Dagur - 30.01.1985, Qupperneq 4
4 - DAGUR - 30. janúar 1985
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 180 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 25 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GlSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN:
EIRÍKUR ST. EIRÍKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI: 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Bíða sunnanmenn
eftir stóriðju?
Baldur Hermannsson skrifar kjallaragrein í
Dagblaðið Vísi sl. miðvikudag. Baldur er
kunnur fyrir að taka stórt upp í sig og ef hann
skrifar af sannfæringu þá telst hann til öfga-
manna. í áðurnefndri grein sinni fjallar hann
um „upphlaup" Finnboga Jónssonar í stjórn
Landsvirkjunar og telur að Hjörleifur Gutt-
ormsson hafi att Finnboga út á foraðið. Telur
Baldur Hjörleifi nær, að greiða vexti og af-
borganir af þeim hálfa þriðja milljarði, sem
hann skuldi okkur fyrir að klúðra samningum
við Alusuisse.
En Baldur kemur víðar við. Hann segir m.a.
um störiðju: „Kommarnir eru alltaf með
svona samsæriskenningar í gangi og er það
líklega eins konar menningararfur frá gömlu,
góðu dögunum, þegar kommar létu sig
dreyma um byltingu á íslandi.
En það leynist samt sem áður ákveðin vits-
munaglæta í þessum nýjustu samsæriskenn-
ingum þeirra, og hún er auðvitað sú, að vissu-
lega væri það vel til fundið að auka nú orku-
forðann og selja hann á einu bretti til erlendr-
ar stóriðju.
Okkur bráðvantar nefnilega meiri stóriðju
á íslandi. Okkur vantar álverksmiðjur, járn-
blendiverksmiðjur, kísilmálmverksmiðjur,
okkur vantar stækkun í Straumsvík og okkur
vantar erlent fjármagn, því það er ekkert vit í
því að eiga þessar verksmiðjur sjálfir.
Og við eigum ekki að vera að þröngva þess-
um stóriðjuverum upp á dreifbýlisfólk, sem
vill ekki annað sjá en rollur, fisk og byggða-
stefnu. Við eigum að velja þeim stað hér
syðra, því hér er tæknikunnáttan, menntunin
og viljinn til átaks og gróða.
Menn eiga að hætta þessu eilífa hjali um ál-
ver í Eyjafirði. Eyfirðingar vilja ekki stóriðju
og það er þeirra mál. Þeir eru hræddir við
mengun. Þeim finnst sælla að senda börnin
sín suður til vinnu en kafna sjálfir í fnyknum
af loðdýrabúum og loðnubræðslum. Hver hef-
ur sinn smekk.“
Þannig talar Baldur Hermannsson. Þótt
öfgarnar séu miklar, þá er örlítil „vitsmuna-
glaeta" í þessum orðum. Það er nefnilega
nokkuð víst, að sterk öfl á höfuðborgarsvæð-
inu bíða þess með óþreyju, að Eyfirðingar
kasti öllum áformum um stóriðju út í hafs-
auga. Þá er nokkuð víst, að stóriðjukostum
verður tekið opnum örmum syðra og fólks-
flóttinn suður yfir heiðar magnast enn frekar
en orðið er. Þessi staðreynd undirstrikar enn
frekar þá stefnu sem Dagur hefur haldið á
lofti í stóriðjumálinu; við megum ekki kasta
frá okkur tækifærum í atvinnuuppbyggingu
að óathuguðu máli. Norðlendingar mega ekki
láta ýta sér aftur „inn í torfkofana", eins og
Baldur orðar það. Þess í stað verður að hefja
sókn til framfara.
- GS
Skákþing Akureyrar:
HÖRÐ KEPPNI
0G TVÍSÝN!
Kári Elíson, skákmeistari Akureyrar 1984, tekur við bikarnum úr hendi Gylfa Þórhallssonar, skákmeistara Akur-
eyrar 1983. Mynd: ESE
Tómas Hermannsson
sigraði i unglingaflokki
Skákþing Akureyrar hófst 20.
janúar sl. Teflt er í þrem
flokkum. í A-flokki eru sex
þátttakendur og verður tefld
tvöföld umferð. Keppnin er
hörð og tvísýn en eftir þrjár
umferðir er staðan þessi:
Áskell Örn Kárason 1,5 v. og
biðskák. Kári Elíson 1,5 v. og
biðskák. Jón G. Viðarsson 1 v.
og biðskák. Pálmi R. Pétursson 1
v. og biðskák. Gylfi Þórhallsson
1 v. og biðskák. Árnar Þorsteins-
son 0 v. og biðskák.
Eins og sjá má er staðan óljós
vegna biðskáka.
I B-flokki tefla átta keppendur
og efstur eftir þrjár umferðir er
Sveinbjörn Sigurðsson með 3 v.
Annar er Sigurjón Sigurbjörns-
son með 2 v. og eina skák
óteflda.
í unglingaflokki tefla sjö kepp-
endur og er flestum skákum
lokið. Sigurvegari varð Tómas
Hermannsson með 4,5 v. Annar
varð Skafti Ingimarsson með 4 v.
en mögulegt er að fleiri keppend-
ur nái þeim vinningafjölda.
Að lokum birtist hér skák úr
annarri umferð í A-flokki. Pessi
skák er gott dæmi um það hversu
lítið má út af bera í keppnisskák.
I 10. leik leikur Jón Garðar óná-
kvæmt og Gylfi refsar honum
með glæsilegri taflmennsku.
Hvítt: Jón Garðar Viðarsson.
Svart: Gylfi Þórhallsson.
1. e4-e5
2. Rf3-Rc6
3. Bb5-a6
4. Ba4-Rf6
5. 0-0-b5
6. Bb3-Rxe4?!
7. d4?!-d5
8. dxe5-Be6
9. c3-Bc5
10. Bf4?-g5!
11. Bg3-h5
12. Rd4-h4H
13. Rxc6-hxg3!!
14. Rxd8-Bxf2+
15. Hxf2 (ef Khl þá Hxh2 mát)
- gxh2+
(Ef Khl þá Rxf2 mát)
16. Kfl-hl D+
17. Ke2-Bg4+
18. Hf3-Bxf3+
19. Kxf3-Hh3+!
20. Kg4 (Ef Ke2 þá Dxg2 og Hhl
mát)
20. - Hg3+
gefið
Hvítur er mát eftir Kf5-Dh7 #