Dagur - 05.03.1984, Blaðsíða 4

Dagur - 05.03.1984, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 5. mars 1984 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREVRI SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 130 Á MÁNUÐI - LAUSASÖLUVERÐ 18 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÖRNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚl: GfSLI SIGURGEIRSSON BLAÐAMENN: EIRIKUR ST. EIRÍKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI: 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Tvískinnungur Alþýðubandalagsins Sjaldan eða aldrei hefur tvískinnungur Al- þýðubandalagsins í kjaramálum komið betur fram en í viðbrögðum Þjóðviljans undanfarna daga við nýgerðum kjarasamningum. í þessu málgagni sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis segir Ásmundur Stefánsson, for- seti ASÍ, að loknum samningunum við VSÍ: „Þá er hér gerð alvarlegri tilraun en áður hef- ur verið gerð til þess að rétta hlut þeirra sem verst eru settir í þjóðfélaginu sérstaklega. “ Tveimur dögum síðar birtist fimm dálka fagn- andi forsíðufrétt þess efnis að samningurinn hafi verið kolfelldur á Dagsbrúnarfundi. Svavar Gestsson, formaður Alþýðubanda- lagsins, segir í viðtali við málgagn sitt daginn eftir samningana að það hafi ekki reynt á vilja launafólks við þessa samningagerð forystu- manna, og getur ekki leynt gremju sinni yfir því að ekki skuli hafa tekist að efna til verk- falla og upplausnar í þjóðfélaginu. Og sam- kvæmt orðum Svavars var það ekki verkalýðs- hreyfingin sem stóð að þessum samningum heldur ótilgreindir forystumenn. Þá gat Þjóðviljinn vart vatni haldið af hrifn- ingu þegar kjaradeilan í Straumsvík leystist og ástæðan fyrir þessari hrifningu var aug- ljós: Samningar starfsmanna í Straumsvík voru betri en þeir sem ótilgreindir forystu- menn höfðu gert fyrir hönd ASÍ. Nú var ekki lengur neitt athugavert við það að sérhópar með sterkari aðstöðu en almennt verkafólk næðu betri kjörum eftirá. Nú var það skyndi- lega orðið fagnaðarefni að hinu almenna verkafólki skyldi hafa verið skákað með betri samningum. Og áfram var haldið við að ala á óánægju. Nú var prósentuhækkun launa skyndilega orðin hið versta mál. Alþýðubandalagsmenn áttuðu sig allt í einu á þeirri staðreynd, að þeir sem hafa hærri laun fá meiri hækkun í krónutölu en þeir sem lægri hafa launin, þeg- ar prósentureglan er látin ráða. Á liðnum árum hefur Alþýðubandalagið hins vegar ekki mátt heyra minnst á það að launamis- réttið væri leiðrétt með krónutöluhækkunum í stað prósentuhækkana. Framsóknarmenn með Steingrím Hermannsson í broddi fylking- ar hafa oft og iðulega bent á þessa leið til tekjujöfnunar. Stjórnarandstaða Alþýðubandalagsins nú er sú aumasta sem séð hefur dagsins ljós síð- ustu áratugi. Tilgangur kommúnista að ala á óánægju og koma á upplausnarástandi í þjóð- félaginu hefur sjaldan verið eins auðsær og nú. Vonandi verður árangur þeirra enginn. Skynsemi og sleggjudómar — Bréfkorn Sigurður minn, ég mátti vita það. Auðvitað var það fljótfærni sem réð penna þínum þegar þú skrif- aðir mér til um álið. Ég verð að biðja þig að fyrirgefa mér, þá hugrenningu mína, að þessu réði ótugtarskapur eða dómgreindar- leysi. Svo illa brá mér þegar ég las Brútusargreinina þína og sá þar, auman mig útmálaðan sem ættlera og óvin guðs grænnar náttúru. En, eins og berlega kom í ljós í símtali okkar, hafðir þú kynnt þér málið með lestri fyrir- sagna í blöðum og hlustað á rang- túlkanir einar, en ekki hirt um að kynna þér málavöxtu til hlítar. Þér hefði verið sæmra að athuga þinn gang áður en þú brást niður penna. Stefnum lífríki Eyjafjarðar ekki í hættu í ályktun bæjarstjórnar á Akur- eyri segir svo: Bæjarstjórn Akur- eyrar telur æskilegt, að næsta stóriðjuveri sem byggt verður á íslandi verði valinn staður við Eyjafjörð, enda verði talið tryggt að rekstur versins stefni lífríki fjarðarins ekki í hættu. Þetta vissir þú ekki um Sigurð- ur, enda þótti fjölmiðlum það ekki spennandi. Málið er einfald- lega þannig vaxið, að við viljum fá hingað álver, verði ákveðið að byggja það og ef rannsóknir á mengunarhættu sannfæra okkur um að ekki verði skaði á náttúru fjarðarins. Um það verður ekki dæmt út frá brjóstvitinu einu saman, heldur er nauðsynlegt að rannsaka aðstæður og vita stærð og gerð