Dagur - 08.03.1985, Page 3

Dagur - 08.03.1985, Page 3
8. mars 1985 - DAGUR - 3 Pottormar valda vanda í síðustu blöndu sagði ég frá há- degis-pottormunum í Sundlaug Ak- ureyrar, sem héldu sitt þorrablót á dögunum. Tilefni skrifanna var vísu- korn Þórhalls Einarssonar; Ei skal líkamsræktin rengd, ryðgaðir liðkast skrokkar - Synti í flýti flöskulengd, formaðurinn okkar. Auðvitað varð ég að skreyta þetta með mynd. Fór ég því í myndasafnið og fann þar þriggja ára gamla mynd af hádegis-pottormunum og notaði hana. Þessi mynd olli miklu fjaðra- foki strax við útkomu blaðsins. Mér skilst að íþróttaráð hafi verið með langan og strangan aukafund um málið og á tímabili mun hafa litið út fyrir að hádegis-pottormarnir yrðu settir í ævilangt pottbann og forstjórastaða Hauks vinar míns Berg mun hafa hangið á bláþræði. Ástæðan var sú, að pottormarnir höfðu haldið sitt þorrablót í pottin- um fyrir þremur árum og þá voru myndir teknar og birtar í Degi. Nátt- úrlega var slíkum svallveislum í íþróttamannvirkjum almennings mótmælt harðlega og íþróttaráð og bæjarstjórn áréttuðu að slíkt mætti ekki endurtaka sig. En þegar þessi gamla mynd birtist aftur héldu menn að „sukkið" væri aftur byrjað í pott- inum. En það er mesti misskilningur, því blótið í ár héldu hádegis-pott- ormarnir í Smiðjunni, eins og mynd- in hér til hliðar sannar. Hins vegar ætla ég, mönnum til fróðleiks og við- vörunar, að birta hér aftur myndina frægu, sem alls ekki má birta. ssa Steinn úr glerhúsi Myndlistarmaðurinn Valgarður Stefánsson gagnrýnir okkur Dagsmenn harðlega í síðustu Dagskrá fyrir það sem við skrif- um ekki um, að hans mati; þ.e. menningarviðburði ýmiss konar. Segir Valgarður að við sveltum suma listamenn hreinlega í hel. Ja, mikill er máttur okkar. Það má til sanns vegar færa, að gagn- rýni um ýmsa menningarviðburði hér á Akureyri hefur vantað í Dag, einfaldlega vegna þess að kunnáttufólk hefur ekki fengist til slíkra verka, t.d. til umfjöllun- ar um myndlist og tónlist. Von- andi stendur það til bóta. Væri þeim ágæta dreng, Valgarði Stef- ánssyni, nær að leggja okkur lið í þeim efnum, en að kasta að okk- ur steini úr því glerhúsi sem „menningarritið" Dagskráin er. Kaffisem bragð er að Kaffimálið hefur fengið mönnum ærið tilefni til umræðna í svart- asta skammdeginu í vetur og enn er það ekki úr sögunni. Þetta mál er nú til meðferðar hjá réttum yfirvöldum, sem vonandi koma því á hreint fyrr en síðar. En þrátt fyrir þetta leiðindamál hafa samvinnumenn sem aðrir haft lag á því að gera úr því nokkurn húmor. Þannig er landfrægt þeg- ar Ómar Ragnarsson sagði við Sambandsforstjórana við há- borðið í veislunni forðum: - Nei, mikið eruð þið kaffibrúnir og sæl- legir allir saman. Svo var það einn af vinum mín- um hjá Sambandinu sem hitti forstjórann sinn á flugvellinum. Þeir heilsuðust og vinur minn sagði kumpánlega: - Velkominn heim, hvað segir þú svo í fréttum úr útlandinu? - Ekki baun, svaraði Sam- bandsforstjórinn. Segiði svo að kaffibætirinn sé úr sögunni. En þrátt fyrir illar tungur lætur Kaffibrennsla Akur- eyrar ekki deigan síga, því þaðan er nýkomið koffínlaust kaffi, sem þykir ljúft á bragðið og fer sigur- för um landið. ERO I3 kr. 3.710. Hæðarstilling á baki og setu. Veltibak ERO DA I5 t kr. 4.980.- Hæðarstilling á baki og setu. Veltibak g Veltiseta " ERO CD I5 kr. 7.340- Hæðarstilling á baki og setu. Veltibak Veltiseta * ERO stólarnir veita baki þínu réttan stuðning og koma í veg fyrir óeðlilega þreytu og spennu í hryggnum. Þeir hafa alla yfirburði fullkomnustu stóla en eru engu að síður á einstaklega lágu verði. Stóðst gæðaprófun Teknologisk institut í Noregi. STÁLHÚSGAGNAGERO STEINARS HF. SKEIFUNNI 6.SÍMAR: 33590.35110. 39555

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.