Dagur - 30.01.1985, Síða 8

Dagur - 30.01.1985, Síða 8
8 - DAGUR - 30. janúar 1985 Keramikstofan auglýsir Munið opnunartímann alla daga milli kl. 4 og 6. Alltaf eitthvað nýtt að koma bæði í mótum, módelleir og litum. Keramiknámskeiðin eru byrjuð. Þeir sem áhuga hafa á næsta námskeiði hafi samband í síma 24795. Keramikstofan Sunnuhlíð 7b. Gengið inn frá Sunnuhlíð. ® Tölvuskóli M.A. Vegna mikillar aðsóknar verða haldin aukanámskeið sem hér segir: 1. Einkatölvur (PC) og notkun stýrikerfis (4.-22. febr.) 2. Tölvubókhald (25. febr. - 15. mars.) Hægt er að bæta örfáum nemendum við á hvort nám- skeið. Ennfremur minnum við á eftirtalin námskeið, þar sem enn er ekki fullbókað: 1. Turbo-Pascal (4.-22. febr.) 2. Gagnasafnskerfi (dBase II o.fl.) (25. febr. - 15. mars.) Öll námskeiðin standa yfir í þrjár vikur, tvisvar í viku, samtals 18 tímar auk opinna æfingatíma. Kennsla fer fram í tölvuveri Menntaskólans á Akureyri klukk- an 20.00-22.00. Hámarksfjöldi nemenda á hverju námskeiði er 12 en lágmarksfjöldi 8. Hver þátttakandi hefur tölvu fyrir sig. í lok námskeiðs fá nemendur viðurkenningarskjal. Skráning og allar upplýsingar á skrifstofu Menntaskólans á Akureyri, sími 25660. Bent skal á að margir endurmenntunarsjóðir stéttarfélaga veita styrki til þátttöku á þessum námskeiðum. GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA. Frá Kjörmarkaði KEA Hrísalundi Þormmaturínn flýgur út Höfum glæsilega þormbakka og einnig þorramat í lausri vigt við ailra hæfi DAGUR DAGUR Ritstjórn Auglýsingar Afgreiösla Sími (96) 24222 tMinning: Páll Sigurðsson kennari Fæddur 20. júní 1899 - Dáinn 20. janúar 1985 Laugardaginn 26. jan. sl. var til moldar borinn á Akureyri tengdafað- ir minn, Páll Sigurðsson fyrrv. kenn- ari og skólastjóri, sem andaðist að- faranótt sunnudagsins 20. s.m. eftir sex vikna legu á Fjórðungssjúkrahús- inu. Hann var 85 ára er hann lést. Vegna langra kynna og tengda tókst með okkur vinátta og ég held ég megi segja að við höfum verið góðir vinir. Mér er því ljúft að minnast hans með örfáum orðum, - nú þegar hann er allur. Páll Sigurðsson fæddist 20. júní 1899 að Merkigili í Hrafnagilshreppi í Eyjafirði. Foreldrar hans voru Guðrún Rósa Pálsdóttir, skagfirskrar ættar, og Sigurður Sigurðsson, sem var Húnvetningur að ætt. Þau Merki- gilshjón eignuðust sjö börn og var Páll yngstur þeirra. Nú hafa öll þessi vel gerðu og myndarlegu systkini safnast til feðra sinna. Þrátt fyrir skagfirskan og hún- vetnskan uppruna sinn, taldi Páll sig ávallt, með réttu, Eyfirðing. Og Eyjafjörður æskuslóðanna var hon- um afar kær, - þar þekkti hann hverja þúfu, hæð og stein í landslagi. Var gaman að njóta leiðsagnar hans á smáferðalagi inn í Eyjafjörð á fögr- um sumardögum. Merkigilshjón munu hafa búið mjög þokkalegu búi að þeirra tíma hætti og talist vel bjargálna. Þau komu börnunum sjö vel til manns og þau vöndust við alla algenga sveita- vinnu á uppvaxtarárunum. Tveir bræður Páls urðu síðar kunnir bænd- ur á heimaslóð. Mér er til efs að hugur Páls hafi nokkurn tíma hneigst til bóndastarfs. En sveitin og búskapurinn áttu alltaf ítök í honum. Eitthvert lífsstarf varð þó ungi maðurinn að velja sér. Hann afréð að fara í Gagnfræðaskólann á Akur- eyri og lauk þaðan gagnfræðaprófi vorið 1921, 22ja ára að aldri. Þaðan lá svo leiðin í Kennaraskólann í Reykjavík þar sem hann lauk kenn- araprófi 1924. Þar með