Dagur - 10.09.1984, Blaðsíða 7

Dagur - 10.09.1984, Blaðsíða 7
6 - OAGUR - 10. september 1984 10. september 1984 - DAGUR - 7 Birgir ekki með I X Birfjir Mikaelsson sem hugiUst leika með Þór ; i 1. deild körliiholtans i vetur er larinn l'rá Aknreyri »g :etlar að leika nieö KK-ingiiiii í Í I l'rvalsdeildinni. I5ir|>ir er geysilega sterkur leikniaötir o<; hefði án elá styrkt Þórsliöiö injiig inikið. | Mra\ og [>að spurðist að hann hyggðist leika I tneð l>or fóru KK-ingar af stað sem ólmir | vjeru og |>eir linntu ekki lálununi l'yrr en |>eir voru búnir að hafa sitt frani. Birgir ætlaði í I s! óla á Akureyri, en hefur hætt við það og í 1 v.'luðu persónulegar ástæður einnig iim í t þ ð að hann fór úr bænum. Handknattieikur: Blikarnir koma í heimsókn Fyrstu handboltaleikirnir á keppnistímahil- inu fara fram á Akureyri um næstu helgi, en þá keinur lið Breiðahliks í heimsókn norður. Blikarnir inæta KA í íþróttahöllinni nk. föstudagskvöld kl. 20.30 og þeir leika síðan gegn Þór á sama stað kl. 14 á laugardaginn. Á sunnudug verður hraðmót þar sem KA, t>ór og Breiðabíik taka þátt ásamt liði ÍBA. Þetta hraðmót hefst í Höllinni kl. 13.30 á sunnudag. ÍBA-liðið verður skipað gömlum „refum“ sem hættir eru keppni opinherlega en það er samt langt frá því að þeir séu búnir að vera sem íþróttamenn. Heyrst hefur að þeir hyggist senda lið í íslandsmót leikmanna eldri en 30 ára, en eitthvað munu undirtcktir frá íþróttabandalagi Akureyrar hafa verið dræmar og óvíst hvort af því verður. Síðustu umferðir í 1. og 2. deild Nú er aðeins einni umferð ólokið í 1. og 2. deild íslandsniótsins í knattspyrnu og verða þeir leikir háðir um næstu helgi. í fyrstu dcild eru tveir leikir á dagskrá á föstudagskvöld, viðureign KR og Þróttar, og leikur KA og Fram sein fluttur hefur verið fram um einn dag. Hefst liunn á Akureyrarvelli kl. 18. A laugardag leika Akranes - Breiðablik og Víkingur- Keilavík en mótinu lýkur með leik Vals og Þórs á sunnudaginn. í 2. deild verður síðasta umferðin leikin á laugardag. Þá leika Skallagrímur - Tinda- stóíl, Víðir - Njarðvík, FH - Völsungur, KS I - ísafjörður og ÍBV - Finherji. | Eftir þessa helgi má segja að keppnistíma- bilinu sé Jokið, aðeins eftir landslcikir er- icndis, ísland á að leika gegn Skotlandi 17. október og Wales 14. nóvember. Tapaði gegn Breiðabliki 1:0 á föstudagskvöldið „Við vorum bölvaðir klaufar að vera ekki búnir að gera út um leikinn þegar Blikarnir skoruðu sigurmark sitt. Við vorum betri aðilinn í fyrri hálf- leik og alveg fram að markinu, en eftir að Blikarnir skoruðu voru þeir betri aðilinn, þeir losnuðu við spennuna“, sagði Njáll Eiðsson, fyrirliði KA eft- ir að KA hafði tapað 1:0 fyrir Breiðabliki á föstudagskvöldið. - Þar með er KA endanlega fallið í 2. deild eftir ársveru í þeirri fyrstu og er vissulega slæmt að missa liðið niður. Margir eru á þeirri skoðun að slakari lið séu í deildinni og þau haldi sæti sínu þar, en það eru stigin sem gilda og því verða KA-menn að kyngja hvort sem þeim líkar betur eða verr. Þegar KA féll í 2. deild 1982 gerðist það endanlega í leik þeirra gegn Breiðabliki á Kópa- vogsvelli eins og nú. Blikamir hafa alls hlotið 20 stig í deildinni núna, þegar ein umferð er eftir, 6 þeirra stiga eru á móti KA og 4 gegn Þór. Er því óhætt að segja að Akureyrarliðin