Dagur - 27.02.1985, Page 2

Dagur - 27.02.1985, Page 2
2 - DAGUR - 27. febrúar 1985 Þetta hefur alltaf blundað í már - segir Steinunn Guðmundsdóttir sem nýlega opnaði Tískuverslun Steinunnar Áttu von á því að sjómannaverkfall- ið standi lengi? Steindór Steindórsson: Ég hef bara ekki vit á þessu. Þetta er allt saman á niðurleið og það verða að koma til rót- tækar aðgerðir ef ekki á að sökkva landinu algerlega í skuldafen. Óttar Einarsson: Ég vona ekki. Ég get engu spáð, en það er ljóst að allt fer til andskotans ef þeir fara ekki að semja. Þórir Óttarsson: Ég hef trú á því. Valdimar Guðjónsson, sjó- maður: Já, ég býst við því, mér sýnist ekkert snúast í samkomulags- átt. Jón Skúli Runólfsson: Það fer eftir útgerðarmönnun- um. Undanfarið hafa aðgerðir stjórnvalda beinst að því að krukka í kaupið og það er kaupið sem allt veltur á í þessu landi, þetta er að verða farsótt og ég sé ekki fram á að ástand- ið lagist nokkuð í nánustu framtíð. Það var mikið að gera í Tísku- verslun Steinunnar rétt undir hádegi á mánudaginn var, er blaðamaður Dags leit þar inn. Eigandinn Steinunn Guð- mundsdóttir var önnum kafin, enda margt um manninn inni í versluninni. Einn viðskiptavin- urinn hafði á orði að það væri engu líkara en Steinunn hefði opnað blómabúð, svo margir blómavasar væru uppi um alla veggi. „Ég á svo marga góða vini,“ sagði Steinunn. Annar viðskiptavinur lét þau orð falla að hann ætti örugglega eftir að koma oft í heimsókn. „Mót- tökurnar hafa verið frábærar,“ sagði Steinunn. Okkur fýsti að vita meira um þessa nýjustu tískuverslun bæjarins og eig- anda hennar og fengum Stein- unni Guðmundsdóttur því í Viðtali Dags-ins. „íslenskar konur eru og vilja vera vel klæddar. Með því að opna þessa verslun er ég að koma til móts við óskir kvenna. Við þörfnumst fegurðar og njótum þess að vera vel klæddar, aðlað- andi er konan ánægð og þessi verslun er sérverslun fyrir konur á öllum aldri. Það sem vantað hefur hér á Akureyri er unglegur og frísklegur fatnaður í stórum númerum, margar ungar konur eru þybbnar en vilja engu að síður klæða sig í falleg föt, en því miður hefur þörfum þessara kvenna lítið sem ekkert verið sinnt. Mig langar til þess að koma Herra ritstjóri. í annað og vonandi síðasta skipti bið ég þig að ljá mér horn í hinu virta blaði þínu undir sýni af hrís- eyskri „hatursinnrætingu". Ég þarf að þakka kveðju frá ungum og hlédrægum pennavini mínum, O.L. Hún var birt á þessum stað fyrir rúmri viku. O.L. er umburðarlyndur í garð mesta herveldis sögunnar en vænir ríkisfjölmiðla okkar um vísvitandi hlutdrægni. Ég ætla að vera stuttorður og nefni aðeins eitt af dæmum hans. Arkadij Sjevtsjenko er einhver hæst setti Kremlverji, sem kaus frelsið og er um þessar mundir að birta vitneskju sína að austan. Þetta er fréttamatur, sem ekki er matbúinn á Skúlagötu 4. Hvorki ég né O.L. getum sannprófað upplýsingar útlagans. En hafi til móts við óskir seni flestra kvenna og reyni að vera með mikla breidd. Ég er með öll núm- er og sel bæði dýra og ódýra vöru, þú getur fengið ódýra hversdagskjóla og einnig dýra sparikjóla. Fólk kaupir föt til nota við mismunandi tækifæri. Ég vil ekki einskorða mig við einn hóp kvenna, heldur er boóið upp á þjónustu við allar konttr. Þar sem ég er kona og húsmóðir get ég sett mig í spor annarra kvenna þegar þær eru í þörf fyrir nýja blússu éða nýjan sþarikjöl fyrir þetta og hitt tækifæriö." - Hvað kom til að þú settir á stofn eigin verslun? „Ég fann að það var þörf fyrir verslun af þessu tagi og ég hef mjög gaman af v^rslunarstörfum. Þetta hefur alltaf blundað í mér, en ég hef ekki farið út í þetta fyrr vegna þess að ég taldi húsmóður- hlutverkið og uppeldisstarfið mikilvægara. Þegar ég taldi mig hafa lokið uppeldisstarfinu þá gat ég tekist á við það sem mig sjálfa langaði að gera.