Dagur - 10.09.1984, Blaðsíða 3

Dagur - 10.09.1984, Blaðsíða 3
10. septMnbw 1984 - DAGUR - 3 Toshiba örbylgjuofnar 5 stærðir. Verð frá kr. 10.580,- Komið og gerið kjarakaup í nýju versluninni Raf í Kaupangi. M ■ NÝLAGNIR BkAp s°; Kaupangi v/Mýrarveg. Sími 26400. Verslið hjá fagmanni. NLFA: Hlutavelta og 10 aura ganga Byggingarframkvæmdum Nátt- úrulækningafélags Akureyrar í Kjarnalandi hefur miðað vel í sumar. Þriðja hæð I. áfanga verð- ur steypt upp núna í september og er þá komin full hæð þess áfanga. Það fé sem unnið hefur verið fyrir í sumar er að mestu gjöf frá frábærum velunnara félagsins, sem lætur sig hag þess og fram- gang miklu skipta, mun það seint fullþakkað en gleymist ekki. Félagarnir hafa unnið ötullega í sumar, sem endranær, að öflun fjár til byggingarinnar og hefur umtalsvert fé safnast á þann hátt. Þótt húsið sé uppsteypt er ekki sagan öll, þakið er næsta átak, sem sinna þarf, og í það söfnum við nú af fullum krafti. Tvær söfnunarleiðir eru nú í undirbúningi, önnur er stórhluta- velta og vonum við að þeir sem leitað verður til taki vel á móti þeim, sem koma til að safna munum og leggi sitt af mörkum til að sem mest komi út úr þessari stórhlutaveltu. Hlutaveltan verður haldin í Húsi aldraðra sunnudaginn 16. sept. nk. kl. 3 síðdegis. Þar mun verða margt góðra muna og hvetjum við alla til að mæta og freista gæfunnar, og taka um leið þátt í að þakið komist á hressing- arheimilið í Kjarnalandi. Þennan sama dag 16. septem- ber fer fram 10 aura ganga í Kjarnaskógi og hefst hún kl. 1 e.h. Áætlað er að ganga í eina klukkustund. Bráðsnjallt er að taka þátt í þessari hressingar- göngu og skorum við á fólk að mæta vel, og leggja þar með fram skerf í þak á hressingarheimilið í Kjarna. Góða ferð í gönguna. Náttúrulækningafélag Akureyrar. Réttir á Norðurlandi Eyfírðingar og nærsveitamenn sjá fram á góða réttarhelgi um næstu helgi því þá verða hvorki fleiri né færri en 12 fjár- réttir víðs vegar í Eyjafjarðar- sýslu. Réttarskrá yfir helstu fjárréttir í Eyjafirði lítur svona út samkvæmt upplýsingum Ólafs Vagnssonar, ráðunauts: Akureyrarréttir, Reykárrétt í Hrafnagilshreppi, Þórustaðarétt í Glæsibæjarhreppi, Reistarárrétt í Arnarneshreppi og Árskógs- rétt, allar haldnar laugardaginn 15. september. Á sunnudag verð- ur svo réttað í Gljúfurárrétt í Höfðahverfi, Þverárrétt í Öng- ulsstaðahreppi, Borgarrétt í Saurbæjarhreppi, Þverárrétt í Öxnadal, Melarétt í Skriðu- hreppi, Tungurétt í Svarfaðardal og Reykjarétt í Ólafsfirði. Húnavatnssýslur Helstu réttir sem eftir eru sam- kvæmt yfirliti Búnaðarfélags ís- lands eru m.a. Auðkúlurétt í Svínadal, 14. og 15. september og Undirfellsrétt í Vatnsdal og Víðidalstungurétt í Víðidal sem báðar fara fram sömu daga. Ný bamafata- verslun á Akureyri Á fimmtudaginn 6. september var opnuð barnafatabúðin Börn- in okkar, að Brekkugötu 5 hér í bæ. Eigendur verslunarinnar eru Þórný Sigmundsdóttir og Guð- mundur Sigurbjörnsson. Við opnunina gengu börn fylktu liði umhverfis Ráðhústorg, með fána í höndunum hvar á var ritað nafn verslunarinnar. Eftir hringferð þessa klippti lítil dama á borða sem strengdur var fyrir dyrnar og þar með var verslunin formlega opnuð. Þórný var spurð hvort hún hefði verið með verslunarrekstur áður og sagðist hún ekki hafa komið nálægt rekstri verslunar áður, en unnið í verslun. Sagði hún að sig hefði lengi langað til að opna barnafataverslun og nú hefði draumurinn ræst. Einnig væri mikil þörf á svona verslun í bænum. Versla þau hjón með föt á kornabörn og upp í 14 ára aldur. Skagafjörður í dag er réttað í Reynistaðarétt í Skagafirði en aðrar réttir á næstu dögum eru t.d. Laufskálarétt í Hjaltadal 15. september, Mæli- fellsrétt í Lýtingsstaðahreppi, 16. september og Silfrastaðarétt í Akrahreppi þann 17. september. Þingeyjarsýslur Samkvæmt upplýsingum Stefáns Skaftasonar, ráðunauts í Straumnesi eru helstu réttir sem eftir eru í Þingeyjarsýslum þessar: Tjarnarrétt í Kelduhverfi er í dag. Hraunsrétt í Aðaldal á morgun. Illugastaðarétt í Fnjóskadal er 13. september svo og Víðikersrétt í Bárðardal. Mýrarrétt í Bárðardal og Bald- ursheimsrétt í Skútustaðahreppi eru 16. sept. Fótárrétt í Bárðar- dal 18. september og Reykjahlíð- arrétt er 19. september. - ESE. Nýkomið Plíseruð pils í litunum drappað, svart, vínrautt, grátt, brúnt og köflótt. Stakkar og Úlpur margar gerðir. Fóðraðar buxur á 6-10 ára. Peysur margar gerðir. Leikfimibolir ★ Leikfimibuxur Kkéíroerslw. Sigutðar Gubnmmissonarhf. HAFNARSTRÆTI 96 SÍMI 96*24423 AKUREYRI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.