Dagur - 05.11.1984, Page 4
4 - DAGUR - 5. nóvember 1984
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI:. 24222
ÁSKRIFT KR. 150 Á MÁNUÐI -
LAUSASÖLUVERÐ 22 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
Gl'SLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN:
EIRÍKUR ST. EIRÍKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRfMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI: 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Hleypur brunaliðið
frá eldsvoðanum?
Á kjördæmisþingi framsóknarmanna í Norðurlands-
kjördæmi eystra ræddi Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra, m.a. um það sem framundan væri
í stjórnarsamstarfinu og vitnaði til þess samkomu-
lags sem hann og Þorsteinn Pálsson unnu að í byrj-
un september og samkomulag varð um meðal
st j órnarflokkanna.
Þar varð m.a. að samkomulagi að gengi verði ekki
breytt um meira en að hámarki 5 af hundraði á ár-
inu 1985. Nú eru horfur á að ekki verði unnt að
standa við þetta vegna þeirra kjarasamninga sem
gerðir hafa verið og eru í farvatninu. Þykir nokkuð
ljóst að í lok þessa árs og á fyrstu mánuðum þess
næsta verði verðbólgan meiri en gert var ráð fyrir.
Hins vegar hefur forsætisráðherra lýst því yfir að
unnt eigi að vera að koma verðbólgu niður í 10% í
árslok 1985, eins og einng var um rætt í samkomu-
laginu.
Á kjördæmisþinginu lýsti Steingrímur Hermanns-
son yfir ánægju með þetta samkomulag og sérstak-
lega þann þátt sem sneri að nýsköpun atvinnulífs-
ins, sem hann og Þorsteinn Pálsson höfðu báðir lagt
mikla áherslu á og náð góðu samkomulagi um. Þor-
steinn Pálsson hefur einnig lýst yfir ánægju sinni
með þennan nýja grundvöll sem ríkisstjórnin
hyggst vinna á næsta árið.
Það skýtur því nokkuð skökku við að nú skuli ber-
ast fréttir, að vísu óstaðfestar, að innan Sjálfstæðis-
flokksins skuli nú vera ofarlega í hugum margra
áhrifamanna uppstokkun á stjórnarsamtarfinu og
jafnvel annað stjórnarsamstarf, eins og DV, annað
höfuðmálgagn Sjálfstæðisflokksins hefur greint frá.
Þar sagði í frétt í síðustu viku að núverandi skipan
stjórnarsamstarfs þyki ekki vænleg til þess að blás-
ið verði nýju lífi í atvinnu- og efnahagsþróun
landsins.
í yfirheyrsluviðtali blaðsins við Þorstein Pálsson
játar hann því hvorki né neitar að til slíkrar upp-
stokkunar kunni að koma — segir að nú verði að tak-
ast á við algjörlega nýjar aðstæður. Þorsteinn vitnar
til leiðaraskrifa í NT sem bendi til undirgangs í ein-
hverjum hluta Framsóknarflokksins. Forsætisráð-
herra hefur hins vegar lýst yfir að þau skrif séu al-
gjörlega á ábyrgð ritstjóra NT. Þá má geta þess að
þau hafa verið dregin úr samhengi og mistúlkuð í
málgögnum sjálfstæðismanna.
Málið snýst einfaldlega um það hvort hatrammar
deilur innan Fjálfstæðisflokksins verða þessari ríkis-
stjórn að falli. Þrátt fyrir frávik vegna nýgerðra
kjarasamninga stendur samkomulag formannanna
enn fyrir sínu og spurningin er um það hvort Þor-
steinn Pálsson er nægilega sterkur formaður Sjálf-
stæðisflokksins til að hann geti staðið við umsamda
hluti og leyst innanflokksdeilurnar sem að hluta
snúast um ásókn í ráðherrastóla. Eða hleypur
brunaliðið frá eldsvoðanum, eins og forsætisráð-
herra hefur komist að orði?
