Dagur - 05.03.1984, Síða 11

Dagur - 05.03.1984, Síða 11
5. mars 1984 - DAGUR -11 Ársþing Ungmennasambands Eyjafjarðar: Vill herferð gegn vímugiöfum 63. ársþing Ungmennasambands Eyjafjarðar var haldið í Þela- merkurskóla 25. og 26. febrúar sl. Formaður sambandsins Gísli Pálsson setti þingið. Pingforsetar voru kjörnir Þóroddur Jóhanns- son og Jóhann Ólafsson. Formaður flutti skýrslu stjórnar. í henni kom fram að starfsemi Ungmennasambands- ins hefði verið nokkuð þróttmikil á sl. ári. Að venju ber þar íþrótt- irnar hæst. Mörg mót voru haldin innanhéraðs í hinum ýmsu íþróttagreinum. Einnig stóð sam- bandið fyrir mótum með kepp- endum úr öðrum héruðum. Bar þar hæst Norðurlandsmót í frjáls- um íþróttum sem haldið var á Árskógsvelli með yfir 80 kepp- endum. íþróttafólk frá UMSE tók þátt í mörgum mótum utan héraðs og vann það oft á tíðum góð afrek. Nægir þar að nefna ís- landsmet Sigurðar Matthíassonar í hástökki án atrennu og Krist- jáns Hreinssonar í hástökki með atrennu. Eins og áður hefur komið fram í fjölmiðlum, varð UMSÉ að hætta þátttöku í 1. deild íslands- mótsins í blaki sökum aðstöðu- leysis til æfinga í héraðh Þrátt fyrir það hafði liðið staðið sig með sóma og hafnaði í þriðja sæti í deildinni á sl. vori. Knattspyrnulið UMSE tók þátt í undankeppni 18. Landsmóts UMFÍ og tapaði þar fyrir liði HSP, en á eftir leik við ÚÍA vegna kærumála. Þátttaka í skíðaíþróttum er fremur lítil hjá sambandsfé- lögum, öðrum en Skíðafélagi Dalvíkur sem starfar af miklum þrótti og hefur á að skipa mörg- um góðum skíðamönnum. Áhugi á bridge fer stöðugt vax- andi og tóku 14 sveitir þátt í hér- aðsmóti á sl. ári. Keppt var við HSÞ og sigraði UMSE í þeirri keppni. Skákdeild UMSE starfaði mik- ið og vel á árinu og hélt nokkur mót. Einnig sendi skákdeildin lið til keppni í 2. deild Skáksam- bands íslands. Á haustdögum fór fram spurn- ingakeppni á vegum sambands- ins, með þátttöku liða frá sveitar- félögum á sambandssvæðinu. Sigurvegari í þeirri keppni varð lið Öngulsstaðahrepps. Guðmundur Steindórsson gjaldkeri sambandsins las reikn- inga þess og skýrði þá. Kom fram í máli hans að rekstur sambands- ins gekk allvel á árinu og munaði þar mikið um höfðinglega styrk- veitingu Laxárvirkjunar. Árlegur styrkur er frá Eyjafjarðarsýslu og einnig frá mörgum sveitarfé- lögum á sambandssvæðinu. Vegna þröngrar fjárhagsstöðu flestra þeirra urðu styrkveitingar þó minni en undanfarin ár, en stjórn sambandsins vonast til, að með batnandi hag sjái þau sér fært að styðja vel við bakið á sambandinu, enda Landsmót UMFÍ framundan á þessu ári. Þá nýtur Ungmennasambandið styrks frá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar sem felst í fríu skrif- stofuhúsnæði, auk mjög góðrar aðstöðu til fundarhalda. Ungmennafélag Möðruvalla- sóknar, sem sá um þingið að þessu sinni, hélt þingfulltrúum veislu í þinglok. Þar veitti for- maður sambandsins Umf. Reyni á Árskógsströnd Sjóvábikarinn fyrir sigur í stigakeppni á íþrótta- mótum sambandsins. Þá veitti hann Umf. Árroðanum í Önguls- staðahreppi Félagsmálabikarinn fyrir þróttmikið starf á árinu. Éinnig afhenti hann Kristjáni Hreinssyni bikar, en hann var kjörinn íþróttamaður UMSE 1983. Þingið fór í alla staði vel fram og voru umræður líflegar og mál- efnalegar. Um 60 fulltrúar frá öllum sambandsfélögum, nema einu, sátu þingið. Gestir þess voru þeir Ingólfur A. Steindórs- son ritstjóri Skinfaxa og Cees van de Ven sem ráðinn hefur verið frjálsíþróttaþjálfari sambandsins í sumar. Ný stjórn sambandsins var kjörin á þinginu, en hana skipa: Sigurgeir Hreinsson formaður, Klængur Stefánsson varaformað- ur, Rögnvaldur Ólafsson gjald- keri, Ingvi Guðmundsson ritari og Valgeir Anton Þórisson með- stjórnandi. í varastjórn: Björn Friðþjófsson, Marinó Þorsteins- son og Pétur Þórarinsson. Ur ályktunum þingsins Þingið hvetur stjórn sambandsins til að undirbúa sem fyrst herferð í skólum héraðsins gegn vímu- gjöfum. Leitað verði til Áfeng- isvarnaráðs og SÁÁ um aðstoð við framkvæmd herferðarinnar, svo og fyrirlesara. Einnig verði leitað samstarfs við baráttuhópa gegn vímuefnum. Þingið bendir á, að nota jafnframt þessa