Dagur - 02.11.1984, Blaðsíða 16
1»
Akureyri, föstudagur 2. nóvember 1984
Afgreiðum alla daga af salatbarnum vinsæla
salat út í bæ. Afgreitt minnst fyrir tvo.
Verð kr. 195,00 pr. mann.
Innifalið ca. 250 g salat, ca. 100 g brauð, ca. 200 g súpa.
Aldís á
Stokka-
hlöðum
100 ára
Aldís Einarsdóttir á Stokka-
hlöðum í Hrafnagilshreppi
verður 100 ára á sunnudag-
inn.
Aldís fæddist á Gnúpufelli í
Saurbæjarhreppi 4. nóvember
1884, dóttir hjónanna Einars
Sigfússonar Thoriacíus og
Guðríðar Brynjólfsdóttur, sem
bæði voru af miklum bænda- og
embættismannaættum. Svo
undarlega vill til að Aldís er
skyld stórskáldunum Jónasi
Hallgrímssyni og Grími
Thomsen, báðum í 5. og 3.
ættlið, Jónasi í föðurætt og
Grími í móðurætt. Sjö ára flutt-
ist Aldís að Stokkahlöðum og
hefur búið þar alla sína tíð.
Hún gekk í kvennaskóla á Ak-
ureyri í tvo vetur, fór á nám-
skeið í Gróðrarstöðinni og hef-
ur síðan verið mikil blóma- og
trjáræktarkona, brautryðjandi
í sveit sinni í þeim efnum. Hún
hefur einkum unnið heima við,
geysimikil tóskaparkona og
einkum á prjónles. Hún tók
mikinn þátt í félagslífinu í sveit-
inni á fyrri árum.
Hrafnagilshreppur og félaga-
samtök í hreppnum halda
Aldísi og gestum hennar boð í
Laugaborg á sunnudaginn kl
2-5. Dagur óskar henni heilla á
þessum merku tímamótum.
- HS
Fjöldauppsagnir í
byggingariðnaðinum
„Við höfum verið sakaðir um
óraunhæfan barióm undanfar-
Uppsagnir
dregnar
til baka
Búið er að draga uppsagnir tíu
starfsmanna Skinnadeildar
Iðnaðardeildar Sambandsins
til baka, eftir að verkfalli
BSRB var frestað.
Starfsfólkinu var sagt upp
vegna hráefnisskorts sem stafaði
af verkfallinu en í uppsögnunum
var jafnframt tekið fram að þær
væru skilyrtar og yrðu dregnar til
baka ef verkfall leystist.
- Ég vona að málin verði kom-
in í samt lag innan tíu daga, sagði
Jón Sigurðarson, framkvæmda-
stjóri Skinnadeildarinnar í sam-
tali við Dag. - ESE
Rólegt í
áfenginu
- Það hefur verið mjög rólegt
yfir áfengissölunni þennan
fyrsta dag eftir verkfallið en
þeim mun meira að gera við að
taka niður tóbakspantanir,
sagði Ólafur Benediktsson,
verslunarstjóri í áfengisútsöl-
unni á Akureyri í samtali við
Ðag.
Olafur sagði að starfsmenn
ÁTVR hefðu vart haft við að
taka niður tóbakspantanir og lík-
lega yrði að vinna fram eftir
kvöldi til að ganga frá öllum
pöntunum.
- Við erum sæmilega birgir af
tóbaki og ættum því að geta af-
greitt verulegt magn strax en það
sem upp á vantar fáum við fljót-
lega sent frá Reykjavík, sagði
Ólafur Benediktsson. - ESE
in þrjú ár, en staðreyndin er
nú samt sú að þróunin hefur
verið hæg og sígandi niður á
við, þó uppstyttur séu inn á
milli, en því miður verða þær
sífcllt styttri,“ sagði Guð-
mundur Ömar Guðmundsson,
varaformaður og starfsmaður
Trésmiðafélags Akureyrar, í
samtali við Dag.
Að undanförnu hafa um 50
smiðir fengið uppsagnarbréf og
koma uppsagnirnar ýmist til
framkvæmda um áramótin eða
mánaðamótin janúar-febrúar.
