Dagur - 10.09.1984, Blaðsíða 2

Dagur - 10.09.1984, Blaðsíða 2
2 - DÁGUR - 10. september 1984 Hlakkar þú til að byrja í skólanum? Jón Andri Sigurðarson: Ekkert ofsalega. Birgir Örn Tómasson: Nei, ekkert sérstaklega. Magnús Sæmundsson: Já, alveg rosalega. Birgir Birgisson: Nei, alls ekki. Elva Sturludóttir: Já. Nauðsynlegt að lengja ferðamannatímann - segir Kolbeinn Sigurbjörnsson formaður nefndar er vinnur að stofnun ferðamálasamtaka á Norðurlandi „Það eru alveg gífurlegir möguleikar ónýttir í ferða- mannaþjónustu og margar hugmyndir í gangi sem verið er að skoða. Ef vel er á spöð- unum haldið er hægt að lyfta grettistökum í þessari grein og við erum mjög bjartsýnir á framtíðina,“ það er Kolbeinn Sigurbjörnsson sem svo mælir, en hann er formaður nefndar sem boðaði til fundar á Hótel KEA í síðustu viku, þar sem einróma var samþykkt að stofna Ferðamálasamtök Norðurlands. Þetta var mjög sterkur fundur eins og Kol- beinn orðaði það og áhugi mjög mikill, að vísu sagðist hann hafa saknað þess að sjá sveitarstjórnarmenn ekki á meðal þátttakenda. Hvað um það við byrjuðum á að spyrja um tilurð þessarar nefndar er Kolbeinn er formaður fyrir. „Þetta byrjaði allt á þingi Fjórðungssambands Norð- lendinga á Raufarhöfn sem hald- ið var fyrir ári. Þá var samþykkt nauðsyn þess að stofna samtök ferðamálaaðila á Norðurlandi. Fjórðungssambandið boðaði síð- an 12 aðila víðs vegar að úr fjórð- ungnum á fund þar sem Birgir Þorgilsson frá Ferðamálaráði mætti, en hann hefur verið okkur mjög innan handar og aðstoðað dyggilega. Á þessum fundi var kosin nefnd og í henni sátu: Arn- aldur Björnsson Mývatnssveit, Auður Gunnarsdóttir Húsavík, Kristján Jónasson Akureyri, Júlíus Snorrason Dalvík, Bessi Þorsteinsson Blönduósi og ég var síðan kosinn formaður þessarar nefndar. Nefndin samdi drög að ýmsu því sem gera mætti í ferða- málum í fjórðungnum og var ákveðið að kynna þau sem víðast. Ég þeysti austur og vest- ur um sýslur og leitaði efjir áliti manna. Undirtektir voru mis- jafnar, það örlaði á því sums staðar að menn vildu ekki vinna þetta á landsfjórðungsgrunni en það voru í rauninni fáir. Miklu fleiri töldu að með þvf að vinna á svo breiðum grundvelli hefðum við öflugra tæki í höndunum heldur en ef skipt væri niður í smærri einingar.“ - Hvernig hyggjast ferðamála- samtökin beita kröftum sínum í framtíðinni? „Draumurinn er að fá starfs- mann sem myndi vinna að sam- eiginlegum hagsmunum þeirra er vinna að ferðamálum í fjórðungn-; um. Við munum gefa út alls kyns kynningargögn og dreifa þeim og það kemur í hlut starfs- mannsins að sjá um þá hlið, jafn- framt því að sjá um ráðgjöf til ferðamálanefnda. Við getum kallað þetta samhæfingu þar sem við virkjum kraftinn á einum stað og getum því veitt þyngri högg og stærri en hægt væri ef um minni einingar væri að ræða. En eitt meginverkefni samtakanna er að halda uppi áróðri fyrir nytsemi ferðaþjónustunnar. Ferðaþjón- usta er svo óáþreifanlegur hlutur að ráðamenn eru ekki opnir fyrir henni, það verður að sýna þeim með rökum hvað hægt er að gera og selja. Ég get sagt þér að ein- ungis í júlímánuði í ár voru fram- leidd 4 tonn af kaffi umfram það sem venjulegt er og það er allt vegna ferðamanna. Mikið af þessu kaffi er selt í bollatali og með álagningu þannig að gróðinn bara á kaffinu er gífurlegúr.1 En þetta er hlutur sem ekki sést það verður að benda á hann.