Dagur - 27.02.1984, Qupperneq 3
27. febrúar 1984 - DAGUR - 3
„Vonum að Akureyringar
taki Alþýðubankanum vel‘
- sagði Stefán
útibús
- Tilefni þessa fundar hér í dag,
er það að nú föstudaginn 24.
febr. 1984 mun Alþýðubankinn
h.f. opna fyrsta útibú sitt utan
Reykjavíkur, hér á þessum stað,
Ráðhústorgi 5 á Akureyri.
Þetta sagði Stefán Gunnars-
son, bankastjóri Alþýðubankans
er hann bauð gesti velkomna við
opnun útibúsins sl. föstudag.
- Stofnfundur Alþýðubankans
var haldinn 12. des. 1970, en lög
um bankann voru útgefin 12.
maí 1970. Fyrsti starfsdagur
bankans var 5. mars 1971.
Alþýðubankinn yfirtók starfsemi
Sparisjóðs Alþýðu sem hóf starf-
semi 29. apríl 1967. Hluthafar
Alþýðubankans eru fjölmargir
eða um 850, þar af flest eða öll
verkalýðsfélög innan Alþýðu-
sambands íslands. Stærstu hlut-
hafar eru Alþýðusamband
íslands, Verkakvennafélagið
Framsókn, Verkamannafélagið
Dagsbrún, Verslunarmannafélag
Reykjavíkur og Iðja, félag verk-
smiðjufólks. Ein sjö verkalýðs-
félög hér á Akureyri eru misjafn-
lega stórir hluthafar.
Hlutafé Alþýðubankans var kr.
12.722 þús. um sl. áramót,
ógreidd hlutafjárloforð námu þá
723 þús. Heildarinnlán námu kr.
399 millj. og heildarútlán kr. 266
millj. um sl. áramót.
Hlutverk Alþýðu-
bankans
Hlutverk Alþýðubankans, eins
og það er skilgreint í samþykkt-
um, er að efla atvinnuþróun og
treysta atvinnuöryggi launafólks,
svo og að styðja menningarlega
og félagslega starfsemi verkalýðs-
hreyfingarinnar á íslandi.
Eins og fyrr segir er þetta
Gunnarsson bankastjóri við opnun
Alþýðubankans á Akureyri
fyrsta útibú bankans utan
Reykjavíkur, en þar er starfrækt
eitt útibú. Alþýðubankinn hefur
átt undir högg að sækja um leyfi
til stofnunar útibúa, en ljóst má
vera að viðskipti hljóta að tengj-
ast því hversu auðvelt er að hafa
skipti við bankann. Um leyfi fyrir
stofnun útibús hér á Akureyri var
fyrst sótt 2. maí 1979 og loks
fengist samþykkt í dag.
Að sögn Stefáns Gunnarssonar
þá er það ekkert leyndarmál að
sterkir aðilar á fjármagnssviðinu
hafa barist gegn opnun þessa úti-
bús, en sá kafli sé nú að baki.
Alþýðubankinn er stór aðili að
byggingu húss verkalýðsfélag-
anna að Skipagötu 14 og þar mun
verða framtíðaraðsetur bankans,
þangað til verður útibúið starf-
rækt hér í leiguhúsnæði að Ráð-
hústorgi 5. Settur útibússtjóri er
Kristín Jónsdóttir auk hennar
munu tvær konur vinna í útibú-
inu í heilsdagsstarfi og ein í hálfs-
dagsstarfi.
- Það er von Alþýðubankans
að Akureyringar og Norðlend-
ingar allir taki útibúi hans hér
vel. Það er von okkar að efling og
styrkur Alþýðubankans megi
verða til þess að ná megi því
markmiði sem honum hefur verið
sett.
Við þetta tækifæri ber að
þakka öllum þeim sem stuðlað
hafa að því að þessum áfanga
væri náð, en leggja ber áherslu á
að aðeins er um áfanga að ræða,
vegna þess að áhrifavald Alþýðu-
bankans á fjármagnsmarkaði
þjóðfélagsins hlýtur að markast
af hlutdeild hans í heildarsparn-
aði. Til þess að sú hlutdeild vaxi
er bankanum nauðsynlegt að
koma sér upp aðstöðu sem
víðast. Hér er ekki um það að
ræða hvort nóg sé af bönkum
fyrir, á þeim vettvangi sem
öðrum hlýtur samkeppni að ríkja
og þá hlýtur samkeppnisaðstaða
að verða að vera sú sama fyrir
alla, í frjálsu þjóðfélagi.
Eins og einstaklingurinn elur
þá von í brjósti að hann megi
vera samfélagi sínu til gagns, eins
vonum við sem hjá Alþýðubank-
anum vinnum að starfsemi hans
megi verða einstaklingum og
samfélaginu öllu til þrifa, sagði
Stefán Gunnarsson.
Benedikt Davíðsson formaður bankaráðs Alþýðubankans og Stefán Gunn-
arsson bankastjóri. Myndir: ESE.
Verksmiðju-
útsa/a
Einstakt tækifæri til að eignast
MODEL í MOKKA
Þú þarft að sjá verðið og gæðin til að sannfærast
Sigurður Kristjánsson ásamt Kristínu Jónsdóttur útibússtjóra og Valgarði
Stefánssyni frá Menningarsamtökum Norðurlands.
Sigurður sýnir í
Alþýðubankanum
Einn liður í starfsemi Alþýðu-
bankans á Akureyri verður sá
að myndlistarsýningar verða
þar haldnar í samráði við
Menningarsamtök Norðlend-
inga.
Að sögn Kristínar Jónsdóttur,
útibússtjóra er það Sigurður
Kristjánsson, iðnverkamaður
sem ríður á vaðið en Sigurður er
svo til sjálfmenntaður í list sinni.
Á sýningunni eru níu verk eftir
hinn aldna listamann og mun sýn-
ingin standa í tvo mánuði. Að
þeim tíma liðnum munu Menn-
ingarsamtökin tilnefna nýjan
listamann og síðan mun þetta
ganga koll af kolli og hver lista-
maður mun sýna um tveggja
mánaða skeið. - ESE
Opio frá kl. 9.00-17.00 á útsöluloftinu
VERSLUN IÐNAÐARDEILDAR