versins. Þegar allt þetta er vitað, þá má taka til þess rök- studda afstöðu hvort af fram- kvæmdum getur orðið við Eyja- fjörð. Umhverfisrannsóknir er verið að framkvæma núna. Ég mun geyma mér að taka afstöðu til mengunarmálanna þar til nauðsynleg gögn liggja fyrir, ann- að er óábyrgt og vitlaust. En því skal ég lofa þér og öðrum Sigurð- ur, að trúi ég því að rekstur ál- vers stefni lífríki fjarðarins og búskaparmöguleikum í tvísýnu þá skal ég berjast, ótrauður, gegn öllum áformum um byggingu þess. Málstaður okkar náttúru- verndarmanna, því að til þess hóps tel ég mig, er góður, en honum verður ekki unnið gagn með sleggjudómum og ofstæki, heldur með rökvísi og sanngirni. Þannig megum við ekki setja okkur gegn málum án þess að hafa krufið þau til mergjar áður. Orkuverð og sjálfstæði Það þarf engan að furða að augu manna beinast að nýtingu ork- unnar til að auka tekjur okkar, slíkt er ástand hinna hefðbundnu atvinnuvega. Hitt er augljóst og má aldrei gleymast, að orka fall- vatnanna verður okkur ekki auðsuppspretta ef orkuverðið er undir framleiðslukostnaði. Það er hlutverk stóriðjunefndar Iðn- aðarráðuneytisins að semja um orkuverð við þá aðila sem hér vilja ráðast í orkuiðnað. í þessari nefnd sitja ákaflega grandvarir menn með gott viðskiptavit. Endanlegur samningur kemur síðan til kasta Alþingis. Mér kemur ekki til hugar að mæla því til Sigurðar á Jón Sigurðarson. bót, að við seljum orkuna ódýrt, en ég trúi því að mistökin í samn- ingunum við Alusuisse verði okk- ur nægileg lexía til að við munum bera gæfu til að gera skynsamleg- an samning í þetta skiptið. En náist ekki viðunandi orkuverð, þá þarf ekki um það að fjölyrða, þá byggjum við ekkert álver á ís- landi. Við verðum að gæt'a okkar ákaflega í öllum samskiptum við útlendinga og gera enga þá samn- inga sem geta skert sjálfstæði okkar og virðingu meðal þjóð- anna. Við megum þó ekki vera svo ragir, íslendingar, í þeim við- skiptum, að við einangrumst. Samningar um stóriðjufyrirtæki eru flóknir að gerð og margs að gæta, en íslendingar hafa sýnt það og sannað, t.d. í hafréttar- samningum, að þeir eru einskis eftirbátar í alþjóðlegri samninga- gerð. Við þurfum ekki að óttast hina erlendu auðhringa ef við gætum forsjálni og stillingar í við- skiptum við þá. Sjálfstæði okkar er þá fyrst stefnt í hættu, ef við berum ekki gæfu til að nýta allar Grænavatni auðlindir okkar á arðbæran hátt, og höldum áfram að ganga á þeirri ógæfubraut sóunarinnar, sem við nú göngum. Ataks er þörf Atvinnumálin eru ekki bara stór- iðja og álver. Við Akureyringar eyðum meira púðri í ýmsa aðra og nærtækari möguleika til að byggja upp atvinnu. Þessi smærri mál eru minna áberandi, enda hluti þeirrar eðlilegu þróunar sem verður að vera undirstaða vaxtar á þessu svæði. Álver er æskileg og eðlileg viðbót, sé það okkur arðbært og náttúrunni skaðlaust. Allar líkur benda til, að reist verði slíkt fyrirtæki hér á landi innan langs tíma. Ég óttast mjög þá byggðaröskun, sem af því getur hlotist, verði það reist á Suðurnesjum, í viðbót við þær miklu framkvæmdir sem þar eru hafnar, illu heilli. Átaks er þörf, ef eðlilegur vöxtur á að verða í atvinnu hér, þess vegna ber okk- ur að gaumgæfa alla kosti, og hafna engum þeim möguleika, stórum eða smáum, sem til fram- fara horfir. Þá skalt þú leggja orð í belg. Því miður er það svo, Sigurð- ur, að margur mætur maðurinn virðist ærast þegar minnst er á áliðnað. Hverfur þá bæði formæl- endum og andstæðingum dóm- greind, en ofstæki ágerist. Hverf- ir þú úr þessum flokki og látir skynsemina ráða penna þínum, þá skalt þú leggja orð í belg um atvinnumál við Eyjafjörð. Láttu það annars ógert. Það þjónar hagsmunum þínum og Eyjafjarð- ar best. Með vinarkveðju og fyrirbæn. Jón Sigurðarson. Riddarar með tónleika í Lóni Finnski sönghópurinn Köyhát Ritarit „Fátæku riddararnir" munu halda tónleika í félags- heimilinu Lóni við Hrísalund, miðvikudaginn 7. mars kl. 20.30. Þetta eru fyrstu opinberu tón- leikarnir sem haldnir eru í hinum nýju húsakynnum karlakórsins Geysis. Sönghópurinn heldur einnig þrenna tónleika í Reykjavík. A efnisskránni eru verk frá ýmsum tímum og löndum. Hópurinn hefur haldið yfir 100 tónleika í Finnlandi, USA, Canada og Sví- þjóð oj^unnið til margra verð- launa. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.