Dagur - 08.03.1985, Síða 16
Akureyri, föstudagui 8. mars 1985 /dfECiÁ Bjóðum sem fyrr ódýrasta lcSmyííl njÚf¥) matinn fyrir leikhúsgesti. Ykkar að dæma hvar sá besti er!
Skákþing Noröurlands hófst á Akurcyri í gær. Helgi Bergs, bæjarstjóri lék
þá fyrsta leikinn í skák Hjálmars Theódórssonar frá Húsavík og Gylfa Þór-
hallssonar, núverandi skákmeistara Norðurlands. Skáksambandið er 50 ára
um þessar mundir en svo skemmtilega vill til að Hjálmar sem nú stendur á
sjötugu tók þátt í fyrsta mótinu fyrir 50 árum. Mynd KGA
Sjómannadeilan:
Samningar tókust
- Kostnaðarhlutdeild lækkkuð strax um 2%
Samningar í sjómannadeilunni
tókust á sáttafundi í Reykjavík
í gær. Samkomulag tókst þegar
tilboð kom fram um að kostn-
aðarhlutdeild sjómanna yrði
lækkuð strax um þau tvö prós-
ent sem áður hafði verið samið
um. Frumvarp þessa efnis
verður lagt fram á Alþingi
strax í byrjun næstu viku.
Þessir nýgerðu samningar hafa
verið samþykktir í félögum víða
um land en á öðrum stöðum hef-
ur verkfalli verið frestað. Á Ak-
ureyri voru samningarnir sam-
þykktir með 41 atkvæði gegn 4.
Á Ólafsfirði með 24 gegn 6,
Sauðárkróki með 15 gegn 14 en
auk þess voru samningarnir sam-
þykktir á Skagaströnd, Siglufirði
og Þórshöfn. Á Austfjörðum
slitnaði hins vegar upp úr við-
ræðum er í ljós kom að sjómenn
þar vildu meira en samið hafði
verið um í Reykjavík.
Segja má að þessi samningur
hafi komið á réttum tíma fyrir
sjómenn við Eyjafjörð. Sam-
kvæmt heimildum Dags réru sjó-
menn á öllum bátum frá Greni-
vík og Árskógssandi þegar á
þriðjudag eða miðvikudag og
nokkrir bátar frá Dalvík og Hrís-
ey réru einnig.
Að sögn Jóns Hjaltasonar hjá
Sjómannafélagi Eyjafjarðar staf-
aði þetta að hluta til af því að
menn misskildu frestun verkfalls
fyrir sunnan en Sjómannafélag
Eyjafjarðar hafði hins vegar fellt
tillögu um frestun.
- Nú reynir á stéttvísina, sagði
Jón í samtali við Dag en skömmu
síðar bárust svo fréttir um að
samningar hefðu tekist. - ESE
Fiskverkun:
Geysilegt
atvinnuleysi
Skólarnir ganga
ekki án kennara
Kennarar sem sögðu upp störf-
um hafa gagnrýnt þá ráðstöfun
sem viðhöfð er við Mennta-
skólann á Akureyri, en þar er
reynt að aðstoða nemendur
eftir föngum við sjálfsnám og
það gera m.a. þeir kennarar
skólans sem ekki sögðu upp
störfum. Hefur verið haft á
42ja ára gamall maður lést við
köfun skammt sunnan við Dal-
víkurhöfn laust fyrir hádegið í
gær.
Maðurinn var að vinna við
dælurör sem flytur sjó í fiskeld-
orði að verið sé að ganga í störf
þeirra sem hættu, rjúfa sam-
stöðu kennara í kjarabaráttu
þeirra. Á hinn bóginn hefur
verið á það bent að ekki sé í
störf annarra að fara, þar sem
þeir sem sögðu upp séu ekki
lengur starfsmenn skólanna -
ólíkt því sem væri ef um verk-
isker nýrrar fiskeldisstöðvar á
Dalvík. Ekki er vitað með vissu
hvað gerðist, en tilgáta hefur
komið fram um að hann hafi
fengið hjartaáfall. Maðurinn
mun ekki hafa verið vanur köfun-
arstörfum. HS
fallsaðgerðir væri að ræða.
Tryggvi Gíslason skólameistari
M.A. hefur tekið undir þá
skoðun að ekki geti verið um það
að ræða að gengið sé í annarra
störf, því þessi störf séu ekki
lengur til vegna uppsagnanna.
Tryggvi hefur hins vegar lagt á
það áherslu við Dag að neyðar-
þjónustan í M.A. sé aðeins til
bráðabirgða og þetta ástand geti
ekki varað til lengdar: „Það er
ekki hægt að reka skólana án
kennara, ánægðra og góðra
kennara. Til þess að svo megi
verða þurfa launakjör þeirra að
lagast mjög verulega,“ sagði
Tryggvi í viðtali við Dag.
Til þessa hafa um 80% nem-
enda mætt að morgni og margir
unnið sameiginlega að lausn
verkefna. Mæting annarra mun
þó vera lítið annað en orðið eitt.
- HS
Nokkuð á annað þúsund
manns sem vinna við fískverk-
un á svæðinu frá Skagaströnd
til Húsavíkur höfðu misst at-
vinnu vegna sjómannaverk-
fallsins og voru komnir á at-
vinnuleysisskrá.
Samkvæmt heimildum Dags
voru 150 komnir á atvinnuleysis-
skrá á Ólafsfirði og um 30 manns
bætast við eftir helgina ef samn-
ingarnir frá í gær verða ekki sam-
þykktir. Á Dalvík er þessi tala
um 100 og sömu sögu er að segja
frá Sauðárkróki, Siglufirði og
Skagaströnd. Þá var talið að um
50 manns væru komnir á skrá í
vikunni í Hrísey og á Húsavík var
Fiskvinnslufólk hefur lítið að gera
þessa dagana.
þessi tala 230.
Samþykki deiluaðilar sam-
komulag það sem náðist í gær
mun flest af þessu föík'i fá vinnu
um miðja næstu viku.
Snældu-Blesi:
Farinn
að tylla
í fótinn
„Þetta er heldur í áttina, hann
er aðeins farinn að tylla í
fótinn. Það er ekki annað að
sjá en brotið sé orðið fast,“
sagði Ármann Gunnarsson,
dýralæknir, sem ásamt fleiri
góðum hefur annast stóðhest-
inn Snældu-Blesa sem fót-
brotnaði 1. október sl.
Ármann sagði að menn væru
að verða vonbetri um að þetta
gengi. Magni Kjartansson, eig-
andi Snældu-Blesa, sagðist vona að
þetta gengi betur og betur með
hækkandi sól, en Magni hefur
verið að kenna hrossinu að stíga
í fótinn og er byrjaður með hann
í léttri endurhæfingu. - HS
Maður lést við
köfun á Dalvík
Hvassviðrið sem gengur nú
yfir Suðvesturlandið og nær
allt til Skagafjarðar mun lík-
iega ekki ná til Norðaustur-
landsins og ekki heldur úr-
koman sem lægðinni fylgir.
Önnur lægð kemur annað
kvöld og viðheldur veðrinu.
Hitastig norðanlands verðui
líklega í kringum frostmark-
ið, en 2-3° frost á næturnar.
Þaðerstaðreynd
að rafmagns-
reikningurinn
lækkar verulega9
þegar þessi
áhöld eru notuð
við að tilreiða
kræsingamar.
Miðstöð hagstæðra
viðskipta.