Fjöldauppsagnir koma til framkvæmda en úr rætist að hluta um miðjan mánuðinn. „Grænhöfðaskipinu“ hleypt af stokkum í Slippstöðinni að við- stöddu fjölmenni og tignum gestum. Hlaut skipið nafnið Fengur. Pétur Einarsson hræðir sam- gönguráðherra með því að fara eftir fyrirmælum stjórnvalda. Allt lítur út fyrir að flugvellir lok- ist en Matti bjargar málunum og þykist hafa rassskellt flugmála- stjóra. Bernharð Steingrímsson hlýtur viðurnefnið „Hilton“ m.a. vegna þess að hann hyggst byggja íbúðahótel við Pórunnarstræti. Aðalfundur LÍÚ hefst á Akur- eyri í skugga „svörtustu skýrsíu“ ailra tíma. Er eitthvað af þorski eftir í sjónum? spyrja menn sig á þinginu. Kristján Jóhannesson er verð- ugur handhafi titilsins „mesta rjúpnaskytta ársins 1983“. Mest skaut Kristján 80 rjúpur í einni ferð og í lok mánaðarins hefur hann samtals krækt í rúmlega 400 rjúpur. Islendingur á Akureyri er í vondu skapi. Líklega með ein- hverja minnimáttarkomplexa og lætur eins og hafnfirsk rækja. Lengingaraðgerðir að hefjast á Akureyri? - Halldór Baldursson yfirmaður bæklunardeildar FSA segir það ekki útilokað í framtíð- inni. Fyrsta loðnan kemur til Akur- eyrar og hin nýju og glæsilegu tæki Krossanesverksmiðjunnar eru vígð. Fjórðungssjúkrahúsið verður 110 ára með pompi og prakt. Stöðugt er leitað að nýjum atvinnutækifærum á Norðurlandi - og veitir víst ekkert af. Talað er um að stofna laxfóðursverk- smiðju á Akureyri. Tvær danskar hnátur hneyksla siðsama borgara. Þessir tertu- botnar tróðu upp í Sjallanum, allsberar og varð af þessu mikið fjaðrafok sem barst inn í kirkjur og á fleiri mæta staði. Vottar Jehóva lýsa því yfir í Degi að það sé ekkert hlevíti til, en mönnum ge> st misjafnlega að þeirri tilhugsun. Dagur fær Fjórðungsmót norðlenskra hestamanna fór fram á Melgerðismelum um mánaðamótin júní-júlí og tókst það í alla staði mjög vel. Hér er Gylfi Gunn- arsson á Kristal, en þeir sigruðu í flokki klárhesta. skammir fyrir að virða prentfrelsi og trúfrelsi. Stórmarkaðurinn Kjarabót opnar á Húsavík. Kryddsíldarlögur (ekki frá Morgunblaðinu) kemur FN í vandræði. Lenti lögur þessi í raf- kerfi einnar flugvélar félagsins. Hótel KEA boðar stækkun. Mikið er rætt um stórkostlega möguleika í þorskeldi. Nokkrar hrygnur geta framleitt þúsundir tonna. Nýr bátur kemur til Grenivík- ur. Það kemur í ljós að Reagan notar Gefjunaráklæði í þyrluna sína. 60 starfsmönnum Slippstöðvar- innar er sagt upp en uppsagnir þessar og hvernig að þeim er staðið valda mikilli ólgu meðal starfsmanna. Gunnar Ragnars segir að ekkert sé framundan hjá stöðinni ef leyfi til lántöku fæst ekki, til þess að takast á við verk- efni. Desember: Jólamánuðurinn heilsar ekki fal- lega á Ólafsfirði. Nær allt verka- fólk á staðnum er atvinnulaust en á sama tíma sigla togararnir með aflann til útlanda. Valtýr Sigur- bjarnarson, bæjarstjóri segir í samtali við Dag að það séu engin galdrameðul til við þessum vanda. - Bæjaryfirvöld búa ekki til neina vinnu með því að smella saman fingrum, segir hann. Á Dalvík er atvinnuástand í fiskiðnaði þolanlegt en iðnað- armenn á staðnum s.s. trésmiðir líta ekki björtum augum til fram- tíðarinnar. Bæjarstjórinn á Ólafsfirði komst aftur í fréttimar 5. des- ember þegar hann lokaðist á milli snjóflóða í Ólafsfjarðarmúla. - Nú vantar okkur bara jarðgöngin sagði hann í samtali við Dag. Svartur senuþjófur heimsótti sláturhús Kaupfélags Svalbarðs- eyrar sama dag. Var hér um að ræða mink sem sloppið hefur úr minkabúi. Var dýrinu snarlega slátrað. Bæjaryfirvöld á Akureyri standa ráðþrota gegn leiktækja- sölunum sem þau héldu að búið væri að koma lögum yfir. Ekki er því þó að heilsa því samkvæmt lögreglusamþykktinni mega leiktækjasalirnir starfa ef t.d. brjóstsykursala telst aðalstarf- semi á viðkomandi stað. Árlegt jólaverðstríð gos- drykkjaverksmiðjanna fer af stað. Sanitas er sem fyrr lægst á Norðurlandi. Uppi verður fótur og fit á Dalvík þegar það kemur í ljós að búið er að semja við Slippstöðina um viðgerð á bátnum Blika sem skemmdist í eldsvoða. Telja heimamenn að Slippstöðin hafi fengið þetta verk áður en útboðs- frestur rann út og aðrir gátu lagt inn tilboð í verkið. Enn eitt fyrirtækið hættir starf- semi eða flytur. Nú er það Hagi hf. sem hættir allri starfsemi frá og með 1. mars nk. 30 manns missa vinnuna. Verktakar á Akureyri mæta kreppunni með því að snúa bökum saman og niðurstaðan er stofnun Eyfirskra verktaka hf. sem sex verktakar standa að. Eigandi Hótels Akureyra kærir þá aðila sem selja gistingu í heimahúsum. „Þessi rekstur er ólöglegur og saknæmur" segir hann, en ekki eru allir á sama máli. Loks koma góðar fréttir fyrir þá sem hafa áhyggjur af atvinnu- ástandi á Akureyri. Jón Sigurðar- son, hjá Iðnaðardeild Sambands- ins lýsir því yfir að líklega sé hægt að bæta við fólki vegna vaxandi sölu til Sovétríkjanna. Nemendur Lundarskóla gefa öðrum gott fordæmi fyrir jólin. Nemendur hafa nefnilega ákveð- ið að sleppa jólagjöfum á litlu jólunum í skólanum og láta þess í stað peningana renna í sjóð til styrktar nýrnaveikum dreng. Drengurinn sem er fimm ára heitir Ingvi Steinn og er hann um þessar mundir í meðferð í Bandaríkjunum. Dagur skorar á fleiri að fara að fordæmi barn- anna í Lundarskóla. Bók Jóhannesar Snorrasonar, fyrrverandi flugstjóra er sölu- hæsta bókin á Norðurlandi það sem af er jólavertíð. Enn er leitað að nýjum leiðum og nýjum atvinnutækifærum. Nú hugleiða menn að flytja út vatn frá Akureyri. Súlan frá Akureyri kom med fyrstu loðnuna að landi í haust. Var landað á Raufarhöfn og sýnir myndin er Súlan var nýkomin þar að landi. Fréttaannáll 1983 - Fréttaannáll 1983 - Fréttaan

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.