var ævistarfið ráðið, kennarastarfið, sem hann var kunnastur fyrir og hann stundaði lengst af fram á eftirlaunaaldur. í skólum fór orð af Páli sem af- burða námsmanni. Einkum voru það tvær kennslugreinar sem hann tók ástfóstri við, stærðfræði og íslenska. Reikningsmaður var hann svo glögg- ur að undrun sætti. Hann lék sér að því að leysa hin erfiðustu dæmi í hug- anum. Um kunnáttu og smekk Páls á íslenskt mál bera ef til vill gleggst vitni ýmsar þýðingar hans á bókum úr erlendum málum, t.d. allmargar barna- og unglingabækur. Mér er kunnugt um að vandfýsnir gagnrýn- endur fóru lofsamlegum orðum um þýðingarnar og margir barnaskólar keyptu bækurnar, m.a. vegna máls- ins sem á þeim var. Þýðingar Páls urðu nokkuð margar. Skömmu eftir kennaraprófið verða þáttaskil í lífi Páls, því 19. sept. 1925 kvænist hann eftirlifandi eiginkonu sinni, Vilborgu Sigurðardóttur frá Brekkugerði í Fljótsdal. Þau munu hafa kynnst í Möðrufelli í Eyjafirði sumarið 1924 þar sem þau voru í kaupavinnu. Þeir sem til þekkja, vita að Vilborg var stoð hans og stytta í lífinu, æðru- laus í andstreymi, broshýr í meðbyr. Fyrsta búskaparár sitt bjuggu ungu hjónin á Svalbarðseyri þar sem Páll kenndi við sveitarskólann. En árið 1926 liggur svo leiðin til Ólafsfjarðar þar sem Páll var ráðinn við barna- skólann. í Ólafsfirði bjuggu þau í nítján ár, eða til ársins 1945, að þau halda vestur í Fljótin, þar sem Páll verður kennari og skólastjóri við heimavistarskólann að Sólgörðum, og Vilborg húsmóðir skólaheimilis- ins. Þarna eru þau í sex ár. Eftir það má segja að þau hjón séu á eins kon- ar faraldsfæti um tíma. Eitt ár eru þau á Stokkseyri þar sem Páll var skólastjóri. Þrjú ár eru þau á Siglu- firði þar sem hann stundaði ekki fasta kennslu en nokkra stunda- kennslu jafnframt ýmissi almennri vinnu sem bauðst á þeim stað. En árið 1955 flytjast þau svo til Akureyrar þar sem þau hafa búið síðan, ávallt að Gilsbakkavegi 5. Á Akureyrarárum tekur svo Páll að sér kennslu og skólastjórn við sveitar- skólann á Hrafnagili. Við þetta starf er hann í þrjú ár þar til hann kemst á eftirlaunaaldur og hættir kennslu. Óhætt má fullyrða að Ólafsfjarðar- árin hafi verið athafnamesti tíminn á æviskeiði Páls. Hann er þá í blóma lífsins, kraftmikill, búinn góðum gáf- um sem eftir var tekið. Kennaralaun voru ekki há á þessum árum fremur en nú. Hann þurfti því að verða sér úti um aðra vinnu til að drýgja lág launin. Skömmu eftir komuna til Ól- afsfjarðar ræðst hann í það að koma upp þaki yfir fjölskylduna, húsi sem nefnt var Sunnuhvoll, Kirkjuvegur 9. Síðar reisti hann svo viðbyggingu við húsið. Auk þess höfðu svo hjónin kú og kindur eins og alsiða var hér áður fyrr í sjávarplássum. Páll vann því mikið á þessum árum og lagði oft verulega hart að sér við að sjá sér og sínum farborða. En þrátt fyrir brauðstritið gaf hann sér þó tíma til að sinna ýmsum fé- lags- og sveitarstjórnarmálum. í hreppsnefndinni sat hann á árunum 1937—44. í stjórn sparisjóðsins var hann í 18 ár. í stjórn Verkalýðs- og sjómannafélagsins í nokkur ár. Páll var bindindismaður og gegndi ýms- um trúnaðarstörfum fyrir Góðtempl- araregluna, m.a. lengi gæslumaður unglingastarfs. Eg er ekki í minnsta vafa um að öllum þessum störfum hafi hann gegnt af trúmennsku. Gamla nem- endur hef ég heyrt lýsa þakklæti fyrir kennslu hans. Kom þetta og glöggt fram við útför hans. Páll