Dagur - 27.02.1985, Side 1

Dagur - 27.02.1985, Side 1
TÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS MARGAR GERÐIR GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI Litmynda- framköllun FILMUhusid AKUBEYRI 68. árgangur Akureyri, miðvikudagur 27. febrúar 1985 24. tölublað Veruleg tilfærsla á tekjuöflun bæjarsjóðs: Fyrirtæki greiði meira en einstaklingar minna Akureyrin fór út! Margir hafa furðað sig á því að frystitogarinn Akureyrin er ekki meðal þeirra skipa sem liggja bundin í höfn vegna verkfalls sjómanna. Mun skipið hafa farið út fljót- lega eftir innsiglinguna með öðrum fískiskipum á Akur- - Reglur um afnám fasteignaskatts á eldri borgara verulega rýmkaðar Veruleg tilfærsla verður a tekjuöflun bæjarsjóðs sam- kvæmt nýrri fjárhagsáætlun fyrir Akureyri. Almennt hækkar fasteignaskattur í bæn- um vegna aukins álags, nema hvað nýjar reglur um afnám og afslátt á fasteignaskatti koma nú tekjulitlum elli- og örorku- lífeyrisþegum enn betur en áður var. Þá lækkar útsvars- álagning úr 10,6 í 10,4%. Lækkun útsvarsins samsvarar rösklega 3,7 milljónum króna og er það svipuð upphæð og hækkun fasteignaskattsins á íbúðarhúsnæði. Því má segja að gjaldtakan sé að nokkru færð frá einstaklingum yfir á fasteignaeigendur, þar á meðal fyrirtæki, þó að undanskildu gamla fólkinu. Hinar nýju reglur um lækkun og afnám fasteignaskatts á eigin íbúðum eldri borgara bæjarins eru þannig breyttar að tekju- viðmiðun er hækkuð verulega, eða um allt að 42% að raungildi. Fasteignaskattur fellur að fullu niður hjá einstaklingum með allt að 162 þús. kr. í tekjur og hjón- um eða sambúðarfólki með 243 þús. kr. í tekjur á árinu 1984. Hjá einstaklingum hækkar því þessi tekjuviðmiðun um 67% frá fyrra ári, sem er 39% raunhækk- un. Nýr flokkur er tekinn upp með 75% lækkun skattsins hjá einstaklingum með allt að 190 þús. kr. í tekjur og hjónum með 275 þús. kr. í>á lækkar fasteigna- skattur um 50% hjá einstakl- ingum með tekjur allt að 230 þús. kr. og hjónum með allt að 340 , Umræður um fjárhagsáætlun: Utsvar 11-12 millj- ónum lægra en ella - vegna 10,4% útsvars en ekki 11% Vegna 10,4% útsvarsálagning- ar en ekki 11%, eins og heimil- að er og flest sveitarfélög not- færa sér, nema útsvarsálögur á Akureyringa um 11-12 millj- ónum minna en ella. Þetta kom fram í ræðu Sigurðar Jó- hannessonar við umræður um fjárhagsáætlun í bæjarstjórn í gærkvöld. Miklar umræður urðu á fundinum. Sigurður sagði að minnihluti sjálfstæðismanna hefði aldrei upplýst hve mikil fasteignagjöld þeir hefðu viljað leggja á né held- ur hvaða framkvæmdaliðir ættu að líða fyrir lægri skattheimtu. Freyr Ofeigsson sagðist í megin- atriðum ekki vera ósammála út- gjaldaliðum frumvarpsins, þó hann stæði ekki að framlagning- unni. Hann sagði að sjáiísagt hefði verið að nýta útsvörin til fulls, enda fyndist sér það helst að þessari áætlun hve fram- kvæmdir bæjarins væru smáar í sniðum. Hann sagði að það væri greinilega ekki fjárskortur sem Frumvarp fjarhagsaætlun Bæjarsjóðs Akureyrar fyrir árið 1985 háði bæjarfélaginu, þegar tekju- stofnar væru ekki nýttir til fulls. Gunnar Ragnars sagði að eng- ar aðstæður hefðu réttlætt hækk- un álags á fasteignagjöldin. Þegar af þeirri ástæðu hefðu sjálfstæðis- menn ekki tekið þátt í gerð fjár- hagsáætlunar. Þá bar hann fram tillögu um að afnám og afsláttur til efnalítilla elli- og örorkulífeyr- isþega næði ekki aðeins til fast- eignaskattsins heldur einnig lóð- arleigu og holræsagjalds. Meiri- hlutinn