“ - Nú hafið þið sótt um fjár- stuðning til ríkisins, en menn eru ekki á einu máli um gagnsemi þess. Vilja jafnvel halda því fram að sveitarfélög og fyrirtæki eigi al- farið að sjá um rekstur samtak- anna. Hvað segir þú um þá gagn- rýni? „Við viljum halda því fram að ferðaþjónustu megi bera saman við annan iðnað og ríkið hefur séð sér hag í því að halda úti iðn- ráðgjafa í hverjum fjórðungi. Við trúum því að ferðamálaráð- gjafi myndi ekki vinna minna gagn. Auk þess sem ríkið skilar ekki þeim peningum til ferða- mála sem því ber samkvæmt lögum. Ágóði af Fríhöfninni í Keflavík á að renna til ferða- mála, en það vantar mikið upp á að það standist. Við teljum því mjög eðlilegt að sækja um fjár- stuðning til ríkisins." - Eitthvað sérstakt sem þið leggið áherslu á öðru fremur? „Það er langtímamarkmið að Norðurland verði í beinum tengslum við umheiminn. Við ætlum að reyna að koma á beinu flugi við meginlandið. Ég tel að tilraunin sem gerð var í fyrra með beint flug til Kaupmannahafnar hafi verið mislukkuð. Skandinav- ar koma hingað ekki mikið sem al- mennir ferðamenn, þetta eru að stórum hluta ráðstefnugestir. Ferðamennirnir koma frá megin- landinu og Bretlandi, það er því skynsamlegra að fljúga til London. Best er að millilenda á Akureyri, það sparar áhafnar- skipti og hækkar nýtingartölu vélarinnar til muna,.“ - Hvað um lengingu ferða- mannatímabilsins? „Það er mjög mikilvægt atriði og samtökin munu vinna að því. Hver ferðamaður sem kemur utan ferðamannatímabilsins er okkur 7-falt mikilvægari en þeir sem koma á ferðamannatímabil- inu. Við fáum miklu meira út úr honum. Það fer dálítið eftir stað- háttum hvernig staðið verður að lengingu tímabilsins. Þeir staðir sem geta boðið upp á skíðaþjón- ustu munu leggja áherslu á það, aðrir staðir leggja áherslu á ráð- stefnuhald og þannig má lengi telja. Það eru uppi hugmyndir um að halda árlegt alþjóðlegt snjósleðarall hér en það þarf ein- hvern til að fylgja því eftir. Það þarf að prófa ýmsa hluti til að vita hvort þeir ganga og það kost- ar peninga. Það er slæmt þegar enginn vill leggja þá fram. Þá verður ekkert úr hlutunum. En eins og ég sagði í upphafi þá erum við ákaflega bjartsýnir á framtíðina og þessi fundur sem við héldum í síðustu viku lofar góðu um öflugt starf á komandi árum.“ -mþþ. Kolbeinn Sigurbjörnsson, umboðsmaður Útsýnar á Akureyri. Oþolandi ökulag í bænum Bæjarbúi hringdi: Ég vil skora á löggæslumenn að herða nú eftirlitið með ökulagi manna hér í bænum. Á flestum götum stunda menn kappakstur í tíma og ótíma þannig að gang- andi vegfarendum og sómakær- um bifreiðastjórum stendur stór hætta af. Ég vil sérstaklega benda á þetta nú þegar skólarnir eru í þann veginn að hefjast. Hvernig væri nú fyrir lögregíuna að mæla umferðarhraðann reglulega eins og gert hefur verið undanfarin ár. Þeir þurfa ekki annað en að beina radarnum út um gluggann á lögreglustöðinni, út á Þingvalla- strætið eða bregða sér niður í Brekkugötuna til að finna öku- níðingana. Svo er það annað. Er vita von- laust að ökumenn á Akureyri geti lært þá einföldu umferðarreglu að leggja ekki ökutækjum sínum þveröfugum megin á öllum götum. Ég átti leið um Hóla- brautina sl. föstudag og vitfirr- ingin fyrir utan áfengisverslunina var slík að ég hef aldrei séð ann- að eins. Ástandið var eins og risastórt umferðarslys.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.