Dagur - 20.08.1984, Blaðsíða 12
ikI:I«
MONRO-MATIC ®
SHOCK ABSORBER
HÖGGDEYFAR
í FLESTA BÍLA
Sr. Jón
Helgi
kjörinn
Séra Jón Helgi Þórarinsson
var kjörinn prestur í Dalvíkur-
prestakalli, en atkvæöi í prest-
kosningum þar voru talin fyrir
helgina.
A kjörskrá í prestakallinu voru
1.087. Atkvæði greiddu 884 eða
81%. Auðir seðlar voru 4 og
ógildir 4. Sr. Jón Helgi Þórarins-
son hlaut 527 atkvæði en séra Jón
Þorsteinsson 349 atkvæði. Kosn-
ingin var lögmæt.
Mikið
tínt af
berjum
um helgina
Berjaspretta er góð víðast hvar á
Norðurlandi, samkvæmt því sem
Dagur hefur fengið upplýsingar
um. Um helgina var víða krökkt
af fólki í berjamó, t.d. við
Árskóg, enda var þar mikið um
ber. Algengt var að hver maður
hefði um 10 lítra af berjum eftir
um það bil 5-6 stunda tínslu. Þar
var bæði að finna bláber og aðal-
bláber. Einnig var margt um
manninn í skógræktargirðingum,
sem voru opnaðar fyrir berja-
tínslu um helgina. Blaðið hafði
einnig fregnir af fólki sem fór út
á Flateyjardal, en hafði ekki er-
indi sem erfiði, því þar rigndi
mikið af og til í gær og þar að
auki virtist ekki mikið um ber,
a.m.k. duttu ferðalangarnir ekki
( fengsælan berjamó.
Gæsa-
veiði-
tíminn
hafinn
- Sumir veiðimenn
gátu ekki beðið
Sjúkraþjálfi á Bjargi að störfum. Sjúklingurinn er ungur að árum og mamma var með til halds og trausts.
Mynd: KGA.
Gæsaveiðitímabilið hefst í dag,
20. ágúst, þannig að frétt Skot-
veiðifélagsins um siðlaust dráp á
gæsum í sárum var fullseint á
ferðinni, þó hún ætti fullan rétt á
sér. Og það virðist vera full þörf
á slíkum varnaðarorðum, því
blaðið hafði fregnir af því að gæs-
ir hefðu verið drepnar í sárum og
það í talsverðum mæli; í Eyja-
firði, á Skjálfanda og í Öxarfirði,
svo dæmi séu nefnd. Samkvæmt
upplýsingum blaðsins voru dæmi
um það að veiðimennirnir eltu
gæsirnar uppi á trillum eða
hraðbátum. Þessi siðlausa veiði-
aðferð mun hafa gefið góðan ár-
angur, jafnvel gæsir í tugavís á
bát.
Verður endurhæfingarstöð Sjálfsbjargar lokað?
Við erum komnir
í greiðsluþrot“
- segir Valdimar Pétursson framkvæmdastjóri
„Við erum kontnir í greiðslu-
þrot og fáum cngin svör við
málaleitun okkar um að ríkið
taki þátt í hallarekstrinum,“
sagði Valdimar Pétursson
framkvæmdastjóri Sjálfsbjarg-
ar á Akureyri, en Sjálfsbjörg
hefur skrifað félagsmálaráðu-
neytinu bréf þar sem farið er
fram á að ríkið taki þátt í halla-
rekstri endurhæfingarstöðvar
félagsins á Akureyri á sl. ári.
„Hallinn á rekstri endurhæf-
ingarstöðvarinnar á sl. ári nemur
einni milljón króna,“ sagði
Valdimar. „Endurhæfingarlögin
féllu úr gildi um síðustu áramót
og gildi tóku lög um málefni fatl-
aðra, og þar er gert ráð fyrri
öðrum hætti á greiðslu til svona
stöðva en áður var. Það yrði þá
um að ræða beina fjárveitingu
samkvæmt fjárhagsáætlun. Lögin
um endurhæfingu gengu hins
vegar út á það að XA yrði greiddur
af rekstraraðila og % af ríkinu.