her- ferð til að kynna ungmennafé- lagshreyfinguna. Þingið beinir því til fjölmiðla, og þá sérstak- lega ríkisfjölmiðla, að þeir stór- auki fræðslu um skaðsemi vímu- efna og áróður gegn þeim. 63. þing UMSE átelur harð- lega linkind þá sem útbreiðend- um vímugjafa og fíkniefna er sýnd í dómskerfi landsins og hvetur til ákveðnari afstöðu til þeirra. Þingið beinir því til stjórnar sambandsins að hún beiti sér fyrir samvinnu við stjórnir sveitarfé- laga og skólanefndir á sambands- svæðinu um að hraða sem mest uppbyggingu íþróttahúsa og ann- arra íþróttamannvirkja. Bendir þingið á nauðsyn þess að leggja áherslu á að beina fjármagni og kröftum nú þegar í eitt íþrótta- hús með löglegum keppnisvöll- um, í stað þess að dreifa kröftun- um og láta hreppapólitík ráða. Þá beinir þingið því til stjórnar að hún kynni þetta mál rækilega fyrir þingmönnum kjördæmisins. Þingið skorar á félagsstjórnir og sveitarstjórnir að beita sér fyr- ir að önnur vika í júní verði gerð að almennri hreinsunarviku á sambandssvæðinu. 63. þing Ungmennasambands Eyjafjarðar harmar það slæma atvinnuástand sem nú er á Eyja- fjarðarsvæðinu og skorar á yfir- völd að leita nú þegar leiða til að bægja frá þeim bölvaldi sem at- vinnuleysið er. í því sambandi minnir þingið á að atvinnuleysið bitnar mest á ungu fólki sem er að komast á vinnumarkaðinn og veldur hjá því andlegu og þjóð- félagslegu óöryggi. Því vill þingið leggja áherslu á að nú þegar verði gert átak í að efla stórlega hvers konar smáiðn- að svo sem ýmsan framleiðslu- iðnað úr landbúnaðarafurðum um leið og tryggt verði að full- vinnsla þess sjávarafla sem að landi berst á svæðinu fari fram heima fyrir. Samhliða þessu átaki verði haldið áfram þeim rannsóknum sem fram hafa farið um áhrif stóriðju á Eyjafjarðarsvæðið og leggur þingið þunga áherslu á að því aðeins kemur til greina að staðsetja slíkan iðnað hér að tryggt verði að hann hafi engin óæskiieg náttúrufræðileg áhrif á svæðið og að komist verði hjá fé- lagslegri röskun við tilkomu slíks iðnaðar. Hótel Varðborg Veitingasala Árshátíðir Einkasamkvæmi Köld borð Heitur veislumatur Smurt brauð Snittur Coktailsnittur Getum lánað diska og hnífapör Útvegum þjónustufólk Erum farnir að taka á móti pöntunum fyrir fermingar. Sími 22600 Júníus heima 24599 Skákmenn - Skákmenn Hið árlega minningarskákmót um Búa Guðmundsson hefst föstudaginn 9. mars nk. kl. 20.30 í Þelamerkur- skóla. Öllum heimil þátttaka. Umf. Skriðuhrepps. Skíðaáhugafólk Hafið skíðin og úthaldið ávallt á réttum stað Skíða-box til festingar á toppgrindaboga rúma 4 pör af skíðum, stöfum, skóm Esso-nestin Tryggvabraut 14 * Veganesti + Krókeyri. Skrifstofa Framsóknarflokksins Opið alla virka daga frá kl. 15.30-18.30. Starfsmenn skrifstofunnar verða Tryggvi Svein- björnsson á mánudögum og miðvikudögum og Bragi V. Bergmann á þriðjudögum, fimmtudögum og föstudögum. Síminn er 21180. Heimasímar: Tryggvi Sveinbjörnsson, 26678. Bragi V. Bergmann, 26668. Hestamenn! u Látum ekki aka á okkur í skammdeginu - notum ENDURSKINSMERKI HESTAMANNAFElAGIÐ LÉTTIR Stolnað 5 növ 1928 P O Bo< 348 - 602 Akuieyn Nauðungaruppboð sem auglýst var í 128., 130. og 133. tbl. Lögbirtingablaðsins 1983 á fasteigninni Lækjargötu 18a, talinni eign Sigurrósar Steingrímsdóttur, fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes hrl., inn- heimtumanns ríkissjóðs og bæjarsjóðs Akureyrar á eigninni sjálfri föstudaginn 9. mars 1984 kl. 14.40. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 128., 130. og 133. tbl. Lögbirtingablaðsins 1983 á fasteigninni Lerkilundi 15, Akureyri, þingl. eign Grétars Ólafssonar, fer fram eftir kröfu Ólafs B. Árnasonar hdl. og Gunnars Sólnes hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 9. mars 1984 kl. 14.20. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 117., 122. og 124. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982 á fasteigninni Glerárgötu 24 n.hl., Akureyri, þingl. eign Valprents hf., fer fram eftir kröfu Iðnlánasjóðs á eigninni sjálfri föstudaginn 9. mars 1984 kl. 16.20. Bæjarfógetinn á Akureyri.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.