hafi verið „gjafmild" við Blikana í sumar. Ef við víkjum að leiknum á föstudag þá voru KA-menn betri í fyrri hálfleik. Steingrímur Birg- isson, Ásbjörn Björnsson og Bergþór Ásgrímsson komust allir í marktækifæri en inn vildi bolt- inn ekki. Bergþór komst t.d. einn inn fyrir og lyfti yfir markmann- inn, en boltinn fór aðeins of hátt og datt ofan á markið. Á 55. mínútu gerðist það sem réði úrslitum þessa leiks endan- lega. Hafþór Kolbeinsson prjón- aði sig i gegn um Blikavörnina og átti aðeins markmanninn eftir, en skot Hafþórs fór yfir. Breiða- Víðir í fyrstu deild? Víðir Garði er svo gott sem búinn að tryggja sér sæti í 1. deild næsta keppnistímabil eft- ir 3:0 sigur á Einherja á Vopnafírði um helgina. Víðir hefur nú hlotið 30 stig, og á eftir heimaleik gegn UMFN sem liðið ætti að vinna, en þau lið sem geta náð Víði að stigum, ísafjörður og KS, eiga eftir að leika á Siglufírði. Vopnfirðingum þótti dómarinn í leik Einherja og Víðis vera hag- stæður fyrir gestina, og Einherjar sem fallnir eru í 3. deild máttu þola enn einn ósigurinn. Á Húsavík var hörkuleikur milli Völsungs og Skallagríms úr Borgarnesi. Þar komust gestirnir yfir 1:0, Jónas Hallgrímsson jafn- aði fyrir Völsung og Wilhelm Fredrikssen kom Völsungi yfir. Síðan fengu Skallagrímsmenn vítaspyrnu og jöfnuðu metin. Öll þessi mörk voru gerð í fyrri hálf- leik en Völsungar voru mun sterkari aðilinn í leiknum. Hvað eftir annað skall hurð nærri hæl- um við mark Skallagríms í síðari hálfleik, Völsungar áttu sláarskot trekk í trekk, en inn vildi boltinn ekki og úrslitin því 2:2. Þá var ekki minna fjör á ísa- firði þar sem ÍBÍ og ÍBV áttust við. Bæði liðin þurftu sigur til þess að eiga áframhaldandi möguleika á sæti í 1. deild og svo fór að það voru heimamenn sem hrósuðu 3:2 sigri. Á Sauðárkróki léku Tindastóll og KS og sigraði KS 2:1 í þokka- legum leik. Vegna þess að Dagur fór í prentun síðdegis á laugardag vegna yfirvofandi prentaraverk- falls, tókst okkur ekki að afla nánari upplýsinga af þeirri viður- eign. Birgir Viðar Halldórsson frá Reykjavík hreppti Bautabikar- inn í golfí, en um hann var keppt í síðustu viku, annað árið í röð. Bautabikarinn er veittur þeim sem nær bestum árangri í keppn- inni með forgjöf og Birgir lék á 64 höggum nettó af rauðum teig- um á Jaðarsvelli. í Öðru sæti varð Hallgrímur Arason, einn af eig- endum Bautans og sá sem hefur veg og vanda af þessu móti. Hann lék á 69 höggum en jafnir í 3.-4. sæti urðu Ragnar Lár og Kjartan Bragason. í Bautamótinu er einnig keppt án forgjafar og í þeirri keppni sá enginn við hinum snjalla kylfingi Baldri Sveinbjörnssyni, sem naut sín á rauðu teigunum. Baldur lék á 73 höggum. í öðru sæti varð Sigurður Runólfsson á 83 högg- um og Þorbergur Ólafsson sem var óheppinn að sögn, varð þriðji á 85 höggum. í mót þetta er boðið starfsfólki veitingahúsa, ferðaskrifstofa og blaðamönnum. Nokkuð á þriðja tug kylfinga mætti til leiks, þar af um helmingurinn af höfuðborg- arsvæðinu og er nokkuð víst að þessi keppni á eftir að njóta auk- inna vinsælda á komandi árum. Birgir Viðar og Hallgrímur Arason með Bautabikarinn glæsilega. Þrír af fremstu kraftlyftingamönnum Akureyrar. Flosi Jónsson, Kári Elíson og Freyr Aðalsteinsson. Þokkalegur árangur kraftlyftingamanna - á sýningarmóti á Dalvík Á undanförnum