Dagur - 23.05.1984, Side 1
67. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 23. maí 1984
59. tölublað
Valur Arnþórsson um breytingar á dagvöruverslun KEA:
„Stórátak til bættra
verslunarkjara fólks“
— Kjörmarkaðsverð í fleiri búðum en áður en litlu búðunum fækkar
„Við ætlum að reyna að gera
stórátak til að bæta verslunar-
kjör fólks á félagssvæði KEA,
alls staðar þar sem því verður
mögulega við komið með tilliti
til byggðar,“ sagði Valur Arn-
þórsson, kaupfélagsstjóri
KEA, í viðtali við Dag, en á
næstunni ganga í gildi veruleg-
ar breytingar á dagvöruverslun
félagsins.
Meðal þeirra breytinga sem
gerðar verða eru þær, að fleiri
búðir munu bjóða upp á kjör-
markaðsverð á vörum en áður,
en til þessa hefur það nær ein-
göngu verið í Hrísalundi. Þær
verslanir sem við bætast að þessu
leyti eru útibúið í Sunnuhlíð og
á Byggðavegi, eftir að stækkun
þess er lokið. Pá verða útibú
kaupfélagsins á Dalvík, í Ólafs-
firði og á Siglufirði rekin með
svipaðri verðstefnu, þannig að
segja má að markaðsverslanir
félagsins verði þá orðnar sex
talsins.
Svo þetta sé unnt verður að
beita hagræðingu í verslunar-
rekstrinum og verða litlu búðirn-
ar í Hlíðargötu 11 og Strandgötu
25 lagðar niður um næstu mán-
aðamót í því skyni. Kjörbúðin í
Kaupangi hefur hætt starfsemi
vegna þess að ekki náðust samn-
ingar um áframhaldandi leigu á
húsnæðinu. Nánar er fjallað um
þessar breytingar á bls. 4 í blað-
inu í dag. HS
Framleiða
jarðvegs-
bætiefni
úr skelinni
Hjá rækjuverksmiðjunni Mel-
eyri hf. á Hvammstanga eru
nú hafnar tilraunir með að
framleiða jarðvegsbætiefni úr
skelinni sem til fellur vegna
hörpudiskveiðanna.
Að sögn Magnúsar Sigurðsson-
ar, framkvæmdastjóra fyrirtækis-
ins þá er þessi framleiðsla nýhaf-
in og niðurstöður um ágæti jarð-
vegsbætisins liggja því enn ekki
fyrir. Aðferðin við framleiðsluna
er sáraeinföld. Skelin er möluð í
kvörn og hugmyndin er síðan sú
að bændur og aðrir geti komið og
keypt mulninginn fyrir sáraiitla
upphæð. Skelin er mjög auðug að
kalki og stuðlar að því að sýrustig
jarðvegsins verði sem best auk
þess sem talið er að tún verði
mun þéttari og betri á eftir.
Sjá viðtal við Magnús Sigurðsson
í opnu. - ESE
Magnús Sigurðsson og tveir starfsmenn Meleyrar hf. virða skeljamulninginn fyrir sér. Mynd: ESE.
Sverrir Hermannsson, iðnaðarráðherra:
Mitt síðasta verk
- að láta byggja álverksmiðju við Eyjafjörð ef
dreifingarspá vegna álvers verður óhagstæð
- Fulltrúar Alcan koma til
landsins 26. júní og þá verður
Iitið á staðinn. Sjálfum sýnist
mér þetta afar álitlegur kostur
og ég bind miklar vonir við að
þetta fyrirtæki verði að veru-
leika. Það myndi verka sem
vítamín í allar æðar á svæðinu.
Þetta sagði Sverrir Hermanns-
son í viðtali við Dag er hann var
spurður að því hvað stóriðjumál-
um við Eyjafjörð liði. Sverrir var
fyrst að því spurður hvort dreif-
ingarspá fyrir staðinn lægi fyrir.
- Nei, en núna höfum við pen-
inga til að ráðast í það verkefni af
fullum krafti og það verður unnið
við þessa dreifingarspá í sumar.
Þá munu liggja fyrir ótal upplýs-
ingar, bæði um veðurfar og
strauma og þá sjáum við hvað er
rétt í þessu máli. Hitt er það að
það eiga eftir að koma einhverjir
garpar og láta sem svo að þetta
verði eiturspúandi eimyrja. Þess-
ir menn eru staðráðnir í að vera
á móti þessu hvað sem allri skyn-
semi líður. Ég óttast það ekki.
Ég held að það sé svo mikið al-
mennt fylgi með stóriðjuáform-
um að verksmiðja verði byggð ef
dreifingarspáin segir að það verði
í lagi. Það er forsendan.
- Verður ekkert byggt ef
dreifingarspáin verður neikvæð?
- Ef rannsóknir benda til þess
að hætta sé á ferðum þá ætla ég
ekki að reisa verksmiðju við
Eyjafjörð. Það verður mitt síð-
asta verk. Við höfum nóga staði
fyrir stóriðju annars staðar en
það væri auðvitað mikið áfall fyr-
ir atvinnulíf í Eyjafirði og á
Norðurlandi ef ekki verður hægt
að reisa þessa verksmiðju, sagði
Sverrir Hermannson, iðnaðar-
ráðherra. - ESE
„Hann
segist
græða
vel á
okkur
sam f
- bls. 2