Dagur - 20.08.1984, Side 9
100 ára byggð í Ólafsfjarðarhorni:
20. ágúst 1984 - DAGUR - 9
Vegleg afmælishátíð
„Við höfum heyrt að það sé
mikill áhugi hjá brottfluttum
Ólafsfirðingum að koma heim
og taka þátt í þessari hátíð með
okkur og það er vonandi að
fólk fjölmenni til Ólafsfjarðar
þá daga sem hátíðin stendur
yfir,“ sagði Guðbjörn Arn-
grímsson, en hann er formaður
nefndar sem sér um hátíðahöld
í tilefni af 100 ára byggð í Ól-
afsfjarðarhorni. Hátíðin hefst
nk. laugardag og stendur yfir í
8 daga.
Minnst er upphafs byggðar í Öl-
afsfjarðarhorni sem fyrr sagði, en
það er staðurinn þar sem kaup-
staðurinn stendur nú, en byggð
er reyndar mun eldri í Ólafsfirði.
Það var Ólafur Gíslason sem
fyrstur byggði sér hús í Horninu
eins og það er jafnan kallað og
hóf að stunda þaðan sjósókn.
Ólafur var fæddur á Burstar-
brekku í Ólafsfirði en fluttist 16
ára gamall í Svarfaðardal þar sem
hann kynntist konuefni sínu. Þau
fluttu síðar í Hofshrepp í Skaga-
firði þar sem þau bjuggu í sárri
fátækt, en vorið 1884 fluttu þau í
Ólafsfjarðarhorn, reistu sér þar
hús og hófu búskap. Bæ sinn kall-
aði Ólafur Sandhól og er talið að
hann hafi staðið nálægt þar sem
nú er Kirkjuvegur 4.
Guðbjörn Arngrímsson for-
maður afmælisnefndarinnar sagði
í samtali við Dag að nefndin
hefði unnið mikið starf á undan-
förnum tveimur mánuðum til
þess að undirbúa hátíðina sem
best, og hefði nefndin haldið fjöl-
marga fundi. Má sjá það á
dagskrá hátíðarinnar hér á síð-
unni að ekkert hefur verið til
sparað að gera hana sem vegleg-
asta enda búast Ólafsfirðingar
við fjölmenni til bæjarins þá daga
sem hátíðin stendur yfir.
- í tengslum við afmælið er
unnið að útgáfu bókar sem vænt-
anleg er á markaðinn á þessu ári,
og ber hún heitið „100 ár í Horn-
inu“. Er það Friðrik Olgeirsson
kennari sem hefur unnið að bók-
inni og er hluti hennar liður í
lokaprófi hans í sagnfræði. Bókin
spannar yfir tímabilið 1883 til
1945, en það ár fékk Ólafsfjörður
kaupstaðarréttindi.
Laugardagur 25. ágúst:
Kl. 14.0(1 Knattspyrna l.eiftur-Þór Akureyri.
Sunnudagur 26. ágúst:
Kl. 14.00 Hátiðarmessa og hátíðin sett.
Kl. 15.00 Opnuð svning a munum og myudum
et'tir Ólafslirðinga i Gagnfræðaskólan-
um.
Kl. 21.00 Garðshornskvöld og Guðnnmdar.
Talað mál og tónlist af ýnisum toga.
Ilutt af Sigursveini. Erni. Magnúsi og
Helgu Magnúsarhörnum. Sigrúnu
Valgerði Gestsdóttur. Helgu Alfreðs-
dóttur og Guðmundi Ólalssvni.
Mánudagur 27. ágúst:
Kl. 21.00 Harmonikukvöid. dagskrá í umsjá
Félags harmonikunnenda í Eyjafirði og
Jóns Arnasonar ;i Syðri-Á.
Þriðjudagur 28. ágúst:
Kl. 21.00 Kvöldvaka. Dagskrá i umsjá Slvsa-
varnardeildar kvenna. kirkjukórs og
menningarmálanefndar
Miðvikudagur 29. ágúst:
Kl. 21.00 Kabarett Jon B. Gunnlaugsson. Siggi
I lelgi •»!>. leiklelagið sja um dagskrana
Fimmtudagur 30. ágúst:
Kl. 17.00 og 21.00 K\ikmuulasuiingar.
Föstudagur 31. ágúst:
Kl. 17.00 jþróttamót.
Kl 19.00 Fjolskylduhatíð i umsja l.eillurs.
Kivvanis. Sinavvik og skáta. Þar verður
varðeldur. grillveisla og margt l'leira.
Kl. 21.00 Breaksyning í Tjarnarborg. syningar-
flokktir lia Akureyri sýnir.
Kl. 21.30 l'nglingadiskó. aldursmörk 12 l(> ara
Laugardagur 1. september:
Kl. 10.00 Bæjakeppni í sk;ik milli Olalsljarðar.
Dalvikur. Sigluíjarðar og I Ijota.
Kl. 13.30 Firmakeppni hestamanna
K1 17.00 Barnaskemmtun á vegum skáta
K1 22.00 -0300 Dansleikur i Tjarnarborg.
hljómsveit Magnúsar Kjartanssonai
leikur lyrir dansi. söngvari er Jóhann
1 lelgason.
Nýtísku íbúðarhús setja svip á bæinn.
Guðbjörn Arngrímsson formaður afmælisnefndarinnar.
Ólafsfirðingar byggja afkomu sína að verulegu leyti sjávarútvegi.