Dagur - 05.03.1984, Qupperneq 12
LiMUM BORÐA
RENNUM SKÁLAR
Gleðitíðindi fyrir Grenvíkinga?
Loðnuveiðiskipin fengu
500 tonna þorskkvóta
Það hefur ekki verið mikil
bjartsýni ríkjandi meðal
margra útgerðarmanna að
undanförnu vegna þess kvóta
sem skip þeirra hafa fengið
úthlutað og ekki síst hefur
mönnum á Grenivík þótt útlit-
ið vera svart.
Heimamenn hafa bent á að
miðað við kvótann þá séu allar
horfur á að hráefnið dugi frysti-
húsinu aðeins fram á mitt ár og
ein aðalorsökin sé sú að loðnu-
bátarnir sem lagt hafa upp á
Grenivík fái nú engan kvóta.
Þetta er hins vegar ekki alveg
sannleikanum samkvæmt og vel
gæti farið svo að frystihús Kald-
baks á Grenivík fengi rúmlega
500 tonn af þorski til viðbótar
kvóta heimabáta ef um semst á
milli þeirra og eigenda viðkom-
andi skipa.
- Við fáum um 300 tonna
þorskkvóta í ár en það hefur eng-
'in ákvörðun verið tekin um það
hvar við leggjum upp, sagði
Sverrir Leósson, eigandi Súlunn-
ar og formaður Útvegsmannafé-
lags Norðurlands þegar blaða-
maður Dags ræddi við hann.
Sverrir sagði að hann hefði
frétt að Hákon sem einnig hefur
lagt upp á Grenivík hefði fengið
um 200 tonna þorskkvóta, þannig
að ekki væru loðnubátarnir tveir
alveg kvótalausir eins og heyrst
hefði verið haft eftir heima-
mönnum.
- Það hefur verið ágætt að
eiga samskipti við Kaldbak, það
hafa verið örugg viðskipti og ég
reikna með því að hafa samband
við hann, sagði Sverrir Leósson.
- Var vandi þessara staða sem
telja sig fara verst út úr kvóta-
skiptingunni, ræddur á fundi út-
vegsmanna á Akureyri sl.
fimmtudag?
- Það var ekki rætt sérstaklega
um þessa staði en mér finnst það
einkennilegt og reyndar skjóta
nokkuð skökku við að á sama
tíma og aðilar á viðkomandi
stöðum barma sér sem mest, þá
skuli heimabátar hugsanlega fara
suður á vertíð. Þessir aðilar ættu
fyrst að hugsa um að leysa sín
mál heimafyrir áður en þeir biðja
um aukinn kvóta, sagði Sverrir
Leósson, en samkvæmt upplýs-
ingum hans þá voru kvótamálin
skýrð mjög vandlega á umrædd-
um fundi útvegsmanna.
- Staðan er auðvitað mjög erf-
ið núna en það er ekki kvótanum
að kenna að ekki er meiri þorsk-
ur í sjónum. Það er samt engin
ástæða til bölsýni að mínu mati.
Ég er þeirrar skoðunar að það
rofi til, sagði Sverrir Leósson.
- ESE.
Slippstöðin:
Lagfær-
ingum á
dráttar-
braut-
inni lokið
Að undanförnu hafa staðið yfir
lagfæringar á dráttarbrautinni
í Slippstöðinni á Akureyri.
Vegna lélegrar undirstöðu hef-
ur dráttarbrautin smám saman
sigið og skekkst en samkvæmt
upplýsingum Gunnars Arason-
ar, viðgerðarstjóra Slippstöðv-
arinnar þá er lagfæringum á
brautinni nú lokið.
Að sögn Gunnars þá munu
slíkar lagfæringar hafa farið fram
tvisvar sinnum áður en að þessu
sinni tók verkið um tvær vikur.
Þar sem brautin hafði sigið undir
sjávarmáli urðu kafarar að vinna
viðgerðina og sagði Gunnar að
viðgerðin hefði tekist vel.
- Við erum nú að vinna að
mælingum á dráttarbrautinni en
þessi viðgerð hefur ekkert háð
starfseminni hér. Við sættum lagi
þegar ekki var von á skipum og
gerðum við hana þá, sagði Gunn-
ar Arason, viðgerðarstjóri.
- ESE.
Avísanafals
Upp hefur komist um ávísana-
misferli sem átti sér staö í síð-
ustu viku.
Upphaf þessa máls var það að
maður nokkur komst yfir ávís-
anahefti á skemmtistaðnum H-
100 og í félagi við kunningja sína
falsaði hann fjórar ávísanir að
upphæð 15-16 þúsund krónur.1
- ESE.