árum hafa kraftlyftingamenn á Akureyri kappkustað að kynna íþrótt sína og gert víðreist í þeim til- gangi. Farnar hafa verið keppnis- og sýningaferðir til Húsavíkur, Dalvíkur og Seyð- isfjarðar og reyndar í eitt sinn alla leið til Færeyja. Um síð- ustu helgi héldu þeir svo sýn- ingarmót í Iþróttahúsinu á Dalvík. Keppendur á mótinu voru fjór- ir talsins. í 75 kg flokki keppti Kári Elíson og lyfti samtals 610 kg (220 í hnébeygju, 160 í bekk- pressu og 230 í réttstöðulyftu). Kári átti ágæta tilraun við nýtt ís- landsmet í bekkpressu, 168 kg en sú þyngd fór þó ekki upp að þessu sinni. Freyr Aðalsteinsson keppti í 82.5 kg flokki og lyfti samtals 650 kg (240-150-260). Flosi Jónsson lyfti 610 kg í 90 kg flokki (240- 140-230). Síðast en ekki síst keppti Víkingur Traustason á mótinu og má segja að Víkingur hafi þarna verið svo til á heima- velli. Víkingur lyfti samtals 730 kg (300-160-270). - ESE. byrða þennan sigur úr því sem komið var. Þó komst Hafþór aftur innfyrir vörn Blikanna en Friðrik markvörður bjargaði þá glæsilega í horn. „Það er engu líkara en að fall- stimpillinn hafi fylgt okkur upp á síðkastið. Við höfum misst menn í leikbönn, talsvert hefur verið um meiðsli í liðinu og við höfum hreinlega ekki fengið það út úr leik okkar sem við eigum að geta sýnt“, sagði Njáll Eiðsson. Hann var að vonum óhress með fallið, en nú er bara að stefna að því að hafa dvölina í 2. deild stutta og stefna á 1. deildina aftur, KA- menn! Jónas Róbertsson skorar úr víti og Þórsarar ná forystunni. En það var þetta með Adam í Paradís... Þegar aðeins einni umferð er ólokið í 1. deildinni í knatt- spyrnu er algjörlega óljóst hvaða Iið það verður sem mun fylgja KA niður í 2. deild. Tvö þessara liða, Þór og Víkingur áttust við á Akureyri um helg- ina og úrslitin 1:1 þýða að þessi lið eru í nokkurri fallhættu ásamt Fram, Breiðabliki, KR og Þrótti. Úrslitin ráðast sem sagt ekki fyrr en í síðustu um- ferðinni sem leikin verður um næstu helgi. Leikur Þórs og Víkings var geysilegur baráttuleikur sem bar öll merki þess hversu mikilvægt var fyrir liðin að ná sigri. Þórsar- ar voru áberandi betri aðilinn í fyrri hálfleiknum, réðu þá að mestu leyti spilinu á vallarmiðj- unni en tókst ekki að nýta sér það. Allt rann út í sandinn þegar mark Víkings nálgaðist og eina mark hálfleiksins kom á 20. mín. er vítaspyrna var dæmd á mark- — Geröu jafntefli 1:1 gegn Víkingi á Akureyrarvelli vörð Víkings fyrir að hrinda ein- um leikmanna Þórs. Jónas Jak- obsson tók vítaspyrnuna. Hann sendi markmanninn í hægra hornið og skoraði síðan með laf- lausu skoti í hitt horn marksins. Guðjón Guðmundsson átti þrumuskot rétt yfir mark Víkings á 34. mín. og stuttu síðar bjarg- aði Baldvin Guðmundsson mark- vörður Þórs snilldarlega í horn skoti Ómars Torfasonar fyrirliða Víkings. Og Baldvin átti eftir að koma mikið við sögu áður en yfir lauk. Þórsarar fengu tvö ágætis tæki- færi í lok hálfleiksins. Bjarni Sveinbjörnsson skaut yfir frá vítapunkti, tók boltann viðstöðu- laust eftir sendingu Halldórs Áskelssonar og Kristján Krist- jánsson skaut framhjá úr góðu færi við markteigshornið. Björn Árnason, þjálfari Víkings, „messaði" heldur betur yfir sínum mönnum í leikhléi, hávaðinn var svo mikill er hann „söng“ fyrir Víkingana að glumdi um allt vallarhúsið. Og það var