Dagur


Dagur - 20.08.1984, Qupperneq 5

Dagur - 20.08.1984, Qupperneq 5
20. ágúst 1984 - DAGUR - 5 Minning Margrét Hallgrímsdóttir - Kveðja frá Zontaklúbbi Akureyrar Hinn 23. júlí sl. kvöddum við vinkonu okkar Margréti Hall- grímsdóttur. Hún lést í Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri 18. þessa mánaðar eftir stranga bar- áttu við manninn með ljáinn. Margrét var fædd á Akureyri 13. desember 1916, dóttir hjón- anna Hallgríms Davíðssonar verslunarstjóra og Sigríðar Davíðsson, fædd Sæmundssen. Hún ólst upp í foreldrahúsum ásamt fjórum systkinum á miklu myndar- og menningarheimili, og það bar hún með sér til æviloka. Látin voru á undan Margréti, Ari bróðir hennar og systirin Lena, sem einnig var ágætur félagi í Zontaklúbbi Akureyrar. Eftirlif- andi bræður hennar eru Þorvald- ur og Pjetur. Mestan hluta ævi sinnar vann Margrét við verslunarstörf. Hún var fjöldamörg ár starfsmaður í versluninni „Onnu og Freyju" hér í bæ, en setti síðan á stofn í félagi við Lenu systur sína „Hannyrðaverslunina Dyngju“ sem hún rak til ársins 1980. Þá tók hún að sér starf föndur- kennara á Kristnesspítala og vann þar þangað til í ársbyrjun 1984. Henni féll föndurstarfið vel, enda var hún mjög fær í öllum hannyrðum. Ung að árum gekk Margrét í Kvenskátafélagið Valkyrjuna á Akureyri. Þar var hún fljótlega valin til forystu, og var hún fé- lagsforingi Valkyrjunnar um 20 ára skeið. Síðustu árin starfaði hún fyrir St.Georgs Gildið, sem er félag eldri skáta, og var í for- svari fyrir það félag meðan kraft- ar entust. Margrét varð félagi í Zonta- klúbbi Akureyrar 27. mars 1959. Par var hún okkur ævinlega til hvatningar og lagði lið öllum góðum málefnum. Hún var rösk og ósérhlífin, svo að af bar, og einnig hugmyndarík og góður skipuleggjari. Komu þessir eigin- leikar hennar okkur oft vel, eink- um þegar við vorum í fjáröflun- arhugleiðingum fyrir klúbbinn. Ekki má gleyma að geta gestrisni þeirra systra Margrétar og Lenu. Gott var að sækja þær heim, og stundum tóku þær fyrir okkur á móti erlendum gestum klúbbsins á heimili sínu Aðalstræti 19 með miklum glæsibrag, enda voru þær báðar frábærar húsmæður. Margrét var formaður Zonta- klúbbs Akureyrar árin 1964-1965 og 1972-1973 og gegndi fjöl- mörgum öðrum trúnaðarstörfum fyrir klúbbinn, sem of langt yrði upp að telja. Margrét, elskulega vinkona. Við þökkum þér 25 ára samfylgd af heilum hug. Við erum auðugri eftir að hafa þekkt þig. Heiðar- leiki þinn, hreinskilni og heilbrigt lífsviðhorf hafa haft mannbæt- andi áhrif á okkur. Við sögðum í upphafi þessara orða, að þú hefðir látist eftir harða sjúkdómsbaráttu. Enginn sá þó á þér, að baráttan væri erfið. Engin okkar sá þér bregða í banalegunni. Þegar við heim- sóttum þig í sjúkrahúsið, jafnan ein í senn til að þreyta þig ekki um of, varst þú alltaf hressari að- ilinn. Og nú þegar baráttunni er lokið, óskum við þér góðrar ferð- ar inn í ókunn sólarlönd æðra til- verustigs. Vandamönnum Margrétar vottum við okkar dýpstu samúð. Zontasystur í Zontaklúbbi Akureyrar. NORRÆNA SUNDKEPPNIN 1984 Kaupið sundmerkin Orgel til sölu Til sölu er orgel úr Hríseyjarkirkju. Framleiöandi er Jóh. P. Andersen & Co. Ringkobing, og er þaö sex og hálf rödd. Mjög vel útlítandi. Upplýsingar í sima 61702 fram til kl. 17 og í síma 61717 á kvöldin fram á fimmtudag 16. ágúst. Þar á eftir í síma 61731 og 61740. Atvinnutækifæri Til sölu er leiktækjastofa á góðum stað í bænum, vel búin tækjum, m.a. billjardborði. Afhending og greiðsluskilmálar eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar á skrifstofunni. Fasteignasala Ásmundar S. Jóhannssonar Brekkugötu 1, sími 21721 Sölumaður Ólafur Þ. Ármannsson, heimasími 24207. Sameiginlegir viðtalstímar þingmanna Norðurlandskjördæmis eystra Alþingismenn Norðurlandskjördæmis eystra (þingmenn allra flokka) verða sameiginlega til viðtals fyrir sveitarstjórnarmenn og forsvars- menn samtaka og fyrirtækja og aðra, sem bera vilja upp erindi sín við þingmenn, á eftir- töldum stöðum: Á Raufarhöfn fimmtudag 6. september. Á Húsavík föstudag 7. september. Á Akureyri mánudag og þriðjudag 10. og 11. september. Þeir.sem óska eftir að fá viðtal við þingmanna- hópinn, eru vinsamlega beðnir að snúa sér til þeirra, sem hér eru taldir, og munu þeir sjá um niðurröðun viðtalsbeiðna: Valgarður Baldvinsson bæjarritari á Akureyri tekur á móti beiðnum af Akureyrar- og Eyja- fjarðarsvæði að meðtöldum 3 vestustu hrepp- um Suður-Þingeyjarsýslu. Bjarni Aðalgeirsson bæjarstjóri á Húsavík annast um viðtalsbeiðnir úr Suður-Þingeyjar- sýslu (að öðru leyti en að framan greinir) og frá Húsavík. Þess ber að geta, að þingmenn verða staddir í Mývatnssveit laugardaginn 9. september í boði sveitarstjórnar þar og geta Mývetningar því haft samband við Arnald sveitarstjóra varðandi viðtöl við þingmanna- hópinn, ef þeir óska. Gunnar Hilmarsson sveitarstjóri á Raufar- höfn sér um viðtalsbeiðnir úr Norður-Þingeyj- arsýslu. kemur út þrisvar í viku, mánudaga, midvikudaga og föstudaga Jónas Róbertsson, Þór Nu er það KR - Allir á völlinn Kristján Kristjánsson, Þór ÞÓR-KR mánudag 20. ágúst kl. 19.00 Hvetjum Þór til sigurs í barattunni adidas -i- VÖRí 8ATASMIÐJA

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.