Plastiðjan Bjarg og Plasteinangrun hf.:
Framleiða
fyrir Rafha
„Ég verð að segja að ég er
mjög ánægður með að okkur
skuli hafa tekist að fá þetta
verkefni,“ sagði Sveinn
Björnsson hjá Plastiðjunni
Bjargi er Dagur ræddi við
hann um samning sem Bjarg
og Plasteinangrun h.f. hafa
gert við Rafha í Hafnarfirði
um framleiðslu á hlutum í eld-
húsviftur.
„Rafha hafði samband við
okkur í nóvember á síðasta ári og
bað okkur að athuga með fram-
leiðslu á plasthlutum í þessar
viftur,“ sagði Sveinn. „Eftir að
hafa athugað málið í samráði við
Plasteinangrun h.f. höfum við
gert Rafha tilboð um framleiðslu
á þessum hlutum, en Plastein-
angrun h.f. tekur stærstu hlutina
sem við erum ekki færir um að
framleiða í okkar vélum.
Við höfum fengið þetta verk,
og hjá okkur þýðir þetta viðbót í
veltu sem svarar allt að mánaðar-
veltu, þetta er hrein aukning. Til
að byrja með nær samningurinn
í plasthluti í um 10 þúsund viftur.
Þessir hlutir hafa fram að þessu
verið framleiddir í Svíþjóð sem
þýðir að greiða hefur orðið af
þeim dýr flutningsgjöld en okkur
tekst að spara þeim þessi flutn-
ingsgjöld.
Það er mjög líklegt að þetta
þýði að við munum bæta við fólki
í pökkun. Hins vegar er fram-
leiðslan sjálf mest megnis sjálf-
virk vélavinna og við fáum betri
nýtingu á okkar vélum með þess-
um samningi,“ sagði Sveinn. gk-
Veður
í dag er reiknað með hægri
sunnan- eða suðvestanátt á
Norðurlandi, ef til vill með
einhverri slyddu, samkvæmt
upplýsingum Markúsar Á.
Einarssonar, veðurfræðings
í morgun. í nótt er búist við
vestan- eða norðvestanátt
með éljagangi, en á morgun
verður hæg breytileg átt og
þá er reiknað með að létti til
með vaxandi frosti. „Síðan
erum við að gera okkur viss-
ar vonir um að það verði
hægviðrasamt næstu daga, í
þá veru og í þá átt, að það
verði mildara jafnvel,“ sagði
Markús.
# Hvað ætlarðu
þér með
Gvend?
Þegar samningamál ASÍ og
VSI stóðu sem hæst og Ijóst
var orðið að Guðmundur J.
Guðmundsson ætlaði að fara
aðrar leiðir en hinir forystu-
mennirnir, barst eftirfarandi
vísa inn á borðið hjá okkur:
Þetta er þjóðlegur vandi.
Ég þögull og hlustandi stend.
Þú mikli, eilífi andi,
hvað ætlarðu þér með Gvend?
# Albestur
„leikaranna“
Það kom svo í Ijós í fyllingu
tímans hvaða stefnu Guð-
mundur J. og félagar hans í
Dagsbrún tóku. Annars er
svolítið gaman að málflutn-
ingi Guðmundar. Það er eins
og hann taki helst engar
ákvarðanir sjálfur. Þær koma
allar frá æðra afli, nefnilega
félögum hans í Dagsbrún,
eða jafnvel einhverju enn
æðra afli, eins og ýjað er að í
vísunni. Guðmundur hagar
sér nefnilega æði oft eins og
einhver refsivöndur æðri
máttarvalda þegar hann talar
til landslýðs og þá ekki síst
stjórnvalda. Hann er ábúðar-
fullur, haldinn föðurlegri um-
hyggju, refsar og veitir ákúr-
ur þegar við á, en er þess á
milli mildur og blíður. Þó ekki
sé ástæða til að efast um
hollustu hans gagnvart um-
bjóðendunum verður að
segjast eins og er, að hann er
albestur „leikaranna" í hús-
inu við Austurvöll.
# Símaklefinn
fjarlægður
Hér er smá frétt af umgengn-
isháttum á Akureyri. Póstur
og sími hefur gefist upp við
að halda símaklefanum í
Hafnarstræti í horfinu. Hann
verður því fjarlægður í dag.
Ástæðan? Það ætti nú líklega
ekki að vera erfitt að geta
hver hún er. Tækið er eyði-
lagt jafnóðum og búið er að
laga það. Þannig er mál með
vexti að snúran milli símatóls-
ins og tækisins sjálfs er slitln í
sundur og það eru engir
krakkakjánar sem gera það
því hún er styrkt með stál-
hulsu.