Dagur - 06.03.1985, Blaðsíða 12
ÞJONUSTA
FYRIR
HÁÞRYSTISLÖNGUR
OLÍUSLÖNGUR og BARKA
PRESSUM
TENGIN Á
FULLKOMIN TÆKI
VÖNDUÐ VINNA
Heimavistar-
málin í
mesta ólestri
Nemendur MA eru nú kennaralausir að mestu, en eru ekki af baki dottnir. Þessa dagana stunda nemendumir sjálfs-
nám af kappi, mæta í skólann á morgnana og grúfa sig yfir námsbækurnar, nú eða spjalla við náungann. Þessi mynd
var tekin í gærmorgun af nokkram nemendum í fjórða bekk félagsfræðideildar. Mynd: KGA
HættTr K. Jónsson
við að byggja?
Nefnd sem skilaði áliti um
heimavistir framhaldsskóla-
nema á Akureyri í aprfl á síð-
asta ári komst að þeirri niður-
stöðu að ótvíræð þörf væri á
því að byggja heimavistir fyrir
200-225 nemendur í bænum.
Nefndin benti einnig á að
ódýrasti kosturinn væri að
byggja við núverandi heima-
vistir Menntaskólans fyrir um
það bil 150 nemendur.
„Það eru nú liðnir 11 mánuðir
síðan nefndin skilaði þessu áliti
sínu og það hefur ekkert heyrst
um málið síðan þá,“ sagði Hauk-
ur Árnason formaður skóla-
nefndar Verkmenntaskólans á
Akureyri, en Haukur átti einnig
sæti í nefndinni.
Skólanefnd Verkmenntaskól-
ans ræddi þetta mál á fundi sín-
um sl. föstudag og á þeim fundi
samþykkti skólanefndin að skora
á bæjarstjórn Akureyrar að hafa
frumkvæði að því að hrinda
þessu máli í framkvæmd.
„Dags-mót“
í kraft-
lyftingum
Dags-mótið í kraftlyftingum
verður haldið í Dynheimum
16. mars nk. kl. 14. Allir bestu
kraftlyftingamenn Akureyrar
verða meðal þátttakenda og
búast má við gestum að
sunnan.
Það hefur orðið að ráði að
Dagur muni styrkja þetta mót
með því að gefa til þess verðlaun.
Erlendis er mjög algengt að blöð
styðji þannig við bakið á íþrótta-
starfsemi og eins hefur þetta ver-
ið gert í einhverjum mæli hér-
lendis.
Á mótinu verður keppt um
Dags-bikarinn, veglegan farand-
bikar sem stigahæsti maöur m'óts-
ins hreppir. Nánar veröur greint
frá þessu móti og keppendum
síðar. - ESE
Haukur Árnason sagði að það
væri staðreynd að þessi mál væru
í hinum mesta ólestri, og þess
væru dæmi að nemendur hefðu
orðið að fara annað til náms
vegna þess að ekki væri heima-
vistarrými á Akureyri fyrir alla
þá nemendur sem þess óskuðu.
gk-.
Ólafsfjörður:
Fiskeldis-
félagið
stofnað
„Það er nú hlutverk hinnar
nýkjörnu stjórnar fyrirtækisins
að taka ákvörðun um í hvaða
framkvæmdir verður ráðist í
sumar, og hvernig staðið verð-
ur að uppbyggingu félagsins,“
sagði Valtýr Sigurbjarnarson
bæjarstjóri í Ólafsfirði, en þar
var í fyrrakvöld stofnað félag
um fiskeldi í Ólafsfjarðarvatni
og hlaut það nafnið Óslax hf.
Stofnun félagsins hefur verið
lengi í burðarliðnum en á fundin-
um í fyrrakvöld var ákveðið að
hlutafé þess yrði 5 milljónir
króna, og stærstu hluthafar eru
Kaupfélag Eyfirðinga, Samband
íslenskra samvinnufélaga, Veiði-
félag Ólafsfjarðarár og Ólafs-
fjarðarbær.
Fiskeldi hefur verið stundað í
Ólafsfjarðarvatni um nokkurn
tíma, og í haust munu um 1 000
laxar sem aldir hafa verið í vatn-
inu vera komnir í sláturstærð. Þá
eru til staðar um 30 þúsund seiði,
og þarf nú að taka ákvörðun um
hversu miklum hluta þessara
seiða verður sleppt í hafbeit og
hversu stór hluti verður alinn til
slátrunar í kvíum í vatninu.
Stjórn félagsins skipa Sigurður
Jóhannesson, Sveinbjörn Árna-
son, Markús Stefánsson, Ásgeir
Ásgeirsson og Þorsteinn Ágústs-
son. gk-.
„Mér sýnist helst á öllu að við
munum ekki byggja neitt þrátt
fyrir þessa heimild, því henni
fylgir ýmislegt sem sjálfsagt
kemur í veg fyrir bygginga-
framkvæmdir,“ sagði Kristján
Jónsson hjá K. Jónssyni og Co.
er Dagur ræddi við hann.
