Dagur - 08.03.1985, Síða 11
8. mars 1985 - DAGUR - 11
Eftir dauða Cerdans fer að halla
undan fæti hjá Edith Piaf. Við tekur
áratugur mikilla veikinda, liðagigtar,
alls kyns maga- og lifrarsjúkdóma,
auk þess sem neysla söngkonunnar á
áfengi og deyfandi og örvandi lyfjum
fór í vöxt. Ofan á allt saman bættust
fjölmörg bílslys, en alltaf stóð Edith
upp aftur, til að fara í tónleikaferða-
lög og syngja inn á plötur. Loks töldu
læknar að þetta væri orðið henni um
megn og hristu höfuðin. Samt sem
áður tókst henni enn að fara í tón-
leikaferðalög í þrígang, sem flestir
líktu við sjálfsmorð. Hún leið nokkr-
um sinnum út af á sviðinu eða þá að
hún missti minnið í miðjum söng.
Edith Piaf lést í október 1963.
Tugir ef ekki hundruð þúsunda Par-
ísarbúa fylgdu litla spörfuglinum til
grafar. Par í hópi voru tryggustu vin-
irnir; Marguerite Monnot lagasmið-
ur, Marlene Dietrich og Yves Mont-
and auk allra þeirra sem tóku ást-
fóstri við söngkonuna.
Edith Piaf var götustelpa sem
komst til frægðar og frama. Hún lifði
líka dýpstu niðurlægingu. Hún gat
verið hörð og orðhvöt eins og þeir
sem alast upp á götunni, en hún lifði
líka fyrir ástina. Og hún lifði hratt.
Sigurður Pálsson leikstýrir Piaf.
Hann er Norðlendingur að uppruna,
því hann er fæddur að Skinnastað í
Öxarfirði. Hann þekkir vel til í París,
því að afloknu stúdentsprófi fór hann
til borgarinnar og fyrsta árið hans þar
fór í að læra frönskuna. Síðan settist
Sigurður í leikhúsfræðadeild Sor-
bonneháskóla og lauk svonefndri
DUEL gráðu og fyrri hluta magister-
gráðu 1973. Eftir það fór Sigurður
heim og starfaði um tíma í Reykja-
vík, var m.a. kennari Leiklistarskóla
SÁL og Leiklistarskóla íslands. Enn-
fremur starfaði hann við ritstörf og
leikstjórn. Haustið 1977 hélt kappinn
svo aftur til Parísar og lauk magister-
gráðu í leikhúsfræðum frá Sor-
bonne 1980. Einnig lauk hann prófi í
kvikmyndaleikstjórn frá Conservat-
oire du Cinéma Frangais. Síðan hef-
ur Sigurður bætt við sig fyrri hluta
doktorsgráðu í leikhúsfræðum.
Guðný Björk Richards hannar
leikmyndina. Hún er Mývetningur
og útskrifast úr grafíkdeild Handíða-
og myndlistarskóla íslands í vor.
Hún hefur starfað með leikhópnum
Svörtu og sykurlausu við gerð á leik-
myndum, búningum, grímum óg haus-
um. Auk þess hefur hún starfaðjneð
Stúdentaleikhúsinu, gerði m.a. leik-
myndina í Jakobi og meistaranum.
Guðný Björk tók þátt í samsýningu 7
myndlistarkvenna að Kjarvals-
stöðum síðastliðið sumar.
Aðspurð í leikskrá segist Guðný
vinna leikmyndina í Piaf út frá rödd
söngkonunnar og þeirri nætur-
stemmningu, sem hún lifði í. Eftir
kynni sín af Piaf á hljómplötum, í
ævisögum og kvikmyndum af henni
segist Guðný hrífast mest af því hvað
Piaf var ekta. Hún hafi haldið ein-
kennum sínum og tengslum við upp-
runann allt sitt líf og hún hafi sóst
eftir blíðu og ást í stað veraldlegra
gæða. Kyntöfrar hennar voru hríf-
andi vegna þess að þeir voru ekki til-
búnir. Það var aðdáunarvert hvað
hún hélt röddinni þrátt fyrir átaka-
samt líf. Hún var full af andstæðum:
Stór sál í litlum líkama. - GS
Viðar Garðarsson, Ijósahönnuður, Sigurður Pálsson, leikstjóri og
Signý Pálsdóttir, leikstjóri. Mynd: KGA
Hnefaleikarinn Marcel Cerdan var stóra ástin í lífi Piaf. Mynd: GS
Samtök um kvennaathvarf
á Norðurlandi
Aðalfundur samtakanna verður haldinn
sunnudaginn 24. mars kl. 14.00 í Húsi aldraðra.
Dagskrá:
Skýrsla liðins árs.
Lagðir fram reikningar og fjárhagsáætlun.
Lagabreytingar.
Kosning fulltrúa í framkvæmdanefnd
og endurskoðendenda.
Önnur mál.
Á fundinum mun Ragnheiður Guðmundsdóttir segja
frá starfi sínu með samtökum í Bandaríkjunum,
sem styðja konur sem hefur verið nauðgað.
Nýir félagar velkomnir.
Framkvæmdanefnd.
Lögtaksúrskurður
Hér með úrskurðast lögtök fyrir vangreiddum
söluskatti mánaðanna október, nóvember og
desember 1984 á Akureyri, Dalvík og í Eyjafjarð-
arsýslu, svo og fyrir söluskattshækkunum. Enn-
fremur tekur úrskurður þessi til þinggjaldahækk-
ana á gjaldendur í umdæminu, launaskatts 1984.
Svo og úrskurðast lögtök fyrir þungaskatti sam-
kvæmt mæli af díselbifreiðum fyrir mánuðina
október, nóvember, desember og janúar sl., þ.e.
af bifreiðum með umdæmismerki A. Loks tekur
úrskurðurinn til dráttarvaxta og kostnaðar.
Fer lögtak fram að liðnum 8 dögum frá birtingu úr-
skurðar þessa.
Ðæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík,
sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu,
7. mars 1985.
Faðir okkar,
GESTUR VILHJÁLMSSON,
fyrrum bóndi,
Bakkagerði, Svarfaðardal,
sem lést 1. mars verður jarðsunginn frá Dalvikurkirkju laugar-
daginn 9. mars kl. 13.30.
Jarðsett verður að Tjörn. Þeim sem vildu minnast hins látna,
er bent á Dalbæ, heimili aldraðra Dalvík.
Börnin.
Útför eiginmanns míns og föður,
ÓLAFSJÓNSSONAR,
vélstjóra, ^
Munkaþverárstræti 21, Akureyri,
fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 11. mars kl. 13.30.
Ingibjörg Þorvaldsdóttir,
Ásdís Ólafsdóttir.
Framsóknarmenn
Akureyri_______________
Framsóknarfélag Akureyrar
Almennur félagsfundur um fjárhagsáætlun
bæjarsjóðs Akureyrar verður í Strandgötu 31,
mánud. 11. mars kl. 20.30.
FRAMSÓKNARFÉLAG
AKUREYRAR