Dagur


Dagur - 22.02.1985, Qupperneq 11

Dagur - 22.02.1985, Qupperneq 11
22. febrúar 1985 - DAGUR - 11 Venus háít í vestrí skín - Helgi Hállgrímsson skrifar um stjömufræði í hinu bjarta og kyrra veðri undanfarinna vikna og mánaða, hafa sjálfsagt margir tekið eft- ir skœrri stjörnu á suður- og vesturloftinu, þegar fer að líða að kveldi. I janúar kom hún upp fljótlega eftir sólarlag, og var svo björt að menn gátu tekið feil á henni og bílljósum eða götuljósum. Varð mér það á sjálfum, eitt sinn, að láta mér detta í hug að þarna vœri gervi- hnöttur á ferðinni, og fyrirspurnir bárust um þetta undraljós til Nátt- úrugripasafnsins. ★ Ástarstjarnan Sjálfsagt vita þó flestir, sem komnir eru til vits og ára, að þarna er jarðstjarnan eða plánet- an Venus á ferðinni. Hún gengur undir ýmsum nöfnum á voru máli, en algengast mun að kalla hana Kvöldstjörnu eða Morgun- stjörnu, eftir því hvort hún birtist eftir sólalag á kvöldin eða á und- an sólaruppkomu að morgninum. Vanalega er Venus kvöldstjarna fyrri hluta árs en morgunstjarna seinni partinn og vekur þá minni athygli. Á þessu ári gengur hún fyrir sól í byrjun apríl, og fer yfir á morgunhimininn. (Sjá Alman- ak Þjóðvinafélagsins.) Venus er einnig kölluð Ástar- stjarna, sem er í samræmi við hið latneska heiti hennar, því Venus var ástargyðja Rómverja sem kunnugt er. Það er að sjálfsögðu hún, sem Jónas kveður um í Ferðalokum sínum („Ástar- stjarna yfir Hraundranga"). Loks var Venus oft bara nefnd Stjarna eða Stjarnan í fyrri tíð hér á landi, enda miðuðu menn tímann við hana, áður en klukkur urðu almennar, og var þá sagt að stjarnan væri komin í þennan og þennan stað, sem oftast voru ein- hver örnefni í landslaginu (eykta- mörk), svipað og sagt var um sól- ina á daginn. En vegna þess hve Venus er breytileg í háttum sínum, eins og aðrar jarðstjörnur, og stundum lágt á lofti, var oft miðað við aðr- ar stjörnur í tímatali, sem örugg- ari voru, t.d. voru Fjósakonurnar og Sjöstirnið gjarnan notuð í þessum tilgangi, enda voru þær fastastjörnur, þ.e. raunverulegar stjörnur, sem Venus er ekki. ★ Ýmis fróðleikur um Venus Allir vita nú, að Venus er plán- eta, önnur í röðinni frá sólu, og fær birtu sína þaðan, alveg eins og vor jörð, sem henni svipar einnig mjög til, svo sem að stærð og öðrum eiginleikum. Venus hefur þykkt og mikið gufuhvolf, og er það að sjálf- sögðu höfuðástæðan fyrir því hversu björt hún sýnist héðan frá jörðinni, þVI gufan endurkast- ar margfalt meira ljósi en fast yfirborð. Þeir sem í upphafi vís- indaaldar renndu augum til Ven- usar í stjörnukíki, urðu fyrir miklum vonbrigðum, því þar sást sjaldan neitt annað en hinar mjallahvítu skýjabreiður, sem hylja hana gersamlega. Þetta gufuhvolf er hins vegar öðruvísi samsett en okkar lofthvolf. Lang- mest af því er koldíoxíð (C02) eða um 95%, en köfnunarefni (nitur) er 3,5% en afgangurinn ýmis efni, s.s. súrefni, vatnsgufa, kolmónoxíð o.fl. Talið er, að í 50-80 km hæð sé þétt skýjabelti úr brennisteinssýru, og auk þess flúorbrennisteinssýra, sem báðar eru mjög eyðandi og tærandi. Þegar við þetta bætist, að hitinn niðri við yfirborð plánetunnar, undir hinum mikla skýjahjúpi, sem gefur um 90 sinnum meiri þrýsting en lofthvolf jarðar, er um 450-500°C, er ekki hægt að segja, að Venus sé sérstaklega byggileg eða aðlaðandi fyrir líf- verur. Þessi mikli hiti stafar að sjálfsögðu af því, að lofthvelið verkar eins og gler í gróðurhúsi, og lokar hitann frá sólunni inni. Auk þess er nú talið að töluverð eldvirkni sé á Venusi, eða hafi a.m.k. verið þar til skamms tíma. Venusflaugar sem Rússar hafa sent niður á yfirborðið hafa ljós- myndað landslagið, sem líkist mjög eldhraunum, sem við þekkjum vel hér á landi, og í hraunum þessum virðist vera ósköp venjulegt basalt. Á Venusi eru mikil fjöll og