Dagur - 09.05.1984, Blaðsíða 2

Dagur - 09.05.1984, Blaðsíða 2
2-DAGUR-9. maí 1984 Sauðárkrókur: Fimm milljonir í íþrótta- húsið Fjárfrekasta framkvæmd Sauðárkróksbæjar á þessu sumri er áframhald byggingar íþróttahúss í bænum, en Sauð- krækingar hafa hingað til orðið að búa við mjög ófullnægjandi aðstöðu í þeim efnum. Hér er því um mjög brýna framkvæmd að ræða og var húsið gert fokhelt sl. haust. Fjárveiting í framkvæmdir við húsið á þessu ári er rúmar fimm milljónir króna. gk-. Slæmar horfur í atvinnu- málum ungs fólks Atvinnumál ungs fólks voru til umræðu á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í gær, en horfur í þeim efnum eru mjög slæmar. Samþykkt var tillaga á fundin- um sem Sigríður Stefánsdóttir mælti fyrir, en meðflutningsmenn eru Sigurður Jóhannesson, Val- gerður Bjarnadóttir, Jórunn Sæ- mundsdóttir og Gunnar Ragnars. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að lagðar verði fyrir bæjarráð niður- stöður könnunar atvinnumála- nefndar og hagsýslustjóra á at- vinnuhorfum ungs fólks, en þær niðurstöður gætu legið fyrir nú um helgina, og fundnar verði leiðir til að firra vandræða- ástandi. Þá er gert ráð fyrir að gerð verði ný úttekt á atvinnu- leysisskráningunni, sem ekki er talin gefa nægilega góðar vís- bendingar um stöðuna í þessum efnum. - HS. Mini-golfið aftur til bæjarráðs Á fundi bæjarstjórnar Akur- eyrar í gær var samþykkt til- laga frá Jóni Sigurðarsyni um að vísa aftur til bæjarráðs um- sókn Hreiðars Jónssonar um mini-golf sunnan sundlaugar- innar, en bæjarráð hafði fallist á erindið. í rökstuðningi Jóns fyrir tillög- unni kom m.a. fram að sund- laugarstjóri hefði þrisvar sinnum lagt erindi fyrir íþróttaráð um að fá að starfrækja mini-golf á sund- laugarlóðinni á vegum sundlaug- arinnar. Þá hefði íþróttaráð sótt um fjárveitingu til þessa en verið synjað. Jón kvað sundlaugar- stjóra telja að mini-golf gæti afl- að sundlauginni tekna og óeðli- legt og óæskilegt væri að skerða tekjumöguleika sundlaugarinnar. Kanna ætti hugmyndir sund- laugarstjóra nánar. Aðrir bæjarfulltrúar mæltu með því að málið yrði skoðað nánar, en hins vegar mætti ekki dragast úr hömlu að afgreiða um- sókn Hreiðars og væri hugsanlegt að finna stað fyrir hans starfsemi annars staðar í bænum. - HS. - Ég er búinn að vera hér síð- an ég var tvítugur. Ég er fædd- ur og uppalinn á Valdanesi hér á Vatnsnesinu og það má því segja að ég hafi ekki leitað langt yfir skammt. En ég kann ákaflega vel við mig héma. Hér er gott og gestrisið fólk og við lítum björtum augum til framtíðarinnar. Það er Eggert Levy, fulltrúi kaupfélagsstjóra hjá Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga á Hvamms- tanga sem er í Viðtali Dags-ins að þessu sinni. Er blaðamenn Dags heimsóttu Hvammstanga vildi svo til að aðalfundur kaup- félagsins stóð sem hæst og Eggert varð því fúslega við því að bjarga okkur um smá upplýsingar um verslun og viðskipti og mannlífið á Hvammstanga. - Það hefur átt sér stað geysi- leg uppbygging hér á Hvamms- tanga sl. ár. Hér stendur verslun í blóma, hér er rekin glæsileg rækjuverksmiðja, vegagerðin hefur hér aðsetur og hér eru rek- in tvö bílaverkstæði og eitt tré- smíðaverkstæði, sagði Eggert er við forvitnuðumst um helstu at- vinnuþætti. Uppbyggingin blasir við hvert sem litið er. Ibúðarhús eru hvarvetna í byggingu og á Eggert Levy á skrifstofu sinni. aldarinnar og ég held ég megi fullyrða að við höfum staðið okk- ur mjög vel í samkeppninni hér á Hvammstanga. - Er mikið verslað hér á sumrin? - Verslunin virðist fara vel af stað þetta árið og hér var t.d. mjög mikil verslun í aprílmánuði en það er auðvitað súrt í broti að vera ekki nær hringveginum en raun ber vitni. Við töpum á þess- um fimm kílómetrum sem við erum út úr en hins vegar þá bend- ir margt til þess að við getum átt von á auknum ferðamanna- straumi hingað. Fólk er smám saman farið að gera sér grein fyr- ir möguleikum Vatnsnessins og ég