Dagur - 21.12.1983, Page 6
6 - DAGUR - 21. desember 1983
Bækur frá
Almenna bókafélaginu
Almenna bókafélagið hefur sent
á markaðinn nýja skáldsögu eftir
Agnar Þórðarson. Agnar hefur
eins og kunnugt er aðallega
fengist við leikritagerð, og er
Kallaður heim 4. skáldsaga hans.
Þessi nýja saga gerist í Vest-
mannaeyjagosinu 1973 og segir
frá nokkrum Vestmannaeyingum
á ýmsum aldri undir þeim ein-
stöku kringumstæðum sem gosið
skapaði. Þetta er í senn ástarsaga
með dularfullu ívafi og saga af
baráttunni við að bjarga Vest-
mannaeyjum, byggðinni og höfn-
inni undan jarðeldunum.
Kalladur heim er 217 bls. að
stærð og unnin í Prentverki
Akraness.
Almenna bókafélagið hefur gefið
út þrjár bækur fyrir yngstu les-
endurna eftir Beatríx Potter,
frægan breskan barnabókahöf-
und. Þýðandi er Sigrún Davíðs-
dóttir. Þessar bækur eru:
Sagan um Pétur kam'nu. Hún
fjallar um ærslabelginn Pétur
kanínu, nánasta umhverfi hans
og hættuleg ævintýri sem hann
lendir í.
Sagan um Tuma kettling. Þessi
Tumi kettlingur er hálfgerður
óþekktarangi en ansi skemmti-
legur og svo segir sagan frá systr-
um hans tveimur sem eru ekki
síður skemmtilegar.
Sagan um Jemínu pollaönd.
Jemína vildi fremur unga út
eggjunum sínum sjálf en láta ein-
hverja hænu gera það. En hún
setti sig í mikla hættu, því að
rebbi sat á svikráðum. En fyrir-
ætlun hans mistókst, og var það
að þakka hundinum Snata.
Litmyndir eru á annarri hverri
síðu í þessum bókum af þeim at-
burðum sem verið er að segja frá
á'síðunni á móti.
Bækur Beatrix Potter eru í litlu
broti og er hver bók 60 bls.
Almenna bókafélagið hefur sent
frá sér Minningar Thors Jensens
í tveimur bindum skrásettar af
Valtý Stefánssyni ritstjóra. Þetta
er 2. prentun Minninganna, en
fyrri prentunin kom út 1954 og
1955.
Thor Jensen var sá einstakling-
ur sem lagt hefur einna drýgst af
mörkum til framþróunar atvinnu-
mála íslendinga á þessari öld.
Hann var kunnastur fyrir útgerð-
arfélagið Kveldúlf sem hann stofn-
aði með sonum sínum 1912 og
rak með miklum myndarbrag,
þannig að Kveldúlfur var um ára-
tugi stærsta og glæsilegasta út-
gerðarfélag landsins.
Thor Jensen rak einnig lengi
búskap og var bú hans á Korp-
úlfsstöðum hið stærsta hér á landi
á seinni öldum, og hefur enginn
bóndi komist jafn langt og hann
í landbúnaði fyrr en þá á síðari
árum.
Fyrri hluti minninganna nefnist
Reynsluár og síðari hlutinn
Framkvæmdaár. Bækurnar eru
með fjölda mynda bæði af mann-
virkjum, tækjum og þó einkum af
fjölskyldumeðlimum og sam-
starfsmönnum Thors Jensens.
Fyrra bindið Reynsluár er 246
bls. að stærð og síðara bindið,
Framkvæmdaár 264 bls. Bæku-
rnar eru unnar í Prentsmiðjunni
Odda.
Almenna bókafélagið hefur sent
frá sér þrjár bækur fyrir unga les-
endur í flokki svonefndra gægju-
bóka , en þær eru þannig að á
annarri hverri blaðsíðu er spurn-
ing viðkomandi því efni, sem
bókin fjallar um, en á síðunni á
móti er mynd sem snertir spurn-
inguna og lítið spjald sem fletta
má upp og undir spjaldinu er svar
við spurningunni. Gægjubækurn-
ar sameina því það tvennt að
vera skemmtilegar og veita byrj-
andanum undirstöðufræðslu í
ýmsum hagnýtum efnum. Þessar
bækur eru eftir Bretann Eric
Hill, sem er höfundur vinsælla
barnabóka.