“ - Er ekki svolítið erfitt að standa í þessu? „Það væri kannski æskilegra að vera yngri, það þarf töluvert út- hald í þetta. Það getur verið ansi erfitt að standa í verslunar- rekstri. En þetta barðist í mér og ég tók ákvörðun um að skella mér út í þetta. Hver og einn þarf að taka sínar ákvarðanir. Það skiptir ekki öllu máli hvað fyrir þig kemur heldur hvernig þú vinnur úr því sem hendir þig, Sovétmenn einhvern tíma hug- leitt að kúga Kínverja með kjarn- orkusprengju, er eitt víst, að þeir gerðu það ekki. Þá hefur skyn- semi sigrað bak við Kremlar- múra, og því ber að fagna. Mátti Ríkisútvarpið ekki flytja slíka já- kvæða frétt um Sovétríkin? Gagnrýni O.L. byggist á mis- skilningi í þessu sem öðru, þar sem hann hellir úr skálum reiði sinnar. Þar sem við höfum auðveldan aðgang að upplýsingum, þykir ekki kurteisi að bregða mönnum um þekkingarskort. En vanþekk- ingin á sína eðlilegu skýringu. í okkar góða landi, þar sem mann- réttindi þykja sjálfsögð, höfum við ekki skilyrði til að skilja lífið undir alræðinu. Saklaus dreng- skaparmaður á bágt með að ætla Steinunn Guðmundsdóttir. hvernig þú leysir úr því og hvort þinn eigin vilji fær að brjótast fram.“ - Þú varst húsmóðir til fjölda ára, nýtist sú reynsla vel í rekstri sem þessum? „Já, mjög vel, það er mitt álit að húsmóðurstarfið sé besti grunnurinn fyrir önnur störf og þá ekki síst verslunarstörf. Húsmóðurstarfið kallar fram alla mikilvægustu þættina sem nýtast við önnur störf, ótamandi þolin- mæði, tillitssemi, skipulagningu, óeigingirni, húsmóðirin er sáttasemjari og gerir gott úr öllu og hún lærir að bregð- ast við óvæntum aðstæðum og alls kyns uppákomum. Allir þessir kostir nýtast afskaplega vel í verslunarrekstri og í sam- skiptum við fólk, en þetta starf byggist mikið til á mannlegum samskiptum. Við sem stundum verslunarstörf erum þjónar fólks- ins og eigum að miðla því af reynslu okkar og þekkingu." - Eru það ekki eingöngu kon- ur sem versla í verslun sem þess- ari? erlendum valdhöfum mannfyrir- litningu og grimmd, sem hann þekkir ekki af eigin raun. Það heimtar af okkur karl- mennsku til að horfast í augu við staðreyndir, sem stangast á við hjartfólgnar draumsýnir af „himnaríki okkar bernskutrúar". En þegar öll kurl koma til grafar, vorkenni ég hinum „stóra hóp“ Alþýðubandalagsmanna, sem skortir þennan manndóm og er látinn gjalda blindu sinnar á breyskleika einmitt þeirra landa, sem félagshyggjumönnum ættu að vera einna forvitnilegust. Fyr- ir bragðið misstu þeir hvert tilefni á eftir öðru, sem Stóri bróðir gaf þeim til að rumska við: Réttar- höld Stalíns, blóðbað í Berlín 17. júní 1953 og í Búdapest 1956, innrásin í Tékkóslovakíu 1968, „Það er meira um það nú að hjón komi saman að versla. Það er algengt að þegar kona er búin að skoða og máta þá fær hún lán- aðan kjól heim, til að láta sjá hann og samþykkja, því það er jú hann sem á að horfa á hana í kjólnum. Þetta finnst mér svo ánægjulegt. Ekkert finnst mér eins gaman og að afgreiða karlmenn sem koma og segja: Áttu ekki eitt- hvað virkilega fallegt á konuna mfna. Karlmenn koma alltaf inn í svona „kvennabúðir" til dæmis fyrir jól og eins fyrir afmæli. Ég var að vinna í Vefnaðarvörudeild KEA fyrir um 20 árum og af- greiddi þá mann sem var að kaupa náttkjól handa konu sinni. Þegar við vorum búin að velja fallegan kjól þá spurði ég mann- inn hvaða númer konan notaði en þá vandaðist málið. Þa gerði hann sér lítið fyrir og hrópaði yfir alla búðina: Kári, hvaða númer þarf konan mín af náttkjólum. Hann svaraði að bragði: 42. Svona hlutum þurfum við að standa klár á.“ - mþþ Afganistan, svo að fáein dæmi séu nefnd. Þetta voru gullin tæki- færi fyrir flokkinn til að vinna virðingu alþjóðar með því að leggja spilin á borðið af hrein- skilni og segja: „Á utanríkismál- um höfum við því miður ekki hundsvit. Héðan af fjöllum við aðeins um innlend málefni." Að lokum þetta: Það er engin skömm að vera ungur og óreynd- ur. Ég vona, að O.L. eigi löng þroskaár fyrir sér og að hann hafi nægilega opinn hug til að afla sér þekkingar og andlegs jafnvægis. I því vil ég vera honum hjálp- legur, en mun varla nenna að ansa móðursýkisstunum, sem að mínum dómi eiga heima í lakari blöðum en í Degi. Vinsamlegast Kári Valsson.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.