Þessir smiðir starfa hjá Reyni hf.,
sem hefur sagt upp öllum sínum
smiðum, Aðalgeiri og Viðari hf.,
Híbýli hf. og Ýr hf. Hér er um að
ræða 30% starfandi smiða á Ak-
ureyri, en þeim hefur fækkað
hægt og sígandi undanfarin ár.
Þannig hafa 13 smiðir flutt úr
bænum það sem af er árinu og
a.m.k. 35 smiðir hafa flutt sig í
önnur störf undanfarin 2-3 ár. Til
viðbótar þeim sem nú hefur verið
sagt upp hafa um 20 smiðir horfið
úr faginu á síðustu 12 mánuðum.
Uppsagnir sem þessar hafa
tíðkast í einhverjum mæli hjá
byggingaverktökum undanfarin
„Höfum við gengið til góðs, götuna fram eftir veg . . .?“ Þessi orð þjóð-
skáldsins eiga svo sannariega við í dag. Þegar hver höndin er upp á móti ann-
arri í þjóðfélaginu er varia hægt að svara þessari spurningu játandi. Það má
líkja þjóðfélaginu við þessa gömlu konu á Oddeyrargötunni. Það er á bratt-
ann að sækja og dimmt og drungalegt framundan. Mynd: ESE
ár í vetrarbyrjun, þegar verkefni
hafi ekki verið trygg. Sjaldnast
hafa þessar uppsagnir þurft að
koma til framkvæmda, en bygg-
ingaverktakar segja ástandið
aldrei hafa verið eins slæmt og
nú, því nær engin útboð séu á
döfinni og því lítil von um aukin
verkefni. Helst er horft til fram-
kvæmda við Verkmenntaskól-
ann, Sjúkrahúsið og Hótel KEA,
sem hugsanlega gætu bætt eitt-
hvað úr ástandinu. Það er hins
vegar engan veginn tryggt að
fjárveitingar verði til þeirra fram-
kvæmda í vetur. Og ekki er von
um mikil verkefni við íbúðabygg-
ingar, því aðeins mun hafa verið
hafin smíði á 25 íbúðum það sem
af er árinu. Ástandið er því ekki
gott hjá húsasmiðum þessa dag-
ana og aðrir byggingariðnaðar-
menn segja svipaða sögu. Að
sögn Guðmundar hefur verið sóst
eftir byggingariðnaðarmönnum
héðan til verkefna úti á landi og
mestir virðast atvinnu- og tekju-
möguleikarnir vera í Reykjavík.
- GS
Bensínið
komið
Það tók ekki langan tíma aö
koma lagi á málin hjá bensín-
stöðvunum á Akureyri eftir að
verkfalli BSRB var aflétt.
Fyrsta bensínstöð Olíufélags-
ins hf. fékk bensín þegar á
miðvikudag og í gærkvöld var
von á olíuskipi til hafnar.
Verkfallið bitnaði mjög mis-
jafnlega á olíufélögunum. Bens-
ínstöðvar ESSO urðu uppi-
skroppa með bensín á mánudag
en Shell-stöðvarnar og Olís áttu
bensín lengur. Þegar það þraut
tókst að útvega meira magn frá
Blönduósi og víðar og tókst Olíu-
félaginu að fá fyrsta bílinn með
10 þúsund lítra farm í Veganesti
á miðvikudag. Skip með bensín-
farm var svo væntanlegt til hafnar
í gær, þannig að bensínmál ættu
því að vera í góðu lagi á næst-
unni. - ESE
Nú er frost á Fróni, gátu
veðurfræðingar á Veðurstof-
unni sungið í morgun. Og þeir
spá áframhaldi á kuldanum í
dag og á morgun en síðan eru
allar horfur á að það hlýni veru-
lega með léttri sunnanátt sem
verður á veldisstóli eitthvað
fram eftir næstu viku. Smá élja-
gangur er nú úti fyrir ströndinni
og aldrei að vita nema einhver
úrkomuvottur verði einnig á
landi, a.m.k. útnesjum.
f
Brgee
bæði fyrír börn og fullorðna.
Húfur ★ Vettlingar ★ Lúffur ★ íþróttapeysur ★ Sokkar og leistar
Sokkabuxur væntanlegar.
Mikið úrval.