Slökkviliðsmenn vonast til að ekki komi til eldsvoða þessa fáu daga sem eftir eru af árinu - já og það á raunar við
um næstu ár líka!
Akureyri:
Enginn elds-
voði á árinu
„Það hefur enginn eldsvoði
orðið á Akureyri á þessu ári,
og við vonum að svo verði þeg-
ar árið verður kvatt,“ sagði
Víkingur Björnsson sem sér
um eldvarnir hjá Slökkviliði
Akureyrar.
Víkingur hefur að undanförnu
farið á milli skóla á Akureyri þar
sem hann hefur frætt nemendur
um eldvarnir og sýnt kvikmyndir.
Hann sagði í spjalli við Dag að
hann vildi hvetja fólk til þess að
fara varlega um jól og áramót.
Þá vildi hann koma því á fram-
færi að á slökkvistöðinni væru
nú til sölu reykskynjarar og gæti
fólk fengið þá setta upp á heimil-
um sínum sér að kostnaðarlausu
ef óskað væri eftir því.
Bragi Bergmann:
I sólskinsskapi!
Ég ætla að sleppa ölllum hryll-
ingsbröndurum þar sem jólin
eru á næsta leiti. En þá eru það
orðaleikjabrandararnir, sem oft
hafa reyndar verið nefndir fimm
aura brandarar, hvernig svo
sem á því stendur. Þeir eru
margir í formi spurninga.
Fimm aura brandarar
- Hefurðu heyrt um bakarann
sem bakaði vandræði? En píp-
arann sem fór í vaskinn? Og
múrararnn sem rann út í
sandinn? Eða smalann sem fór
út um þúfur? Ef þú hefur heyrt
þessa, sem er einmitt mjög
líklegt, þá hefur þú eflaust
heyrt um hænsnabúseigandann
sem var svo eggjandi, hár-
greiðslukonuna sem var svo
lokkandi, kafarann sem botnaði
ekki neitt í neinu þótt hann væri
á kafi í vinnunni, bóndann sem
var svo hrífandi, ræstingakon-
una sem var alltaf til í tuskið,
enda fataðist henni aldrei,
leigubílstjórann sem var úti að
aka enda fékk hann fyrir ferð-
ina, flugstjórann hjá Arnarflugi
sem hætti vegna flugleiða,
trésmiðinn sem þoldi ekki við,
blaðamanninn sem var daufur í
dálkinn, skjalavörðinn sem var
skúffaður allt þar til að hann sá
hilla undir betri framtíð, ösku-
karlinn sem var alltaf í rusli,
kokkinn sem fór í steik, verka-
manninn sem sat alltaf á hakan-
um, götusóparann sem var far-
inn að færa sig upp á skaftið,
gítarleikarann sem tók alltaf í
sama streng og bassaleikarann
sem aftur tók oftast misgrip,
trommuleikarann sem sló í
gegn, söngvarann sem söng sitt
síðasta, tannlækninn sem reif
kjaft, saumakonuna sem sýndi
á sér fararsnið, klæðskerann
sem varð ekki kápan úr því
klæðinu, úrsmiðinn sem drap
tímann og afsakaði sig svo með
því að klukkan hefði slegið
fyrst, gullsmiðinn sem gerði ein-
tóma hringavitleysu, þjálfara
kvennaliðsins sem var rekinn
vegna þess að hann lá á liði
sínu, teppasalann sem hélt sig
á mottunni og dýralækninn sem
stóð á öndinni. Svona mætti
lengi telja. Veistu annars hvað
stendur á skiltinu í draugaher-
berginu í Tívolí? „Bannað að
gefa öndunum." (Það er satt,
þetta eru hálfgerðir fimm aura
brandarar.) Ég ætla að ljúka
þessu með einum orðaleikja-
brandaranum enn.
Bakarinn
Einu sinni var bakari sem týndi
gleraugunum sínum. Hann leit-
aði út um allt. Fyrst leitaði hann
í franskbrauðsdeiginu, svo í
normalbrauðsdeiginu, síðan í
rúgbrauðsdeiginu, snúðadeig-
inu og vínarbrauðsdeiginu. Svo
fann hann þau loksins - í hádeg-
inu.