spái því að Hvammstangi og Vatnsnesið eigi eftir að verða vinsæll ferðamannastaður þegar fram líða stundir. - Þið hjá kaupfélaginu hafið ekkert verið í útgerð fram að þessu. Eru einhver áform uppi í þessu sambandi? - Við höfum auðvitað rennt hýru auga til sjávarútvegsins og einkum þeirra miklu möguleika sem rækjan og skelin bjóða upp á. Mér er hins vegar ekki kunn- ugt um að neinar ákvarðanir hafi verið teknar í þessum efnum. Mynd: ESE. - Hvað finnst fólki um „rækju- Hér býr gestrisið og mjög gott fólk - segir Eggert Levy, fulltrúi kaupfélagsstjórans á Hvammstanga Hvammstanga er jafnframt verið að stækka grunnskólann og heilsugæslustöð er þar í bygg- ingu. Hálft annað ár er liðið síð- an „stolt staðarins“ - sundlaugin var tekin í notkun og Eggert dregur ekki dul á að íbúar Hvammstanga eru ánægðir með þessa laug. - Það varð algjör atvinnubylt- ing þegar hitaveitan og rækju- vinnslan komu hingað. Hitaveit- an olli tímamótum. Hún var byggð áður en verðbólguvitleys- an óð upp úr öllu og við njótum því ódýrrar og góðrar hitaveitu í dag. Það hefur einnig verið ör fólksfjölgun undanfarinn áratug. - Hvernig er aðkomufólki tekið? - Mjög vel. Við erum gestrisn- ir hér á Hvammstanga og fólki hefur gengið mjög vel að aðlaga sig þeim lifnaðarháttum sem hér tíðkast. - Hvernig er félagslífið á staðnum? - Ég tel að hér sé boðið upp á mjög fjölbreytt tómstundalíf. Hér eru starfræktir allir hugsan- Iegir klúbbar og íþróttalíf t.d. sund er hér á mikilli uppleið. Það er frekar að fólk sé í vandræðum með að finna sér tíma fyrir tóm- stundirnar en að framboðið sé ekki nóg. - Hvernig gengur reksturinn hjá kaupfélaginu? - Það er auðvitað rétt að kaupfélagsstjóri svari því beint en almennt séð þá gengur rekst- urinn vel. Hér eru mikil viðskipti og við rekum hér alhliða verslun með nánast allar hugsanlegar vörur. Þetta er rótgróið og traust kaupfélag, stofnað í byrjun æðið“ sem nú virðist í algleymi? - Ég er að vísu ekki mjög kunnugur þessari starfsemi en það sem ég heyri á götunni, bendir til þess að fólk sé almennt ekki mjög hrifið af þessu brölti. Við höfum heyrt að það sé í bí- gerð að flytja rækju frá Sauðár- króki til vinnslu suður í Reykja- vík og þetta mælist ákaflega illa fyrir meðal fólks hér. Fólk viil að við vinnum okkar afurðir sjálf hér á Norðurlandi og eins er fólk ekki hrifið af því að stórum skipum verði í auknum mæli stefnt á rækjumiðin. - ESE. Bein sending frá Olympíuleikunum — Við erum tilbúin að vaka, en er Sjónvarpið tilbúið? iróttamaður hringdi: tð hefur komið fram í fréttum ) forráðamenn Sjónvarpsins /ggjast ekki senda út beint efni á Olympíuleikunum. Er því >rið við að þessar sendingar séu nóttinni að íslenskum tíma og n ekki hægt að gera neitt í mál- u. Nú veit ég að ég mæli fyrir munn margra þegar ég segi að við treystum okkur alveg til að vaka ef við eigum kost á að sjá íþrótta- menn okkar í beinni sendingu í keppni við bestu íþróttamenn heims. Ég er ekki að tala um að allir leikarnir verði sendir beint, heldur aðeins keppni þeirra ís- lendinga sem taldir eru eiga möguleika. Þeir Einar Vilhjálms- son og Vésteinn Hafsteinsson geta báðir hitt á risaköst á góðum degi - góðri nótt á íslandi og því skora ég á Sjónvarpið að sýna a.m.k. spjótkastskeppnina og kringlukastið. Treysti sjónvarps- starfsmenn sér ekki til að vaka, þá mætti a.m.k. semja við Varn- arliðið um að fá að dreifa ein- hverju af beina efninu sem þeir fá í gegnum litlu jarðstöðina við hliðina á Skyggni, í gegnum ís- lenska dreifikerfið. Það getur varla kostað mikið, þó ég dragi ekki í efa að einhverjum kynni að þykja erfitt að brjóta odd af of- læti sínu og biðja um þetta efni. Það er allt í lagi að vera stoltur og reyna að sporna gegn óæski- legum erlendum áhrifum en það á varla við um íþróttir frá Olymp- íuleikunum eða hvað? Því miður virðist þó oft á tíðum stutt á milli þjóðarstolts og þjóðrembu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.