Dagur - 27.02.1985, Side 8

Dagur - 27.02.1985, Side 8
8 - DAGUR - 27. febrúar 1985 Aðalfundur Ferðamálafélags Akureyrar veröur haldinn aö Hótel KEA fimmtudag 7. mars kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Starri í Garði: Fundur um bæjarmál Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins efna til umræðufundar um bæjarmál í Glerárskóla nk. fimmtudag 28. febr. kl. 20.30. Rætt verður um málefni bæjarfélagsins og fjárhagsáætlun fyr- ir árið 1985. Bæjarbúar eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum. Gert er ráð fyrir öðrum slíkum fundi sem haldinn verður í fé- lagsheimili Sjálfstæðisflokksins, Kaupangi. Verður sá fundur auglýstur nánar síðar. Fáein orð til Hákonar Björns- sonar framkvæmdastjóra Kísiliðjunnar Hákon Björnsson sendir mér ör- stutta kveöju Guðs og sína í Degi, hinn 13. þ.m. í þessari kveðju sinni skýtur Hákon sér undan því að svara þeim spurningum, sem ég beindi til hans í Degi, vegna ummæla hans í garð okkar „sextíumenninganna“, sem fram komu í viðtali við hann í Degi, 28. jan. sl. Nú hnykkir hann enn betur á dylgjum í okkar garð. Það er auðvitað mál Hákonar sjálfs, hvernig hann telur sóma sínum best borgið. Enn leggur hann áherslu á, hvílíkir friðarspillar við séum, sem stóðum að undirskriftum „sextíumenning- POSTUR OG SÍMI - UMDÆMI ni kynnir sýninguna „SÍMABÚNAÐUR ’85“ í Verkmenntaskólanum á Akureyri, húsi tæknisviðs við Þórunnarstræti, laugardaginn 2. mars og sunnudaginn 3. mars, frá kl. 14.00 til 18.00 báða dagana. Meðal þess, sem sýnt verður, má nefna: Einkasímstöðvar/talfærakerfi - sex gerðir mjög fullkominna einkasímstöðva. Þar af er 5 stærstu gerðunum stjórnað af örtölvum, sem gefur mikinn fjölda nýrra möguleika. Símsvarar - 3 gerðir, með og án fjarstýringar. Henta einstaklega vel fyrirtækjum og athafnamönnum, sem oft þurfa að sinna erindrekstri utan síns vinnustaðar. Símatalfæri - um 20 gerðir símatalfæra í mörgum litum. Ennfremur 2ja lína talfæri og ritarasímar. Aukabúnaður - ýmiss aukabúnaður til hagræðis fyrir símnotendur. Telex - nýtt og mjög fullkomið tölvustýrt telex- og ritvinnslutæki. Nú kynnt í fyrsta sinn á íslandi. Tölvunet - kynning verður á nýja tölvunetinu, sem taka á í notkun í sumar. Modem - margar gerðir modema og tengibúnaða. Telefax - í fyrsta skipti á íslandi verður sýnd ný gerð telefax-tækja til myndsendinga innanlands og utan. Mun hraðvirkari en eldri gerðir. Bflasímakerfi - kynnt verður bílasímakerfið. Sérfræðingar okkar verða til upplýsinga og aðstoðar á staðnum. Ennfremur gefst sýningargestum tækifæri á að prófa tækin og kynnast þannig, af eigin raun, kostum þeirra. Einfaldari símatæki verða til sölu á staðnum. Komið og notfærið ykkur þetta einstaka tækifæri, tii að kynnast því nýjasta, sem er á markaðinum, á sviði síma og símabúnaðar. anna“, og tekur upp í grein sinni þann texta, sem skrifað var undir, máli sínu til sönnunar. Athugum þetta nánar. Þegar Kísiliðjan hóf hér innreið sína, var mörgum ofboðið, er stofn- að skyldi hér til fyrirtækis, sem byggði á því að leggja botn Mývatns undir námagröft, því allir vissu að lífríki vatnsins átti sitt ríki á botni vatnsins. Allar viðvaranir í þessa átt voru kveðnar niður af forsvarsmönnum þessarar verksmiðjuhugsjónar, -gott ef þeir voru ekki einmitt kailaðir friðarspillar, sem andæfðu. Ýmsum bolabrögðum var beitt af hálfu áð- urnefndra forsvarsmanna, og er þeirra saga í því máli öli hin ljótasta, og skal ekki nánar rakin hér. Til að sætta menn við verksmiðjuhugmynd- ina, beittu þeir því fyrir sig, að