lét bóka að hækkuð við- miðunarmörk leiddu til verulega meiri afsláttar en í flestum öðrum sveitarfélögum. Tillaga minni- hlutans væri yfirboðstillaga sem ekki samræmdist almennri túlkun laga um þessi mál. - HS þús. kr. Þá má geta þess að fasteigna- skattur lægri en 1.700 kr. fellur niður að fullu og hámark skuld- lausrar eignar til að þessar reglur gildi má vera 2,5 milljónir króna. I fyrra var sú upphæð 1,5 milljón fyrir einstaklinga og 2 milljónir fyrir hjón. Það var meirihluti bæjarráðs sem samþykkti regl- urnar með áorðnum breytingum. - HS eyn. Margir töldu að eigendur Ak- ureyrinnar ætluðu þar með að brjóta gegn verkfallinu en sam- kvæmt þeim upplýsingum sem Dagur fékk á skrifstofu Sain- herja hf. sem gerir Akureyrina út, er ástæðan fyrir brottsigl- ingu togarans sú að gera á við mótor - úti á sjó. - ESE Stuðningur við kennara 178 kennarar í 9 skólum á Akureyri hafa ritað undir stuðningsyfirlýsingu við kennara í HÍK sem sagt hafa störfum sínum Iausum frá og með föstudeginum 1. mars. í stuðningsyfirlýsingu kenn- aranna 178 segir: „Okkur er ljóst að barátta ykkar fyrir rétt- látum kjörum er í þágu kenn- arastéttarinnar í heild og erum fús til frekari stuðnings ef á þarf að halda.“ Þeir kennarar í HÍK á Akur- eyri sem sagt hafa störfum sín- um lausum kenna allir við Menntaskólann, og er því fyrir- sjáanlegt að kennsla leggst þar niður á föstudagsmorgun, allt í óvissu með framhald þessa máls. í gær var unnið að uppskipun ur togaranum Svalbak í Akureyrarhöfn, en hann kom til hafnar eftir 4ra daga veiðiferð ásamt öðrum togurum ÚA til að stöðva vegna verkfails. Að sögn Einars Óskarssonar hjá ÚA er talið að vinnu hjá fiskverkunarfólki Ijúki á morgun, en þá er líka vika síðan kaup- tryggingu var sagt upp. Mynd: KGA Miskunnarlaus áróður Á félagsráðsfundi KEA sem haldinn var í gær, deildi Valur Arnþórsson, kaupfélagsstjóri, hart á þann „miskunnarlausa áróður“ sem hann sagði vera rekinn gegn minni verslununum Samanburður verðlagsyfirvalda og neytendasamtaka fjallaði eingöngu um verð en aðstæður og þjónustustig gleymdust al- gjörlega. - Sjá bls. 3. Staðbundið útvarp á Akureyri: Byrjað á föstudag! „Það er ákveðið að byrja á föstudaginn,“ sagði Ólafur H. Torfason dagskrárgerðarmað- ur Ríkisútvarpsins á Akureyri er við ræddum við hann um staðbundna útvarpið á Akur- eyri sem nú er um það bil að fara af stað. Útsendingar verða alla virka daga vikunnar, klukkan 7.30-8.00 á morgnana og kl. 18.00-18.30 síðdegis. Sent verður út á dreifikerfi Rásar 2 um sendinn á Vaðlaheiði og þeir sem hafa getað hlustað á Rás 2 munu því heyra útsendingar þessa nýja útvarps. Að undanförnu hefur hópur dagskrárgerðarfólks undir stjórn Jónasar Jónassonar unnið að undirbúningi fyrir þetta útvarp, en dagskrárgerðarliðið er skipað þeim Hrafnhildi Jónsdóttur, Pálma Matthíassyni, Ólafi H. Torfasyni, Ernu Indriðadóttur fréttamanni og Sverri Páli Er- lendssyni. Hér er um tilraunastarfsemi að ræða, og mun árangurinn verða hafður til hliðsjónar þegar ákveð- ið verður með fleiri landshlutaút- vörp af hálfu Ríkisútvarpsins. Ætlunin er að í útsendingum stöðvarinnar á Akureyri verði fjallað um þau mál sem eru efst á baugi á því svæði þar sem út- sendingin mun heyrast. Stefnt er að því að þessi rekstur standi undir undir sér fjárhags- lega með auglýsingatekjum, og virðist sem mikill áhugi sé fyrir því hjá fyrirtækjum að auglýsa í þessu nýja útvarpi. gk-.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.