Dagur - 20.08.1984, Qupperneq 3
20. ágúst 1984 - DAGUR - 3
ihÉmi
wmman
mmmmmmmw
7/7/7//////;://;7/////7/77////
jijiijjijilijjjjji
•/:/::;/:
''iififpffÍ!:;:!.
—
IH®SwJI/mW
mllliliiillm
iiiiiiliiiiu
uiÍuiiiuliiiÍ
Flugleiðir kaupa
tvær DC-8 vélar
Ein af DC-8 vélum Flugleiða.
Vegna áætlunarflugs Flugleiða
yflr Norður-Atlantshafið leigði
félagið í vor tvær DC-8-63
flugvélar, sem áður voru í
rekstri hollenska flugfélagsins
KLM. Jafnframt var samið um
heimild til kaupa á þeim vélum
á mjög hagstæðum kjörum.
Stjórn Flugleiða hefur nýlega
ákveðið að nýta þessa kaupheim-
ild, og mun hún taka gildi 1. nóv-
ember nk. Þessar flugvélar eru
nú þegar á íslenskri skrásetningu
og bera einkennisstafina TF-FLU
og TF-FLV. Þær hafa hvor um
sig sæti fyrir 249 farþega. Frá því
að Flugleiðir tóku við þessum
tveimur vélum í mars og apríl sl.
hefur þeim verið flogið yfir 3.600
flugtíma. Hámarksnýting varð á
annarri flugvélinni í júlí en þá var
flugvélinni flogið samtals í 503
klst. eða að meðaltali 16,2 klst. á
hverjum degi.
Þar sem þessar flugvélar full-
nægja ekki ákvæðum þeirra há-
vaðareglna, sem gildi taka í
Bandaríkjunum frá nk. ára-
mótum, er stefnt að því að þær
verði búnar viðurkenndum hljóð-
deyfum, þegar þeir verða fáan-
legir, væntanlega síðar á árinu
1985. Flugleiðir er eitt þeirra 82
flugfélaga sem sótt hafa um tíma-
bundna undanþágu frá hávaða-
reglum, m.a. til þess að brúa það
bil þar til viðurkenndir hljóð-
deyfar verða tilbúnir.
Eins og skýrt var frá í byrjun
maí ákvað stjórn Flugleiða að
selja tvær DC-8 þotur, TF-FLB
og TF-FLE, til bandarísks
flugfélags. Afhending annarrar
þotunnar, TF-FLE, hefur nýlega
farið fram, en hin, TF-FLB,
verður afhent hinum nýju eig-
endum í október nk.
Báðar þessar flugvélar eru af
gerðinni DC-8-63CF, þ.e. ýmist
er hægt að nota þær til farþega-
flutninga eða breyta farþegarými
í fraktrými. Eru þoturnar því
búnar stórum fraktdyrum. Eftir-
spurn eftir þessari gerð af DC-8
jókst skyndilega í vor, með til-
svarandi verðhækkunum, og var
ákvörðun um sölu vélanna tekin
með hliðsjón af því.
Tilkynning
frá Stofnlánadeild
landbúnaðarins
Umsóknir um lán vegna framkvæmda á árinu
1985 skulu hafa borist Stofnlánadeild landnúnaö-
arins fyrir 15. september næstkomandi.
Umsókn skal fylgja teikning og nákvæm lýsing á
framkvæmdinni, þar sem meðal annars er til-
greind stærð og byggingarefni.
Ennfremur skal fylgja umsögn héraðsráðu-
nautar, skýrsla um búrekstur og framkvæmda-
þörf, svo og veðbókarvottorð.
Þá þurfa að koma fram í umsókn væntanlegir
fjármögnunarmöguleikar umsækjanda.
Sérstaklega skal á það bent að þeir aðilar
sem hyggja á framkvæmdir í loðdýrarækt árið
1985, þurfa að senda inn umsóknir fyrir 15. sept-
ember nk. svo þeir geti talist lánshæfir.
Þá skal einnig á það bent að bændur, sem hyggj-
ast sækja um lán til dráttarvélakaupa, þurfa að
senda inn umsóknir fyrir 31. desember nk.
Eldri umsóknir falla úr gildi 15. september
næstkomandi, hafi deildinni eigi borist skrifleg
beiðni um endurnýjun.
Reykjavík 10. ágúst 1984.
Búnaðarbanki íslands
Stofnlánadeild landbúnaðarins.
Toshiba
örbylgjuofnar
5 stærðir. Verð frá kr. 10.580,-
Komið og gerið kjarakaup í nýju
versluninni Raf í Kaupangi.
M ■■■ NÝLAGNIR
wHár s™
Kaupangi v/Mýrarveg. Simi 26400.
Verslið Itjá fagmanni.
<■-----------------------------------■>
Norðlendingar
Aðalfundur SUNN
samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi
verður haldinn að Víðihlíð í
Vestur-Húnavatnssýslu 1. og 2. september.
Fundarstörf hefjast laugardaginn 1. sept. kl. 13.00
og um kvöldið verður kvöldvaka í samkomuhúsinu.
Á sunnudag verður farið í ferðalag um
Vestur-Hóp og Vatnsnes.
Svefnpokapláss og eldunaraðstaða á staðnum.
Allir velkomnir.
Stjórnin.