dalir, sem sjá má af ratsjármælingum. Stærsta hálendið nefnist Afrodite terra eða Afrodítarland, kennt við grísku ástargyðjuna. Þar eru einnig miklir gígar, líklega eftir loftsteina. Vegna hins þykka lofthjúps, er alltaf rökkvað á yfirborði plánet- unnar. Þar eru að sjálfsögðu eng- in vötn eða höf, vegna hitans, enda vatn lítið í loftinu. Merkilegt er að Venus hefur öfugan snúningsgang miðað við jörð og flestar aðrar plánetur, þ.e. hún snýst réttsælis, og miklu hægar en jörðin. Snúningstíminn er 243 jarðdagar, en umferðar- tíminn um sólina er styttri, eða 225 dagar. Sólarhringurinn á Venusi er því nokkuð langur, eða um 127 dagar, á okkar mæli- kvarða. Segulsvið er lítið eða ekkert, og hefur það e.t.v. gert gæfumuninn í þróun Venusar miðað við jörðina, því að seg- ulsvið jarðar ver hana fy ir ýmiss konar óheppilegri geislun. Er lík- legt talið að sú geislun hafi eytt því vatni sem plánetan hafði upp- haflega, og klofið það niður í frumparta sína, vetni og súrefni. Súrefnið hefur síðan bundist öðrum efnum, en vetnið horfið á braut. ★ Vítisaðstœður þar . . . Þannig er þá um að litast á þess- ari stjörnu ástarinnar. Er ekki laust við að hún minni mann á lýsingar klerkanna á helvíti, eins og þeir útmáluðu það gjarnan á miðöldum og allt fram á okkar daga, og frægir málarar máluðu það og teiknuðu. Eða ættum við heldur að nota nýyrði Halldórs Laxness (um Kísiliðjuna í Mý- vatnssveit) og kalla það „efna- brennsluhelvíti". Svona stutt er þá til helvítis, aðeins um 60 millj- ónir km. Sjálfsagt þarf ekki að gera því skóna, að líf í þeim vanalega skilningi, sé nú á Venusi, en um líf í „dulrænni" merkingu er ekki vitað, svo mér sé kunnugt. (Sam- kvæmt gömlum skilningi ætti þó ekkert að vera því til fyrirstöðu að þar séu eldandar og einhverjir púkar.) Ekki er þó fyrir að synja, að líf hafi getað þróast á Venusi, endur fyrir löngu, þegar skilyrðin þar hafa væntanlega verið allt önnur en nú, t.d. meira af vatni og súrefni, og jafnvel annar snún- ingstími. Ef gert er ráð fyrir sömu aðstæðum á Venusi og nú eru hér á jörðinni, að öðru leyti en því að hitastigið er hærra, sem svarar því sem Venus er nær sól- inni, ætti í rauninni að geta verið lífvænt þar, a.m.k. næst pólun- um. ★ . . . oghérá jörð En hvernig er það annars, þurf- um við alla leið til Venusar til að sjá helvíti miðaldamanna? í rauninni ekki. Þó það sé að vísu nokkuð sterkt að orði kveðið, að það sé að finna í Bjarnarflagi í Mývatnssveit, er því ekki að neita, að í iðnaðarstórborgum jarðarinnar okkar eru aðstæður vissulega ekki ósvipaðar, nema hitastigið er eitthvað lægra, Þar eru hin sönnu „efnabrennsluhel- víti“, og einn góðan veðurdag tekur eiturgasið að leka út án þess að menn taki eftir því, fyrr en hundruð eða þúsundir manna hafa orðið því að bráð, og þús- undir annarra hlotið varanleg örkuml. Hin hryllilegu iðnaðarslys í So- vedo á Ítalíu fyrir nokkrum árum og í Bhopal á Indlandi síðastliðið ár, þar sem um 2 500 manns fór- ust, eru víti til varnaðar í fleiri en einum skilningi. Erum við kannski líka á góðri leið með að eyðileggja gróður jarðar, sem leggur okkur til hið lífsnauðsynlega súrefni, og við- heldur því lífvænlega jafnvægi sem enn ríkir á jörðinni, þrátt fyrir allt? Erum við ekki jafnvel á góðri leið með að eyðileggja andrúmsloftið og hið verndandi jónahvolf, sem umlykja jörðina? Erum við e.t.v. byrjuð að skapa hér þá orsakakeðju, sem leitt gæti til þess að jörðin yrði eitthvað í líkingu við það, sem nú getur að líta á Venusi, raun- verulegt helvíti? Ljósmynd af Venusi, tekin úr geimfari í um 700 þús. km fjarlægð, 1974. Ljósu og dökku beltin samsvara vissum litum í gufuhvolfi plánetunnar. Myndin sýnir röð plánetanna frá sólu (neðst) og hlutfallslega stærð þeirra.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.