Dagur - 04.04.1984, Síða 3
4. aprfl 1984 - DAGUR - 3
„Kaupið erof lágt
þrátt fyrir allt“
- segir Kolbeinn Friðbjarnarson formaður Vöku á Siglufirði
- Það má segja að menn hafi
verið að verka upp flórinn eftir
sig í kjölfar þeirra breytinga
sem urðu á heildarkjarasamn-
ingi ASÍ og VSÍ, sagði Kol-
beinn Friðbjarnarson, formað-
ur Verkalýðsfélagsins Vöku á
Siglufirði er við ræddum við
hann um stöðu samningamála
í bænum.
Að sögn Kolbeins þá voru
heildarkjarasamningarnir sam-
þykktir á Siglufirði en þróun
mála síðan hefði breytt stöðunni
nokkuð.
- Það er ljóst að þessar breyt-
ingar sem náðust fram eru mjög
til bóta og nægir þar að nefna
unglingataxtann sem nú hefur
verið afnuminn. Ég held að fólki
hafi þótt það mjög mikið réttlæt-
ismál en því er ekki að neita að
þrátt fyrir breytingar í rétta átt
þá eru samningarnir langt frá því
að vera viðunandi. Kaupið er
einfaldlega of lágt, sagði Kol-
beinn.
Til marks um verkamanna-
launin sagði Kolbeinn að lægstu
laun nú væru 12660 krónur á
mánuði og allir vitibornir menn
sæju að það væri ekki nóg. Kaup-
ið í fiskvinnunni væri samt
ennþá lægra en þar væru byrjun-
arlaun ekki nema 10316 krónur
og 11606 krónur eftir sex ára starf
og fiskvinnslufólkið þyrfti því að
leggja mjög hart að sér til þess að
greiða sjálfu sér það sem upp á
lægstu verkamannalaunin vant-
aði með auknum bónus. Þess
væru dæmi að verkafólk í fisk-
vinnslu þyrfti 22% bónus ofan á
kaupið til að ná lágmarkslaunum.
- Hvað með aðra samninga á
Siglufirði?
- Við höfum að undanförnu
staðið í samningaviðræðum við
bæjaryfirvöld fyrir okkar fólk
sem eru verkamenn hjá bænum
og starfsfólk á barnadagheimili.
Þá eigum við ógerða samninga
fyrir starfsfók á sjúkrahúsum á
Norðurlandi en þessa samninga
gerum við sem aðilar að Alþýðu-
sambandi Norðurlands og í sam-
ráði við önnur verkalýðsfélög á
Norðurlandi. Við þurfum einnig
að gera samninga á vegum Al-
þýðusambands Norðurlands við
Vinnumálanefnd ríkisins vegna
starfsfólks í Síldarverksmiðjum
ríkisins á Siglufirði og Raufar-
höfn.
- Hafið þið náð samningum
við nýja fyrirtækið Sigló hf. ?
- Við höfum náð efnislegu
samkomulagi sem er tilbúið til
undirritunar. Það er bónussamn-
ingur sem ég tel nokkuð góðan,
sagði Kolbeinn Friðbjarnarson.
- ESE.
Sykurlaust appelsín:
Hlýtur
frábærar
viðtökur
- Viðtökurnar hafa í einu orði
sagt verið frábærar, sérstak-
lega þó á Reykjavíkursvæðinu
og miklu betri en við þorðum
nokkru sinni að vona, sagði
Ragnar Tryggvason hjá Sana
á Akureyri er hann var spurð-
ur um viðtökurnar við nýja
sykurlausa appelsíninu sem
Sanitas hf. hefur sett á
markað.
Ragnar sagði að appelsínið
hefði að undanförnu verið kynnt
í Reykjavík og væri það vafalaust
ein ástæðan fyrir hinni miklu
sölu. Lítil kynning hefði hins veg-
ar farið fram annars staðar á
landinu en salan væri samt sem
áður mun meiri en ráð hafði ver-
ið fyrir gert.
- Ég reikna með því að þessi
aukna sala komi niður á öðrum
sykurlausum drykkjum og eins
held ég að sykruðu drykkirnir
megi fara að vara sig, sagði
Ragnar Tryggvason. - ESE.