Fyrirtækið hefur fengið heim-
ild til þess að láta gera uppfyll-
ingu austan við núverandi verk-
smiðju fyrirtækisins, en þessi
uppfylling mun hafa átt að vera
um 2 000 fermetrar. Samkvæmt
erindi fyrirtækisins til bæjaryfir-
valda hugðist fyrirtækið reisa þar
hús til rækjuvinnslu og frekari
forvinnslu annarra sjávarafurða.
Kristján Jónsson vildi ekki tjá
sig frekar um þetta mál, en sam-
kvæmt heimildum Dags mun óá-
nægja fyrirtækisins stafa af því að
hafnarnefnd sem var umsagnar-
aðili um umsókn fyrirtækisins
krafðist þess að hafnarsjóður
Sjö manns slösuðust talsvert í
hörðum árekstri sem varð á
Sauðárkróki á mánudags-
kvöld.
Áreksturinn varð með þeim
hætti að Fiat-bifreið var ekið frá
hafnarsvæðinu inn á Eyrarveg í
veg fyrir Daihatsu-bifreið á
suðurleið. Virti ökumaður Fiat-
bifreiðarinnar ekki biðskyldu
sem þarna er. Báðir ökumenn
ætti uppfyllinguna þótt fyrirtækið
bæri kostnað við gerð hennar.
gk-.
reyndu að afstýra árekstri en það
tókst ekki betur en svo að bif-
reiðarnar skullu saman og
Daihatsu-bifreiðin valt. í henni
voru þrír piltar en í Fiat-bifreið-
inni voru fjórir nemendur Fjöl-
brautaskólans.
Allir þeir sem voru í bifreiðun-
um voru fluttir á sjúkrahúsið og
voru meiðsli talsverð en ekki lífs-
hættuleg. - ESE
Árekstur á Sauðárkróki:
7 á sjúkrahús
í dag er reiknað með hægri
sunnan- og suðvestanátt;
það léttir til á austanverðu
Norðurlandi, en vestan til
má búast við einhverjum
slydduéljum. Á morgun
verður áfram suðlæg átt og
tiltölulega bjart, en seint
annað kvöld er spáð vax-
andi suðvestanátt og þá
þykknar í lofti og hlýnar.
# Fenjabjór
Nú, mitt i allrí umræðunni um
það hvort leyfa eigi bjór hér
á landi eða ekki kemur Bún-
aðarþing 1985 með þá tillögu
að rannsakað verði hvort
fenjabjór geti ekki verið góð-
ur fyrir bændur. - Sjálfsagt
hugsar nú einhver sem svo
hvort fara eigi í innflutning á
einhverjum sérstökum bjór
fyrir bændur, og er það rétt.
Ekki munu þeir þó drekka
fenjabjórinn, enda ekki vitað
til þess að hann hafi nokkurn
tíma verið drukkinn ...
Fenjabjórinn er smádýr sem
þykir henta einkar vel til loð-
skinnaframleiðslu og búnað-
arþlng vill að athugað verði
hvort ræktun hans henti ís-
lenskum bændum. Auk
skinnsins af fenjabjórnum
má nýta kjötið af honum og
tvær rauðar tennur í munni
hans þykja henta vel tii skart-
gripaframleiðslu. Hver veit
því nema bændur á íslandi
muni opna bjórbú áður en
langt um líður?
# Skíðamenn
með skeifu
Veturinn hefur svo sannar-
lega leikið skíðamenn illa. Ef
svo heldur fram sem horfir,
verður að hækka lyftugjöldin
í Hlíðarfjalli verulega tll þess
að það verði ekki stórtap á
því að reka ekki lyfturnar.
Tíðarfarið hefur svo sannar-
lega leikið við landsmenn á
þessum vetri. Tíðarfarið í
þessu tilviki þýðir snjór því
hiti á Akureyri var t.d. 0,8
gráðum lægri en í meðalári í
janúar og 0,5 gráðum lægri í
febrúar sem er allnokkuð.
Það er í sjáifu sér ekkert eins-
dæmi að það sé lítill snjór á
þessum árstíma og skeifa sé
á skíðamönnum. Nægir að
benda á mars í fyrra þegar
það var sól og blíða á Akureyri
og neyðarástand í Fjallinu.
En snjórinn kom og það er
hætt við að hann geri það að
þessu sinni líka. En nú er að
sjá hvor hefur betur, veður-
spámaður Dags eða ívar á
Skíðastöðum.
# Brandari
hjá henni
Togstreita milli kynjanna er
ekkert nýnæmi. Rætt er um
betri helminginn, veikara
kynið og svo framvegis. Hér
er eitt skemmtilegt innlegg í
umræðuna: Guð skapaði
manninn - en það átti nú bara
að vera brandari hjá henni!