tengdafaðir minn var róttækur í stjórnmálum. Á Ólafsfjarðarárum fylgdi hann Sósíalistaflokknum að málum og var eitt sinn á framboðs- lista hans í alþingiskosningum í Eyja- fjarðarsýslu. Þó var hann enginn te- óríumaður og hafði engan metnað til verulegra stjórnmálaafskipta. Hann átti það þó til að taka til máls á stjórnmálafundum, en var ætíð mál- efnalegur, laus við alla persónulega kerskni sem hann hafði ímigust á en hélt fast við þann málstað sem hann taldi réttastan. Á hreppsnefndarárum Páls ráðast Ólafsfirðingar í þau stórvirki að koma upp hitaveitu og rafveitu og fara að hugsa alvarlega um mál mál- anna fyrir hafnlaust sjávarplássið, - höfnina. Það er ég alveg viss um að dugmiklum samstarfsmönnum hans í hreppsnefndinni hafa ekki þótt ráð hans og tillögur þær laklegustu áður en til framkvæmdanna kom. Páll tengdafaðir minn var ágætlega skáldmæltur svo sem hann átti kyn til. Hafði hann gaman af að búa tii vísur og ljóð og fékkst talsvert við það hér fyrr á árum. Kveðskapur Páls var ætíð einlægur, rétt gerður og oft afar fallegur, t.d. Ijóð hans um æskubyggðina í Eyjafirði sem prestur flutti við útför hans. Þá leituðu kórar og söngflokkar á Siglufirði og í Ólafsfirði stundum til hans með ljóð við erlend lög. Var þá hafður sá hátt- ur á að honum voru fengnar nóturnar í hendur og síðan samdi hann eða þýddi lauslega textana sem alveg pössuðu við lag upp á nótu. Aldrei þurfti að þröngva þeim að lagi. Þó nokkuð margir söngtextar eru til eftir Pál og stundum sungnir án þess að höfundar sé getið. Finnst mér það miður. Eitt var það í eðli tengdaföður míns sem var afar áberandi. Það var hin ríka samúð hans með hinum minnimáttar í lífsstríðinu. Þetta kom ekki fram með orðum heldur með gjörðum. Hann var og einlægur fugla- og dýravinur og nutu þessir málleysingjar oft góðs af gjörðum hans, t.d. á hörðum vetrum. Þegar líknarstofnanir sendu út ákall um aðstoð við hungraða og þjáða í heiminum, stóð ekki á við- brögðum Páls Sigurðssonar. Hann var rausnarlegur í framlögum sínum án þess mikið væri um talað.\En þetta fannst honum ekki nóg. Hann tók því upp á þvf á seinustu árum að safna flöskum á almannafæri og koma þeim í verð. Andvirði sendi hann ýmist til Hjálparstofnunar kirkjunnar eða Rauða krossins og varð þetta oft talsverður skildingur þótt oftast fylgdi eitthvað með úr eig- in vasa. Ég gæti nefnt mörg dæmi um elju hans við söfnunina og þá skyldu sem honum fannst hvíla á sér í þess- um efnum, en sleppi því þar sem það væri ekki að hans skapi. Þess má þó geta að Hjálparstofnun kirkjunnar færði honum alúðarþakkir við útför- ina. Páll og Vilborg eignuðust fjórar dætur sem allar eru fæddar í Ólafs- firði. Þær eru í aldursröð: Guðrún Rósa, kennari, gift undir- rituðum. Margrét Kristrún, húsfreyja á Ljósalandi í Vopnafirði, gift Helga bónda Þórðarsyni. Sigríður Guðný, hjúkrunarfræð- ingur, ógift. Álfhildur, kennari, gift Bárði Hall- dórssyni menntaskólakennara og forstöðumanni Námsflokka Akur- eyrar. Systurnar eru allar búsettar á Ak- ureyri, - nema Margrét. - Barnabörn og barnabarnabörn Vilborgar og Páls eru þrettán talsins. Ég vil svo að lokum þakka Páli Sigurðssyni fyrir áratuga kynni, vin- semdina og alúðina. Ég kveð hann hinstu kveðju með þökk og virðingu. - Blessuð sé minning hans. Akureyri 27. dagjanúar 1985. Eiríkur Eiríksson.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.