Bjarni Arthúrsson tckur við gjöfinni f.h. Kristnesspítala. Aðrir á myndinni eru: Aslaug Herdís Brynjarsdóttir,
Hulda Gunnlaugsdóttir, hjúkrunarforstjóri og Brynjólfur Ingvarsson, settur yfirlæknir. Mynd: ESE
- Haldið upp á 57 ára afmæli og stórgjöf veitt viðtöku
Tvíheilagt
á Kristnesi
Síðasti fimmtudagur var tví-
heilagur í sögu Kristnesspítala.
Haldið var upp á 57. afmælisár
spítalans og eins veitti fram-
kvæmdastjórinn viðtöku full-
komnu hjartalínuritstæki sem
gefið er af Minningarsjóði
Brynjars Valdimarssonar, en
Brynjar var yfirlæknir Krist-
nesspítala allt þar til hann lést
í maí sl.
í máli Brynjólfs Ingvarssonar,
setts yfirlæknis við Kristnesspít-
ala, við afhendinguna kom fram
að ákveðið var að stofna minn-
ingarsjóð sem ákveðið var að
eyða öllu fé úr til tækjakaupa í
eitt skipti fyrir öll.
Um 50 þúsund krónur söfnuð-
ust á skömmum tíma og var
ákveðið að kaupa hjartalínurits-
tæki. Sagði Brynjólfur að mikil
ánægja væri með þetta tæki og
myndi það koma í góðar þarfir
við spítalann.
Bjarni Arthúrsson, fram-
kvæmdastjóri sagði að þetta væri
stærsta gjöf sem Kristnesspítala
hefði borist í fjölda ára og væri
það vel við hæfi að gjöfin væri
gefin til minningar um Brynjar
heitinn. Hann hefði starfað við
spítalann nær óslitið í 25 ár og
helgað honum starfskrafta sína.
Brynjar Valdimarsson hefði ver-
ið læknir af köllun.
Það var Áslaug Herdís Brynj-
arsdóttir sem afhenti gjöfina en
Bjarni Arthúrsson veitti henni
viðtöku fyrir hönd Kristnesspít-
ala. - ESE
„Helgarpakkar“
til Húsavíkur
- Hægt að fara í sjóstangaveiði, veiða niður
um ís á Kringluvatni, ganga á skíðum
og margt fleira.
„Við sjáum ekki ástæðu til
þess að Akureyringar t.d. ein-
skorði helgarferðir sínar ein-
göngu við Reykjavík og þess
vegna erum við með „helgar-
pakka“ sem við bjóðum hing-
að til Húsavíkur,“ sagði Auður
Gunnarsdóttir hótelstjóri á
Hótel Húsavík í stuttu spjalli
við Dag.
„Við bjóðum upp á akstur frá
Akureyri kl. 17 á föstudögum,
gistingu í tvær nætur með morg-
unverði og akstur til baka fyrir
aðeins 1.920 krónur,“ sagði Auð-
ur. „Ef fólk kemur á eigin bif-
reiðum lækkar þessi upphæð
niður í 1.540 krónur.
Hér er ýmislegt hægt að gera
sér til dægrastyttingar um helgar.
Við getum séð fólki fyrir vél-
sleðaferðum upp að Kringluvatni
þar sem veitt er niður um ís, það
er hægt að komast í sjóstanga-
veiði ef viðrar og hér í kring eru
mjög góð gönguskíðasvæði auk
þess sem skíðabrekkurnar eru
hér við hóteldyrnar. Þá er hægt
að fara í skoðunarferðir um bæ-
inn og líta t.d. inn í Safnahúsið
og ekki má gleyma aðstöðu okk-
ar á 4. hæð hótelsins í Hliðskjálf
þar sem við bjóðum gestum okk-
ar veislumat kvölds og morgna og
þar er mjög huggulegt að eyða
kvöldstund."
Auður hótelstjóri.
Auður sagði að fyrirhugað væri
að fara aftur af stað með hinar
svokölluðu „heilsuvikur“ en þær
urðu mjög vinsælar á sínum tíma.
„Við stefnum að því að halda
slíka viku fyrir áramót og einnig
eftir áramótin. Þá viljum við
vekja athygli á því að við bjóðum
upp á giæsilegt kaffihlaðborð á
sunnudögum, hlaðið smur-
brauðstertum og öðru góðgæti,"
sagði Auður að lokum.