Dagur - 01.03.1985, Page 16
Um helgína í Smíðju:
Laus borð báða daga.
Nýir réttir á helgarseðlinum.
Bjami Herjólfs
seldur til ÚA
- Viðræður hefjast fljótlega
Fyrsta útsending fyrstu staðbundnu útvarpsstöðvarínnar hér á landi gekk vel, en þessi viðburður gerðist hjá starfs-
mönnum Ríkisútvarpsins á Akureyri. Ólafur H. Torfason, Pálmi Matthíasson og Erna Indriðadóttir bera hér saman
bækur sínar á meðan tilkynningalestur var fluttur. Mynd: KGA
Tillaga um 25%
hækkun gjaldskrár
- Við höfum ákveðið að ganga
til samninga við Útgerðarfélag
Akureyringa um sölu á togar-
anum Bjarna Herjólfssyni á
grundvelli þess tilboðs sem
þeir gerðu í togarann.
Þetta sagði Jónas Haralz,
Norska flensan
sennilega komin:
Ástæðulaus
ótti
- Við höfum grun um að þess-
arar veiki hafi orðið vart hér í
bænum en það má vel koma
fram að við læknarnir teljum
ótta fólks ekki í nokkru sam-
ræmi við alvarleika þessarar
flensu, sagði Ólafur H. Odds-
son héraðslæknir á Akureyri
er hann var spurður hvort vart
hefði orðið við „norsku flens-
una“.
Ólafur sagði það enga spurn-
ingu að þessi inflúensa kæmi
hingað fyrst hennar hefði orðið
vart í Reykjavík. Miðað við þær
upplýsingar sem þeir hefðu frá
Noregi og Reykjavík, væri ekki
hægt að segja að þessi flensa væri
alvarlegri en aðrar inflúensur
sem herjað hafa á landsmenn,
þó þessi virtist breiðast mjög ört
út.
- Fólk á yfirleitt í þessu í þrjá
til fjóra daga og þá er það búið en
ég get vel skilið að gamalt fólk og
lasburða sé hrætt við að smitast,
sagði Ólafur.
Mikil ásókn hefur verið í bólu-
efni gegn flensunni og t.a.m.
munu starfsmenn Slippstöðvar-
innar og margir starfsmenn á
Sambandsverksmiðjunum hafa
verið bólusettir, auk þess sem al-
menningur hefur getað fengið
bólusetningu.
- Ég lít nú ekki alvarlegar á
málin en það að mér hefur ekki
komið til hugar að bólusetja
sjálfan mig og enginn læknir hér
á Læknamiðstöðinni hefur látið
bólusetja sig eftir því sem ég veit
best, sagði Ólafur H. Oddsson.
- ESE
bankastjóri Landsbanka íslands
f samtali við Dag er hann kynnti
ákvörðun bankastjórnarinnar í
þessu máli.
Ákvörðunar bankastjórnar
Landsbankans hefur verið beðið
með mikilli eftirvæntingu. Átta
tilboð bárust í togarann, þar af
fjögur af Norðurlandi og má
segja að það hafi tekið bróður-
partinn af febrúarmánuði að
bræða það með sér hverjir fengju
togarann sem áður var í eigu Ar-
borgar hf. á Selfossi. Tilboð
Elliða hf. í Þorlákshöfn í togar-
ann var hæst en þegar banka-
stjórnin tekur sína ákvörðun veg-
ur það hins vegar þyngra á met-
anum að fjárhagur og rekstur Út-
gerðarfélags Akureyringa hf. er
með þeim hætti að bankastjórnin
telur að fyrirtækið geti tekið þær
skuldbindingar á sig sem kaupin
hafa í för með sér.
- Ég á ekki von á öðru en að
samningaviðræður geti hafist
fljótlega en fyrr vil ég ekki gefa
upp hvað við buðum í togarann,
sagði Gísli Konráðsson, fram-
kvæmdastjóri ÚA í samtali við
Dag.
- Þetta eru auðvitað mikil
vonbrigði fyrir okkur ekki síst
eftir að ríkisstjórnin hafði komið
með þau tilmæli að togarinn yrði
ekki seldur í annan landshluta,
sagði Hallgrímur Sigurðsson,
stjórnarmaður í Elliða hf. í Þor-
lákshöfn, er blaðið leitaði álits
hans á ákvörðun bankastjórnar-
innar. - ESE
- Eg tel þaö skyldu skólans aö
koma til móts við nemendur og
veita þeim aðstöðu og styrk til
að stunda námið áfram. Ég er
nýkominn af allsherjarfundi
nemenda og þeirra kennara
sem eftir eru og þar lagði ég
fram „neyðaráætlun“ um
sjálfsnám nemenda undir
stjórn kennara. Nemendur
funda um þetta tilboð á eftir og
þá kemur í Ijós hvort þeir taka
því.