Kísil- iðjan myndi aldrei nýta meira en Ytri- Flóa, - því borið við að tæknilega yrði það svo að vera. Verksmiðjunni væru því ekki ætlaðir lífdagar nema í 30-40 ár. Menn sættu sig við þetta, úr því sem komið var, - hugsuðu sem svo, að ekki væri sýnt að slík tak- mörkuð námuvinnsla þýddi stór- spjöll fyrir lífríkið í heild. Á þessu hefur byggst sá friður, sem ríkt hefur í 20 ár, og Kísiliðjan hefir notfært sér til að brjótast hér til valda, og gera þetta sveitarfélag sér háð, efnahags- og félagslega. Þessi friður hefur að vísu verið blandinn tortryggni og grunsemdum, og skyldi engan undra. Það er þessi friður, sem Hákon vill endilega að haldist áfram, svo Kísiliðjan geti í friði og spekt út- vegað sér námaleyfi, t.d. til 15 ára, og sem felur í sér að námagröftur hefjist í Syðri-Flóa á því tímabili, eins og stjórnarformaður Kísiliðj- unnar hefur staðfest í Víkurblaðinu nýverið. „Auðvitað verður farið í Syðri-Flóa,“ segir stjórnarformaður- inn, en bætir síðan við: „Með þeim fyrirvara, auðvitað, að rannsóknir sýni ekki að lífríkinu stafi stórhætta af, og leyfi fáist því til vinnslunnar þar.“ Hvað merkir þessi klausa, í ljósi þess námaleyfis, sem Hákon Björns- son og félagar hafa nýverið pínt út úr iðnaðarráðherra? Þar stendur m.a.: „Iðnaðarráðherra er heimilt að endurskoða skilmála leyfis þessa, verði verulegar breytingar til hins verra á dýralífi eða gróðri við Mývatn, sem rekja má til náma- rekstrarins, og hafi í för með sér al- varleg og varanleg áhrif til hins verra á dýralíf og gróður við Mývatn. (let- urbreytingar mínar.) Þetta merkir í raun eftirfarandi: 1. Kísiliðjunni verður bjargað, hvað sem í skerst. Heimildin nær að- eins til endurskoðunar á skilmál- um leyfisins. 2. Orðin „Við Mývatn“ merkja ein- faldlega á máli venjulegra manna, það sem er við vatnið, ekki í því né á því, - þ.e. á landi umhverfis vatnið. Spjöll á lífríki vatnsins eru því raunverulega undanskilin. 3. Heimild til að endurskoða skil- mála leyfisins nær aðeins til þess, að „alvarleg“ og „varanleg“ áhrif eigi sér stað, sem rekja megi til námavinnslunnar. í raun og veru þýðir þetta, að þá fyrst skuli breytt skilmálunum, þegar augljós spjöll liggja fyrir, - slysið.er orðið. Að þessu samanlögðu sýnist liggja ljóst fyrir, að vilji forystumenn Kísil- iðjunnar vera álíka hreinskilnir og við sextíumenningarnir, ættu þeir að gefa út opinbera yfirlýsingu, svo- hljóðandi: „Við förum í Syðri-Flóa, hvað sem það kostar!“ Mig grunar og, að námaleyfi þetta hafi legið til- búið á borði ráðherra, áður en undir- skriftir okkar sextíumenninga fóru fram. Því mætti spyrja: Hver rauf friðinn, við sextíumenningarnir eða forsvarsmenn Kísiliðjunnar? Að lokum þetta: Eitt skal ég virða við Hákon Björnsson, umfram aðra félaga hans, sem hafa látið ljós sín skína í þessu máli, - nefnilega það, að hann hefur aldrei það ég til veit brugðið fyrir sig hátíðlegum yfirlýs- ingum um að ekki megi spilla né setja í hættu lífríki Mývatns, - að það skuli jafnvel rétthærra náma- rekstri. Það er jafnan lofsvert, þegar menn tala ekki þvert um hug sinn í alvarlegum málum. \-j 2. 1985 Starrí í Garði. Aðalfundur Sjálfsbjargar á Akureyri og nágrenni verður haldinn að Bjargi, Bugðusíðu 1, fimmtu- daginn 7. mars kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Lagabreytinga. Önnur mál. Kaffiveitingar. Stjórnin. HAGA einíngau* ★ Eldhúsinnréttingar ★ Baðinnréttingar ★ Fataskápar Verslunin Oseyri 4 Hagi hf. Óseyri 4, Akureyri, sími 96-21488

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.