Dagur - 23.05.1984, Blaðsíða 9

Dagur - 23.05.1984, Blaðsíða 9
23. maí 1984 - DAGUR - 9 „Stefnum ekki annað en a toppmn — segir Halldór Áskelsson „Slagurinn við Skagamenn Ieggst ágætlega í mig,“ sagði Þórsarinn Halldór Askelsson er við ræddum við hann um leik Þórs og Akraness sem verður á Þórsvelli í kvöld. „Úrslitin í leik okkar við KA voru geysilega mikilvæg, það er ekki lítils virði að byrja með 3 stig eftir fyrsta leik og að sjálf- sögðu stefnum við að sigri gegn Akranesi og þá gætum við hugs- anlega orðið einir í efsta sætinu með 6 stig eftir 2 umferðir ef okkur tekst að leggja þá.“ - Nú spáðu forsvarsmenn 1. deildar liðanna ykkur ekki mikilli velgengni, þið höfnuðuð í 8. sæti í spá þeirra. „Þessi spá var ekki hagstæð fyrir okkur en ég held að þetta þjappi okkur bara saman. Við tökum ekki mark á þessu enda kemur ekki til greina að við verð- unt svona neðarlega, við stefnum ekki neitt annað en á toppinn,“ sagði Halldór. Sigur hjá Magna á Reyðarfirði Halldór Askelsson. „Við erum bara brattir enda þýðir ekkert annað,“ sagði Jón Ingólfsson hjá Magna á Greni- vík, en Magni vann Val á Reyðarfirði í fyrsta leik lið- anna í 3. deild. Þessi leikur var sá eini í Norður-Austurlands- Nói Björnsson fyrirliði Þórs sem fékk að sjá rauða spjald- ið hjá Friðjóni Hallgrímssyni dómara í leik KA og Þórs um helgina mun leika með Þór gegn íslandsmeisturum Akra- ness á Þórsvelli í kvöld. Aganefnd KSÍ átti að koma saman til fundar í gær- kvöld og þar hefur væntan- lega verið staðfest að Nói muni vera í leikbanni gegn Þrótti um næstu hclgi, en sá leikur fer fram í Reykjavík. Nokkur eftirvænting er ríkjandi fyrir leik Þórs og Akraness sem fram fer í kvöld á Þórsvelli. „Við eig- um að geta unnið Skaga- menn ef okkur tekst vel upp, við unnum þá á Akranesi í fyrra en hefur reyndar ekki gengið vel með þá á heima- velli yfirleitt,“ sagði Guð- mundur Sigurbjörnsson for- maður knattspyrnudeildar Þórs er við ræddum við hann. Bikarkeppnin hefst í kvöld riðli um helgina, öðrum leikjum var frestað. Valsmenn léku undan þéttings- vindi í fyrri hálfleik og sóttu nokkuð stíft. Áttu þeir m.a. skot í stöng og þverslá en inn vildi boltinn ekki. í síðari hálfleik snerist dæmið við, Magnamenn tóku leikinn í sínar hendur og sóknir þeirra buldu á marki Vals. Hringur Hreinsson skoraði fyrra mark Magna og hið síðara var nokkuð sérkennilegt. Logi Einarsson markvörður Magna tók útspark inn í vítateig Vals, boltinn strauk þar kollinn á ein- um varnarmanni og þeyttist af honum í netið. Úrslitin því 2:0 fyrir Magna. í gær barst okkur loksins í hendur Mótabók KSÍ og sam- kvæmt þeirri merku bók er nóg um að vera á knattspyrnu- sviðinu næstu daga. í gærkvöld hófst 2. umferð 1. deildar með leik Víkings og Vals, og í kvöld eru þrír leikir á dagskrá. Þór mætir Akranesi á Þórsvelli kl. 20, KA-menn halda til Keflavíkur og leika gegn ÍBK og KR og Breiðablik leika í Laugardal. Á fimmtudag leika svo Fram og Þróttur Bikarkeppni KSÍ hefst í kvöld. Á Grenivík leika Magni og Tindastóll kl. 20, Völsungur og Leiftur leika á Húsavík og Vor- boðinn og Vaskur eigast við á KA-velli. Allir þessir leikir hefj- ast kl. 20 Á laugardag fá KA-menn lið Víkings í heimsókn og verður sá leikur líklega á grasvelli KA kl. 14. Þórsarar halda suður og leika STADAN Staðan í 1. deild íslandsmóts- ins í knattspyrnu eftir leiki 1. umferðar er þessi: gegn Þrótti á sunnudaginn kl. 20. Við segjum nánar frá léikjum helgarinnar í blaðinu á föstudag. Reiðskólinn Aðalbóli Námskeið verða sem hér segir: í júlí- og ágústmánuði fyrir börn og unglinga sem verða í heimavist. 8.-16. júlí, 17.-25. júlí, 26. júlí-4. ágúst, 8.-16. ágúst. Vinsamlegast pantið pláss sem allra fyrst og staðfestið fyrri pantanir. Uppl. í síma 43529. Höskuldur Þráinsson. KR-Víkingur Valur-ÍBK Þróttur-UBK Akranes-Fram KA-Þór Þór Akranes KR Víkingur Valur ÍBK Þróttur UBK Fram KA 1 0 0 1 0 0 0 1 0 0 1 0 0 1 0 0 1 0 0 1 0 0 1 0 0 0 1 0 0 1 2:1 1:0 1:1 1:1 0:0 0:0 0:0 0:0 0:1 1:2 1:1 0:0 0:0 1:0 1:2 3 3 1 1 1 I 1 1 0 0 Annað kvöld er 9 holu mót hjá Golfklúbbi Akureyrar, og um helgina sem í hönd fer verða þar tvö mót. Nú hafa sumarflatir og teigar verið tek- in í notkun að Jaðri og lítur völlurinn hið besta út miðað við árstíma. Mótið annað kvöld er svokall- að „videómót“ og er haldið í því skyni að fjármagna kaup klúbbs- ins á videó- og sjónvarpstæki sem klúbburinn hefur eignast. Leikn- ar verða 9 holur með fullri forgjöf. Ræst verður út kl. 16-18. Á laugardag er „four ball - best ball“ keppni og leika þá tveir og tveir saman. Sú keppni hefst kl. 10 á laugardag og verða leiknar 18 holur Á sunnudag kl. 13 er fyrsta drengjamót sumarsins, 18 holu forgjafarkeppni. Orlofshús SIBS Akureyrardeild SÍBS hefur til ráðstöfunar orlofs- hús á Þingvöllum og í Hraunbúðum í Grímsnesi tímabilin 1.-16. júní og 30. júní-14. júlí nk. Húsin verða leigð til vikudvalar. Þeir félagar f deildum SÍBS við Eyjafjörð, sem hafa áhuga á dvöl í orlofshúsum hafi samband við Sigrúnu Bjarnadóttur í síma 96-21066 eftir kl. 19. Aburðarkaupendur Þar sem áburðarafhendingu lýkur 30. maí nk. eru þeir sem eiga ótekinn pantaðan áburð, vinsamlegast beðnir að sækja hann fyrir lok mánaðarins. Kaupfélag Eyfirðinga.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.