Þetta sagði Tryggvi Gíslason,
Stjórn Hitaveitu Akureyrar
hefur gert tillögu um 25%
gjaldskrárhækkun og var fyrri
umræða um málið i bæjar-
stjórn á þriðjudag. Hækkunm
skiptist í 12,12% vísitöluhækk-
un og 11,49% grunnhækkun,
skólameistari MA, er blaðamað-
ur Dags ræddi við hann í
morgun. Yfir 20 fastráðnir kenn-
arar skólans hættu vinnu í gær og
mættu ekki í morgun en eftir eru
14 fastráðnir kennarar og um 10
stundakennarar. Þessir kennarar
hafa innt af hendi um þriðjung
þeirrar kennslu sem veitt er í
MA.
Ef nemendur ganga að tilboði
skólameistara mun viðvera þess-
ara kennara ekki aukast frá því
sem var. - ESE
sem ekki nái til heimæðar-
gjalda.
Sigurður J. Sigurðsson, sem
sæti á í stjórn veitunnar, gerði
grein fyrir málinu. Hann kvað
þetta mjög stórt mál, því öllum
væri ljóst að upphitunarkostnað-
ur væri mjög hár nú þegar og
þessi tillaga hefði í för með sér
stóraukin útgjöld fyrir bæjarbúa.
Sigurður sagði að ef tekjur
ættu að standa undir rekstri og
fjármagnskostnaði þyrftu þær að
hækka úr um 150 milljónum
króna í 200 milljónir. Þvf væri
ljóst að Hitaveita Akureyrar
þyrfti verulegar tekjur til viðbót-
ar því sem hún nú hefði. Rekstr-
arkostnaður væri áætlaður 38,6
milljónir, sem væri aðeins um 5%
hækkun frá fyrra ári, enda hefði
tekist að minnka raforkunotkun
verulega með bættri nýtingu og
betri stýribúnaði. Þá hefði verið
fækkað í starfsliði veitunnar.
Vaxtakostnaður yrði hins vegar
um 165 milljónir króna á þessu
ári.
Sigurður J. Sigurðsson sagði að
erfitt væri að kalla fram slíka
hækkun en hins vegar óraunhæft
að gera það ekki. Oumflýjanlegt
væri að hafa fyrir rekstri og að
reyna að greiða niður fyrstu
krónuna, eins og hann orðaði
það. Hann sagði að málefni hita-
veitunnar hefðu verið að þróast í
réttan farveg að undanförnu. Nú
væri nauðsynlegt að fá fram rétt
endursöluverð fyrir orkuna,
hvort sem það yrði gert með
hækkun gjaldskrár eða öðrum
hætti. Til dæmis hefði verið rætt
um að bæjarsjóður yfirtæki hluta
skulda um einhvern tíma og
greiddi af þeim, eða að bæjar-
sjóður legði eitthvað til reksturs-
ins á hverju ári.
Gert er ráð fyrir að fundur
verði með stjórn veitunnar og
bæjarfulltrúum áður en hækkun-
artillagan fer til annarrar um-
ræðu. - HS
Neyðaráætlun í MA
- Ég skal ekki fullyrða um hita-
stigið upp á gráðu en það verð-
ur a.m.k. langt yfír það sem
menn eiga að venjast á þessum
árstíma.
Þetta sagði vcðurfræðingur
á Veðurstofunni í morgun.
Hann spáði áframhaldandi vor-
veðri, sa.-átt og þurru veðri
föstudag og laugardag á flestum
svæðum vestan Langaness en
skúrum á annesjum og hugsan-
lega á sunnudag á fleiri stöðum.
Glansgallaefni:
Bleikt, mint, gult, hvítt,
grátt, ljósblátt,
kóngablátt, dökkblátt,
svart, rautt og vínrautt.
Stretchefiií:
Hvítt, svart, rautt, gult,
ljósblátt, ljósgrátt,
kóngablátt og grænt.
Verð aðeins kr. 250,- metrinn.
Ný gerð af joggingefnum í Ijósum litum.
Ný sending af prjónagami:
Pingosport og Pingofine í mörgum litum
Póstsendum.
Miðstöð hagstæðra viðskipta.
<m