„Við sitjum því uppi með hall-
ann frá í fyrra sem er um 1 millj-
ón króna og höfum ekkert fengið
út á það. Þá hefur það gerst að
endurhæfingarlögin heyrðu undir
félagsmálaráðuneytið en lögin
um málefni fatlaðra skiptast á
milli þess ráðuneytis og heil-
brigðisráðuneytisins. Endurhæf-
ingarstöðin lendir þvt' undir heil-
brigðisráðuneytinu. Þar er þess-
um vanda hins vegar vísað til fé-
lagsmálaráðuneytisins. Við erum
því bitbein þarna á’milli.
Við erum í heilsugæslugeiran-
um og hljótum að ætlast til þess
að ríkið standi á bak við okkur í
þeim málum. Félagið hefur enga
sjóði til að fara í til þess að reka
þetta áfram á þennan hátt og þá
segir það sig sjálft að þetta stöðv-
ast ef ríkið leggur ekki sitt af
mörkum," sagði Valdimar. gk-.
Það fer heldur kólnandi,
tjáði Magnús Ólafsson
veðurfræðingur okkur í
morgun. Hann sagði að
hitinn myndi fara niður
fyrir 20 gráður. Vindátt-
in mun snúast eitthvað
og verður trúlega að
vestan, en það verður
bjartviðri áfram.
# Áróðurs-
meistarar
Þjóðviljans
Áróðursmeistarar Þjóðviljans
og Alþýðubandalagsins eru
snilllngar í að koma ár sinni
fyrir borð, sérstaklega þegar
höfðað er til kjara verkafólks.
Skiptir þá engu máli þótt
staðreyndum sé örlitið hag-
rætt í fréttum. Gott dæmi um
þetta er frétt í Þjóðviljanum á
föstudaginn þar sem segir
yfir þvera baksíðuna: „Komu
í veg fyrir kjarabætur -
Sjálfstæðismenn og Fram-
sóknarflokkurinn sameinuð-
ust í bæjarstjórn Akureyrar -
Synjuðu Einingarmönnum
um leiðréttingar á launum."
Sannieikurinn er hins vegar
sá, að erindi Einingar um
hækkun á kauptöxtum ákveð-
inna stétta var ekki synjað í
bæjarstjórn. Hins vegar var
erindinu vísað til bæjarráðs
og kjaranefndar með tilmæl-
um um að teknar yrðu upp
samningaviðræður við Ein-
ingarmenn um „launauppbót
til þessa fólks þar til nýir
samningar hafa verið gerðir“,
eins og segir orðrétt í tillögu
sem Sigurður Jóhannesson
og Gunnar Ragnars fluttu á
fundinum - og fékk að lokum
stuðning fulltrúa Alþýðu-
bandalagsins. En staðreyndir
skípta Þjóðviljann ekki máli
þegar höfðað er til tilfinninga
láglaunafólks.
'g (sr IJT ðJi
IbS l Jlil uijlI
# Verða þau
rekin
úr nefndinni?
Þetta Einingarmál hafði hins
vegar átt sína forsögu, eins
og fram hefur komið í fréttum
Dags. M.a. hafði kjarasamn-
inganefnd hafnað endur-
skoðun á samningi Akureyr-
arbæjar og Einingar, enda
hafi verið full samstaða um
hann milli samningsaðila á
sínum tíma og þar að auki
hefði Eining sagt samningum
upp miðað við 1. september.
Það væri þvi Ijóst að samn-
ingaviðræður þessara aðila
hæfust á næstunni. Sam-
þykkir þessari ákvörðun voru
m.a. Heimir Ingimarsson, full-
trúi Alþýðubandalagsins og
Sigfríður Þorsteinsdóttir, full-
trúi Kvennaframboðsins.
Heyrst hefur að samherjar
þeirra séu ekki par hrifnir af
slíku framferði, sem falli ekki
f góðan jarðveg hjá illa laun-
uðum konum og körium.
Þess vegna eigi þau að víkja
úr nefndinni umsvifalaust.
Það var raunar tilkynnt á síð-
asta bæjarstjórnarfundl, að
Sigfríður Þorsteinsdóttir
hefði vikið úr nefndinni fyrir
Þorgerðl Hauksdóttur. Heimir
heldur hins vegar sæti sínu
þar enn.