Dagur - 06.03.1985, Blaðsíða 1
TÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
MARGAR GERÐIR
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Litmynda-
framköllun
FILMUhúsid
AKUREYRI
68. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 6. mars 1985
27. tölublað
Útsprungiö
brum á trjám
Þessi víðigrein er tekin í innan-
verðum Svarfaðardal og er enn
einn vitnisburðurinn um veður-
sældina í vetur. Brumið út-
sprungið, enda sagði öldungur á
tíræðisaldri þegar hann sá grein-
ina, að hann hefði aldrei vitað
annað eins í þorralok.
Sjómannaverkfall hófst á niiðnætti
á öllum stöðuin á landinu, nema á
Vestfjörðum og í tveim sjómanna-
félögum á Austfjörðum. Nýgerðir
kjarasamningar voru felldir með
miklum mun í atkvæðagreiðslu en
niðurstöður lágu fyrir seint í
gærkvöld.
Rátakjarasamningurinn var
felldur með 655 atkvæðum gegn
384. Togarasamningurinn með 50
gegn 15. Sjómenn á Vestfjörðum
eru ekki í verkfalli en hafa boðað
samúðarverkfall frá næstu helgi
hafi samningar ekki tckist. A
Austfjörðum var sérkosning.
Samningurinn var felldur á Seyðis-
firði, Neskaupstað, Eskifirði, Fá-
skrúðsfirði og Breiðdalsvík en
samþykktur á Reyðarfirði og
Stöðvarfirði.
Meðl'ylgjandi mynd tók KGA af
sjómönnum á fundi á Hótel Varð-
- ESE
Ullarvörur fyrir 125 milljónir króna til Sovétríkjanna:
Tiyggir vinnu fyrir 100
starfsmenn í eitt ár
í síðustu viku voru undirritaðir
í Moskvu samningar á milli
Iðnaðardeildar Sambandsins
og sovéska samvinnusam-
bandsins, samningar um sölu
á ullarvörum til Sovétríkjanna
að verðmæti um þrjár milljónir
dollara eða um 125 millj. ís-
lenskra króna. Við sama tæki-
færi voru undirritaðir samning-
ar um sölu á Sjafnarmálningu
fyrir um 1,3 millj. dollara.
Það voru þeir Hjörtur Eiríks-
son, forstjóri og Sigurður Arn-
órsson, aðstoðarforstjóri Iðnað-
ardeildar sem undirrituðu samn-
inginn fyrir hönd framleiðenda.
Alls var samið um sölu á 360 þús-
und einingum af fatnaði, treflum
og teppum en þessi eini samning-
ur tryggir 100 manns vinnu í eitt
ár.
- Við fórum fyrst til samninga-
viðræðna við Sovétmenn um
miðjan desember en þá ákváðum
við að ganga ekki til samninga
við þá að svo stöddu. Síðan var
þráðurinn tekinn upp að nýju og
samningar gerðir og undirritaðir
nú. Það var vel þess virði að bíða
því við náðum fram samningum
um mikla magnaukningu, sagði
Sigurður Arnórsson í samtali við
Dag.
Sigurður upplýsti að vörurnar
yrðu afhentar á þessu ári, aðallega
á seinni hluta ársins og þegar væri
hafist handa við að framleiða upp
í samninginn.
- Við verðum að bæta við
okkur mannskap vegna þessa en
það er þó inest um vert að samn-
ingurinn tryggir atvinnu eitt
hundrað manns, sagði Sigurður
Arnórsson.
Þess má geta að auk samnings-
ins um sölu á ullarvörunum og
málningunni, ræddu þeir Sigurð-
ur og Hjörtur við Sovétmenn um
sölu á skinnavörum til Sovétríkj-
anna. Tók Örn Gústafsson,
markaðsstjóri skinnadeildar þátt
í þeim viðræðum. - ESE
„Höfum ekki sótt fé
í bæjarsjóð í 17 ár“
- segir Gísii Kon-
ráðsson hjá ÚA
vegna fuilyrðinga
stjórnarformanns
Eliiða hf.
„Það eru tveir bflar farnir
suður og það er verið að at-
huga málið,“ sagði Hólm-
steinn Hólmstcinsson fram-
kvæmdastjóri hjá Möl og sandi
er við spurðum hann hvort ætl-
unin væri að leigja verulegan
hluta steypubflaflota fyrir-
tækisins til Reykjavíkur.
„Ef þetta kemur sæmilega út,
Viðræður Landsbankans og
Útgerðarfélags Akureyringa
vegna kaupanna á Bjarna
þá stendur til að leigja allt að 6
bíla af þeim 12 sem við eigum,'1
sagði Hólmsteinn. „Annars er
þetta ekki bein leiga, við tökum
að okkur útkeyrslu á steypu fyrir
steypustöðina ÓS gegn ákveðnu
rúmmetragjaldi og leggjum til
mannskap með bílunum.
Það er annars ekki tímabært að
segja til um framhaldið, það fer
eftir því hvernig þetta kemur út,
Herjólfssyni ÁR eru enn ekki
hafnar. Forráðamenn ÚA bú-
ast við bréfí frá Landsbankan-
en við erum að revna að bjarga
okkur, klóra í bakkann."
- Sjáið þið lítið framundan á
Akureyri í sumar?
„Því miður verð ég að segja að
það er heldur lítið og rólegt. Það
verða einhverjar framkvæmdir á
vegum bæjarins og hins opinbera
en því miður verður það ekki
mikið.“ gk-.
um á hverri stundu og þegar
það hefur borist verður hægt
að ákveða um framhaldið.
Talsverð blaðaskrif hafa orðið
vegna þessarar ákvörðunar
Landsbankans og stjórnarfor-
maður Elliða hf. í Þorlákshöfn
hefur látið hafa það eftir sér að
bankastjórnin hafi tekið þessa
ákvörðun fyrir löngu og ástæðan
sé sú að ÚA geti tryggt greiðslur
með því að ganga í bæjarsjóð
Akureyrar hvenær sem þeim
henti. Þá lætur stjórnarformaður-
inn að því liggja að hefðbundin
útgerð togarans sé ómöguleg.
Slíkt kalli á taprekstur.
•- Jónas Haralz, bankastjóri
Landsbankans er búinn að svara
öllum þessum fullyrðingum
mannsins og ég get aðeins bætt
því við að við höfum ekki sótt fé
í bæjarsjóð síðan 1968 eða í bráð-
um 17 ár, sagði Gísli Konráðs-
son, framkvæmdastjóri ÚA er
- segir Gísli Kon-
ráðsson hjá ÚA
vegna fullyrðinga
stjórnarformanns
Elliða hf.
Dagur bar þessi ummæli undir
hann.
- Við vitum að það verð sem
rætt er um er of hátt fyrir skipið
en ntálið er einfaldlega það að
við eigum ekki annarra kosta völ
í dag, sagði Gísli og bætti því við
að hann væri ekki hræddur við að
gera togarann út á hefðbundinn
hátt.
- Nú hefur heyrst að Bjarni
Herjólfsson sé ekki í sem bestu
standi. í hvaða ástandi verður
skipinu skilað? Verður það með
haffærnisskírteini?
- Ég geri ráð fyrir að það sé
sanngjörn krafa að skipið verði
afhent með haffærnisskírteini en
samningar eru auðvitað ekki
hafnir og ég geri ráð fyrir því að
það sé ýmislegt sem við þurfum
að gera fyrir skipið sem Lands-
bankinn mun ekki gera, sagði
Gísli Konráðsson. - ESE
Helmingur steypubíla-
flotans til Reykjavíkur