Dagur - 22.02.1985, Blaðsíða 8

Dagur - 22.02.1985, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 22. febrúar 1985 Leikklúbburinn Saga í fjögurra vikna leikferð um Norðurlöndin / tilefni af alþjóðaári œskunnar 1985 hefur Leikklúbbnum Sögu á Akureyri verið boðið að taka þátt í samnor- rænu leikverki æsku- fólks er hlotið hefur nafnið Fenris ’85. Frumsýning verður þann 5. júlí í Humle- bæk í Danmörku, en síðan verður sýnt í Bálsta í Svíþjóð, Þórs- höfn í Færeyjum og að líkindum mun Fenris- hópurinn alls um 70- 80 unglingar koma til íslands þann 20. júlí og sýna í Reykjavík og á Akureyri. Er hér um all sérstœtt verkefni og nýstárlegt að rœða er hlotið hefur nafnið „Hringrásin“ og er í 6 þáttum og sér hver leik- hópur um einn þátt verksins, en lokaþátt- urinn verða sameigin- legur. Nöfn þáttanna og flytjenda eru þessi: 1. „Líf“ í umsjá Færeyinga. 2. „Náttúran“ f umsjá Norð- manna. 3. „Fólk“ í umsjá íslendinga þ.e. leikklúbburinn Saga. 4. „Draumar" í umsjá Svía/ Finna. 5. „Raunveruleikinn" í umsjá Dana. 6. „Dauðinn" í umsjá allra sam- eiginlega. Æfingar eru þegar hafnar hjá Leikklúbbnum Sögu og er leið- beinandi Þráinn Karlsson. Dagur brá sér rétt sem snöggvast inn i Dynheima en þar fara æfingar fram. Er okkur bar að garði var foreldrafundur rétt í þann veginn að hefjast og meðlimir Sögu á þönum eftir kaffibollum og pilt- arnir sýndu fádæma vandvirkni við að raða kökum á borð. Við króguðum þó nokkra unga leikara af úti í horni og lögðum fyrir þá erfiðar spurningar, sú fyrsta hvort þetta væri ekki æðis- lega skemmtilegt. „Jú, jú mikil skelfingar ósköp, þetta er meiriháttar skemmtun. T.d. á æfingunni í gær vorum við í 2 tíma að læra að standa upp,“ sagði einhver og annar bætti við „sem að sjálfsögðu er mjög nauð- synlegt," „já, eiginlega lífs- spursmál í nútímaþjóðfélagi," minnir mig að sá þriðji hafi sagt. „Svo erum við líka búin að læra hvað er vinstri og hvað hægri.“ Þetta var sagt með miklu stolti. „Ég tel mig kunna það mjög vel núna, ég man alltaf með hvaða fæti ég sparka fótbolta." „Já, ég man líka hvernig ég held á selló- inu og hef áttað mig nokkuð vel á þessu vinstra og hægra syst- erSem sagt í stuttu máli, það voru allir mjög svo sammála um mikilvægi þess að kunna skil á hægri og vinstri og að kunna að standa upp. Næst var að spyrja hvernig æfingar hefðu gengið. „Mjög vel.“ „Miðað við þann U tíma sem við höfum haft til æf- inga hefur okkur gengið vel, við byrjuðum að æfa u.þ.b. 4 mánuð- um á eftir hinum leikflokkunum sem eru í þessu.“ „Þetta hefur mestmegnis gengið svona vel hjá okkur af því að viö erum svo gáfuð." Hinir samþykktu þessa síðustu athugasemd og tóku fram skýrt og greinilega að ekki væri um mont að ræða. Bara stað- reynd. - Það væri þá ekki úr vegi að fá að vita um hvað verkið „Fólk“ snýst. Það skyldi þó ekki vera um fólk? Blaðamenn geta líka verið ansi gáfaðir!! „Við byrjum á sköpun manns- ins samkvæmt norrænni goða- fræði og sýnum síðan allt hið illa sem maðurinn hefur gert í gegn- um aldirnar. í byrjun leiksins • • • vörpum við fram þeirri spurningu til áhorfenda hvers vegna er ljót- leiki til í heiminum og hvers vegna heldur manneskjan honum við. Við veltum þessu síðan fyrir okkur í verkinu, sem tekur um 20 mínútur og endum á mjög dramatískan hátt.“ „Já, endirinn er ákaflega fallegur.“ „Nei, hann er alls ekki væminn.“ „Hann er fullur af bjartsýni.“ „Verkið end- ar á mikilli bjartsýni og er fullt af æskuþrótti.“ - Og hvemig varð verkið til hjá ykkur? „Við gerðum þetta í samein- ingu, Leikklúbburinn og Þráinn Karlsson." „Til dæmis sagði Þrá- inn okkur að búa til krossfestingu og þá gerðum við það.“ - Kostar þetta ekki ógrynnin öll af peningum? Forsetinn okkar hún Vigdís Finnbogadóttir heimsótti Leikklúbbinn Sögu sl. laugardag og fékk hún að sjálfsögðu að berja verkið „Fólk“ augum. Leist henni vel á og eru það ekki slæm meðmæli. Með Vigdísi á myndinni er leik- stjórinn Þráinn Karlsson. „Jú þetta kostar rosalega mikið og við vonumst eftir stuðningi, hver einstaklingur kemur til með að borga 500 krónur danskar." Einhver í hópnum sagði: Við eig- um nóg af seðlum, en það hljóm- aði einhvern veginn ekki sann- færandi. Það kom fram að flestir krakk- anna í Leikklúbbnum eru í skóla og því getur verið ansi lítið um aura í veskinu næsta vetur, þar sem þau geta ekki unnið nema 1 og x/i-2 mánuði í sumar. Foreldr- ar barnanna eru mjög jákvæðir og hyggjast styðja við bakið á hinum upprennandi leikurum. „Þau eru mjög ánægð með að við skulum vera með í þessu. Að við stundum heilbrigða starfsemi ungs fólks.“ „Okkur líst alveg æðislega vel á þessa ferð, það vantar nógu sterkt lýsingarorð til að lýsa því hvað við hlökkum til.“ „Nei, það verður sko engin heimþrá, það getur allt eins verið að maður gleymi gamla landinu í hita leiksins." „Við grátum ör- ugglega ekki á kvöldin, nema kannski Maggi, hann er líka bara 20 ára.“ - Hvað er skemmtilegast við leiklistina og fyrirhugaða ferð? „Við fáum alveg æðislegt kikk út úr þessu!“ „Við lærum tungu- mál, komumst ekki hjá því.“ „Kannski lærum við að leika og þetta er mikil reynsla fyrir okkur og þetta á að efla samskipti ungs fólks á Norðurlöndum.“ - Og þið ætlið auðvitað öll að verða leikarar þegar þið eruð orðin „stór“? „Nei, eitthvað af okkur tekur kannski þátt í starfsemi áhuga- leikhúss en það eru fáir ef ein- hver sem hyggst leggja starfið fyrir sig.“ „Heyrðu, segðu í lokin að allur stuðningur sé vel þeginn.“ Ég bauð uppá andlegan stuðning. „Nei, ég meina fjár- stuðningur og svoleiðis, viltu biðja fólk að taka vel á móti okk- ur þegar við heimsækjum það.“ -mþþ f .... |^J f Ufp K/ L 1 m■ ■ 1 1 jji ■■ , ifjfím Leikarar í Sögu ásamt leikstjóra.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.