Dagur - 05.11.1984, Qupperneq 5
5. nóvember 1984 - DAGUR - 5
Gnotvom
gegn
Hugmyndir eru nú uppi á Dal-
vík að hlaða grjótvörn á hafn-
arsvæðinu þar sem mest hætta
er á landbroti.
Á undanförnum árum hafa
menn orðið varir við að hafrótið,
einkum í stórviðrum hefur
höggvið stór skörð í sjávarsíðuna
í námunda hafnarinnar á Dalvík.
Er það mál manna að ekki
Ægi
þurfi nema tvö til þrjú stórbrim
til þess að hreinsa burt veg þann
við sjávarsíðuna sem er fyrir
framan vinnslustöðvarnar.
Það hefur því orðið að ráði að
Gylfi ísaksson, verkfræðingur,
hefur tekið saman skýrslu um
þessi mál fyrir bæjarstjórnina og
er reiknað með því að niður-
stöður verði kunnar fljótlega.
- ESE
Samvinnu-
félögin koma
víða við
Samvinnufélög koma víða við, og
nú hafa slík samtök sýnt það
svart á hvítu að þau hafa skilað
ágætum árangri víða í Efnahags-
bandalagsríkjunum til að leysa
efnahagsvanda. í nýlegri skýrslu
um það, hvernig menn hafa
brugðist við atvinnuleysi á
heimaslóðum sínum í EBE--
ríkjunum, kemur fram að sam-
vinnufélög hafa þar víða lyft
Grettistökum.
Samtals er frá því greint að
slíkt framtak manna hafi nú á
fáum árum leitt af sér tilkomu um
einnar milljónar nýrra starfa, og af
þeim sé um helmingur á vegum
samvinnufélaga sem stofnuð hafa
verið í þessum tilgangi. Er þá
miðað við þær aðgerðir gegn at-
vinnuleysi sem sveitarstjórnir eða
aðrir aðilar innan bæjar- eða
sveitarfélaga eiga frumkvæði að
án ríkisafskipta.
Á s.l. fimm árum hefur sam-
vinnufélögum í EBE-ríkjunum
fjölgað úr 6.500 í 14.000 og fjöldi
fólks sem starfar hjá þeim hefur
aukist úr 300 þúsund í 540
þúsund. Mikilvægi þessara félaga
er orðið gífurlegt, og einkum hef-
ur þeim tekist vel að skapa at-
vinnutækifæri fyrir hópa sem erf-
itt eiga um vik á vinnumarkaðin-
um, þar á meðal konur, ungt
fólk, fatlaða og innflytjendur.
Verkefni þessara félaga eru hin
fjölbreytilegustu. Mörg eru þó
með atvinnurekstur sem flokkast
undir handíðar, léttan iðnað,
landbúnað, skógrækt, fiskirækt,
ferðamannaþjónustu, viðgerðir
og endurvinnslu hvers konar.
Leggjum ekki at staö í feröalag i
lélegum bíl eöa illa útbúnum.
Nýsmuröur bill meðhreinniolíuog
yfirfarinn t.d. á smurstöð er lík-
legur til þess aö komast heill á
leiðarenda.
«iæ
FERÐAR
Ð
\
Fyrst einu sinni
Sooi
og kleinur
brag4asl vel' <^> Brauðgerð
14! I A
■ A p ■“ Plf A D A -
LAucnVAHA
TÖLVUPAPPÍR
BÓNUSSEÐLAR
LAUNASEÐLAR
BÆKUR, BLÖÐ, TlMARIT, BÆKLINGAR, EYÐUBLÖÐ
PRENTSMIÐJA BJÖRNS JÓNSSONAR
HAFNARSTRÆTI67AKUREYRI
SÍMI 96-26511