Dagur - 05.03.1984, Side 3
5.’ imars 1984 - ÖÁÖUft - 3
Samningur um 500 tonn af hvítri lakkmálningu sem Efnaverksmiðjan Sjöfn á Akureyri selur til Sovétríkjanna á
þessu ári var undirritaður í húsakynnum fyrirtækisins sl. miðvikudag. Samninginn undirrituðu Aðalsteinn Jónsson
forstjóri Sjafnar og sovéskir sendimenn sem komu til landsins til þess að ganga frá þessum samningi. Talið er að
verðmæti málningarinnar sem Sjöfn selur Sovétmönnum nemi um 20 milljónum króna. Mynd: H.Sv.
Afmælismót Bridge-
félags Akureyrar
Á þessu ári verður Bridgefélag
Akureyrar 40 ára. í tilefni af-
mælisins er ákveðið að halda
afmælismót dagana 23.-25.
mars nk. Spilaður verður tví-
menningur á föstudagskvöld
og laugardag, en síðan úrslita-
keppni efstu para á sunnudag.
Vandað verður tii verðlauna
sem verða:
1. verðlaun: 15.000 krónur.
2. verðlaun: 12.000 krónur.
3. verðlaun: 8.000 krónur.
4. verðlaun: Helgarferð fyrir tvo
til Reykjavíkur frá Ferðaskrif-
stofu Akureyrar.
5. verðlaun: Tveir svefnpokar
frá Gefjunni.
6. verðlaun: Myndataka fyrir tvo
á ljósmyndastofunni Norður-
mynd Akureyri.
Á afmælismótinu verður auk
verðlaunanna spilað um silfur-
stig. Öllu spilafólki er heimil
þátttaka, hvaðan sem er af land-
inu. Keppnisgjald er kr. 1.000
fyrir parið.
Utanbæjarfólki er bent á hag-
stæð fargjöld með Flugleiðum.
Umsjónarmenn afmælismótsins
eru Þórarinn B. Jónsson og
Grettir Frímannsson sem gefa
allar nánari upplýsingar í símum
26111 og 22244 alla daga frá kl.
9-17 og í símum 21350, 22760 og
21830 á kvöldin.
Þátttöku þarf að tilkynna í síð-
asta lagi á sunnudagskvöldið 18.
mars.
Bridgefélag Akureyrar býður
spilafólk velkomið á afmælismót-
ið 23.-25. mars.
Delerium Bubonis í Freyvangi fimmtudaginn 8. mars og föstudaginn 9. mars kl. 20.30. Á Grenivík sunnudaginn 11. mars kl. 16.00 og 20.30. Upplýsingar og miðapantanir í símum 61704 og 61728. Krafla Hrísey.
Skátapc er ko IIJ E' wSw Hjalte lysurnar 1 imnar /fjörö JA yrargötu 4 sími 22275
ÓD Saltaö h Reykt h Nýtt og reyfc Sprengidaj 110 k búrið ÝRT rossakjöt rossakjöt 1 folaldakjöt ’ssaltkjötið r. kg. Opið á laugardögum 10-12 \ Strandgötu 37 ’ Sími 25044
Bókahús Skjaldborgar
- tekið í notkun
Bókahús Skjaldborgar hefur
verið tekið í notkun. í húsinu
verða skrifstofur Skjaldborgar
og bókalager en fyrst um sinn
verður þar rekinn bóka-
markaður.
Að sögn Svavars Ottesen,
stjórnarformanns Skjaldborgar
þá var húsnæðið áður í eigu
Kassagerðar KEA en Bókahúsið
er til húsa að Hafnarstræti 75.
Húsnæðið sem er um 200 fm að
stærð er ekki alveg fullfrágengið
en um leið og bókamarkaðinum
lýkur þá verður gengið frá inn-
réttingum.
Bókaútgáfan Skjaldborg var
stofnuð árið 1968 og á þessum
tíma hafa alls verið gefnar út 154
bækur á vegum útgáfunnar, þar af
32 á sl. ári. Skjaldborg er stærsta
bókaútgáfa utan Reykjavíkur og
á þessu ári er fyrirhugað að gefa út
á milli 20 og 30 bækur á vegum
Skjaldborgar. Stærstu hluthafar
Skjaldborgar hf. eru Björn
Eiríksson sem jafnframt er fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, Svav-
ar Ottesen, stjórnarformaður,
Steinunn Guðjónsdóttir og Vil-
helm K. Jensen. Auk þeirra
Svavars og Björns starfar ein
stúlka við útgáfuna, en Prent-
smiðja Björns Jónssonar mun
áfram prenta flestar bækur
Skjaldborgar. -ESE
Notað-Nýtt
Vegna mikillar eftirspurnar
óskum við eftir notuðum
skíðum í stærðum 90-170cm
Blizzard Look og Nordica
skíði stærð Salomon skíöaskor
frá 90 cm. bindingar. allar stærðir.
Nýkomnar KA- og Þórs-töskur
Verð aöeins 385 kr. !_
, mm Km ditkowt
Postsendum ■ ■■ ■ ækkl rpíi
HLIÐA ULi
SPOKf
VERSLUNARMIÐSTÖÐINNI SUNNUHLÍÐ
Sími 22146.