eins og við manninn mælt. Víking- arnir komu mun grimmari til síð- ari hálfleiks og það tók þá ekki nema 5 mínútur að jafna metin. Mikil þvaga var í vítateig Þórs, V íkingarnir áttu stangarskot, bjargað var á línu og hvaðeina en að lokum kom Einar Einarsson, þá aðeins búinn að vera inná í 20 sek. og hann spyrnti boltanum í netið. Á 70. mín. fengu Víkingar víta- spyrnu er Magnús Helgason felldi Ámunda Sigmundsson í vítateig. Ómar Torfason tók spyrnuna og skaut nokkuð góðu skoti í vinstra hornið, en Baldvin gerði sér lítið fyrir og varði með tilþrifum í horn. Glæsilega gert hjá þessum unga markverði. Það sem eftir lifði leiksins bar fátt til tíðinda og þegar upp var staðið gátu víst allir vel við unað. Bæði liðin hefðu þó viljað sigur og þar með losna endanlega úr fallhættunni. Þrír menn báru af í liði Þórs að þessu sinni, Halldór Áskelsson, sívinnandi, Óskar Gunnarsson, klettur í vörninni að vanda og markvörðurinn ungi, Baldvin Guðmundsson, sem skilaði sínu og vel það. Baldvin varði vítaspyrnu. Birgir vann Bautabikarinn bliksmenn sneru vörn í sókn, brunuðu upp og sókn þeirra end- aði með skoti frá Þorsteini Hilm- arssyni. Þorvaldur Jónsson varði, en hélt ekki boltanum og Jón Einarsson var fyrstur á vettvang og sendi boltann í markið. Blikarnir voru mun hressari eftir markið og þeir áttu ekki í miklum erfiðleikum með að inn- Norðurlandamótið í kraftlyftingum: Kári ætlar að verja titilinn Um næstu helgi mun Kári Elí- son, kraftlyftingamaður úr KA keppa á Norðurlandamótinu í kraftlyftingum sem haldið verður í Stokkhólmi og freista þess að verja Norðurlanda- meistaratitil sinn. Kári verður eini keppandi ís- lands á þessu móti og í samtali við Dag sagði hann að möguleik- ar hans á að verja titilinn væru nokkuð góðir. Kári keppir í 67.5 kg flokki og er í nokkuð góðu formi um þessar mundir. Hann hitaði upp fyrir keppnina með smámóti í Lundarskóla sl. laug- ardag og átti þá ágæta tilraun við íslandsmetið í hnébeygju, 232.5 kg. Ekki fór þyngdin, 233 kg þó upp að þessu sinni, en allt ætti að geta gerst á stórmóti sem Norðurlandamótið er. Staðan I Staðan Staðan í 1. deild íslandsmótsins í knatt- spymu er nú þessi: Breiðablik-KA Fram-Valur Þróttur-Akranes Keflavík-KR Þór-Víkingur Staðan í 2. deild íslandsmótsins í knatt- spymu er nú þessi: Völsungur-UMFS 2:2 UMFN-FH 1:3 ÍBÍ-ÍBV 3:2 Einherji-Víðir 0:3 Tindastóll-KS 1:2 Akranes 17 11 2 4 30:18 35 FH 17 11 4 2 35:16 37 Keflavík 17 8 3 6 19:19 27 Víðir 17 9 3 5 32:24 30 Valur 17 6 7 4 23:16 25 ÍBÍ 17 8 5 4 35:22 29 Þór 17 6 4 7 25:24 22 KS 17 7 6 4 21:17 27 Þróttur 17 5 7 5 19:18 22 ÍBV 17 7 4 6 26:25 25 KR 17 5 7 5 19:23 22 Völsungur 17 7 4 6 23:23 25 Víkingur 17 5 6 6 26:28 21 UMFN 17 7 3 7 18:19 24 Breiðablik 17 4 8 5 17:17 20 Skallagr. 17 7 3 7 29:26 24 Fram 17 5 4 8 19:22 19 Tindastóll 17 2 3 12 16:41 9 KA 17 4 4 9 23:35 16 Einherji 17 1 3 13 11:31 6 Síðustu leikir: KR-Þróttur og KA-Fram á föstudags- kvöld, Akranes-Breiðablik, Víkingur- Keflavík á laugardag og Valur-Þór á sunnudag. Síðustu leikir: Skallagrímur-Tindastóll, Víðir- Njarðvík, KS-ÍBÍ, FH-Völsungur og ÍBV-Einherji. Allir þessir leikir verða á laugardag og hefjast allir kl. 14. KA féll aftur á Kópavogsvellinum Þórsarar eru ekki endanlega sloppnir

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.