Skákþing Norðlendinga 1984:
Gylfi varð
meistari
Gylfi Þórhallsson frá Akureyri
varð skákmeistari Norðlend-
inga eftir hörkukeppni á Skák-
þingi Norðlendinga sem haldið
var á Blönduósi um helgina.
Gylfi hlaut 6 vinninga af 7
mögulegum í opna flokknum
eða heilum vinningi meira en
næstu menn, þeir Olafur Krist-
jánsson og Jakob Kristinsson,
sem báðir eru frá Akureyri.
Þetta 50. Skákþing Norður-
lands var svo sannarlega mót Ak-
ureyringanna í opna flokknum
því auk þeirra þriggja sem taldir
eru upp hér að framan, þá áttu
Akureyringar auk þess þrjá af
fimm næstu mönnum. Það voru
þeir Arnar Þorsteinsson, Þór
Valtýsson og Jón Garðar Viðars-
son sem hlutu 4.5 v. auk þeirra
Jóns Hannessonar frá Blönduósi
og Pálma Sighvatssonar frá Sauð-
árkróki. Keppendur í opna
flokknum voru 24 og voru tefldar
sjö umferðir samkvæmt Monrad-
kerfi.
í unglingaflokki voru tefldar
níu umferðir eftir sama kerfi en
þar sigraði Páll A. Jónssom frá
Siglufirði. Hann hlaut 8 vinninga
eða hálfum öðrum vinningi meira
en tveir næstu menn sem voru
þeir Eriingur Jensson frá Sauðár-
króki og Eymundur Eymunds-
son, Akureyri. í 4.-5. sæti urðu
Sigurður Gunnarsson, Siglufirði
og Einar Héðinsson, Akureyri
með 6 vinninga og í 6.-7. sæti
þeir Tómas Hermannsson, Akur-
eyri og Þóroddur Þorsteinsson,
Húnavatnssýslu með 5.5 v.
í kvennaflokki sigraði Svein-
fríður Halldórsdóttir örugglega
en hún varð einnig hraðskák-
meistari í kvennaflokki.
Það var Ungmennasamband
A.-Húnvetninga sem sá um fram-
kvæmd skákþingsins en skák-
stjóri var Albert Sigurðsson.
Næsta Norðurlandsmót verður
haldið á Akureyri. Það verður
jafnframt afmælismót því þá
verða liðin 50 ár frá því að fyrsta
mótið var haldið. Það var haldið
á Akureyri 1935 og síðan þá hef-
ur Skákþing Norðurlands aldrei
fallið niður. - ESE.
Fiskimjölverksmiðja á Ólafsfirði:
Heimamenn
voru með
lægst tilboð
í síðustu viku voru opnuð til-
boð í byggingu fiskimjölsverk-
smiðju fyrir Hraðfrystistöð ÓI-
afsfjarðar, en áformað er að
hefja byggingu hússins í vor.
Var gerð grunns boðin út sér
og bygging hússins sér.
Kostnaðaráætlun vegna
grunnsins hljóðaði upp á
1.475.000 krónur og bárust
fjögur tilboð í það verk. Lægst
var tilboð frá Ás í Ólafsfirði sem
nam 1.114.000 krónum eða
75,5% af kostnaðaráætlun.
Norðurverk h.f. og Vör h.f. voru
með sameiginlegt tilboð upp á
1.338.000 krónur eða 90,7%,
Barð s.f. með 1.439.000 krónur
eða 97,6% og Tréver Ólafsfirði
með 1.451.000 krónur eða
98,4%.
Áætlun fyrir smíði hússins nam
3.800.000 krónum. Tréver Ólafs-
firði sendi inn 4 tilboð og var eitt
þeirra það lægsta sem barst að
upphæð kr. 2.295.000 krónur eða
60,4% af kostnaðaráætlun, en
hæsta tilboð Trévers nam
3.432.000 krónum eða 90,3%.
Sigurjón Óiafsson Blönduósi var
með 3.195.000 krónur eða 84,5%
og Norðurverk h.f. og Vör h.f.
sem buðu sameiginlega voru með
3.456.000 krónur eða 90,9%.
Önnur tilboð sem bárust í
byggingu hússins voru frá Berki
h.f., Landssmiðjunni (3 tilboð)
og Barði s.f. og Lofti sem buðu
sameiginlega, og voru öll þessi
tilboð hærri en kostnaðaráætlun-
in. gk-.