Dagur - 29.03.1985, Blaðsíða 12

Dagur - 29.03.1985, Blaðsíða 12
12 - DAGUR - 29. mars 1985 Á síðustu áratugum hafa forskóla- uppeldi og dagvistarheimili verið mjög í sviðsljósinu. Kemur þar margt til, einkum þó gróska í þeim vísindagreinum sem-tengjast upp- eldi ungra barna og sú þjóðfélags- þróun sem gjörbreytt hefur uppeld- isskilyrðum barna. Kjarnafjölskyldan er talin ein- kennandi fyrir fjölskyldugerð nú- tíma þjóðfélags. Hún er griðastað- ur einstaklinganna, foreldra og barna og þarf að vera þess megnug að fullnægja þörfum þeirra fyrir nánum tilfinningatengslum, ást og öryggi. En margt hefur orðið til að raska hinu hefðbundna mynstri fjölskyld- unnar. Hjónaskilnuðum fer ört fjölgandi, barnsfæðingum utan hjónabands eða sambúðar fjölgar og einstæðir foreldrar verða hlut- fallslega æ fleiri. Þá hefur breytt staða konunnar í nútíma þjóðfélagi og aukin þátttaka hennar í atvinnu- Iffinu bein áhrif á stöðu móðurinn- ar sem foreldris. Staða fjölskyldunnar stendur höllum fæti og full þörf er á aðgerð- um henni til styrktar og verndar. Þar á meðal er fjölgun dagvistar- heimila sem veita börnum mark- visst uppeldi í samræmi við þroska þeirra og þarfir. Dagvistarheimili eiga að vera fjölskyldum og foreldrum til stuðn- ings og ættu að vera sjálfsögð við- bót við uppeldi barnanna. Á dagvistarheimili býr barnið við vel skipulagt uppeldisumhverfi og örugg leikskilyrði sem jafnframt eru hlýleg og lærdómsrík. Börnun- um gefst kostur á að taka þátt í leik og starfi í hópi jafnaldra jafnt sem sér eldri og yngri börnum og njóta þannig fjölbreyttra uppeldiskosta barnahópsins undir leiðsögn fóstra. í uppeldisstarfi dagvistarheimil- anna er lögð áhersla á að stuðla að eflingu alhliða þroska barnsins í samvinnu við heimilin. Samstarf milli heimilis og dagvistarheimilis ætti að vera mikið og gott. Það er nauðsynlegt fyrir foreldra að vita hvað barnið aðhefst þann tíma sem það dvelur á dagvistarheimilinu. Vita hvernig því líður, hvar áhugi þess liggur helst í leik, við hverja barnið leikur sér eða yfirleitt hvern- ig því gengur að ráða fram úr við- fangsefnum dagsins. Einnig er mikilvægt fyrir fóstruna að fá upplýsingar um það sem gerist hjá barninu heima. Þannig getur fóstran tekið þátt í lífi barnsins utan dagvistarheimilisins í gegnum samræður við barnið. Þannig skap- ast meiri heild á milli heimilis barnsins og dagvistarheimilisins. Fyrstu bernskuárin eru þýðing- armikið og sérstætt þroskaskeið sem hefur sjálfstætt gildi í æviferli mannsins. Á þessu æviskeiði þrosk- ast börnin og læra best og eðlilegast gegnum leik. Þess vegna er svo Dagvistir og áhrif þeirra á unpeldið mikilvægt að börnin fái notið bernsku sinnar í heilbrigðum leik og skapandi starfi með öðrum börnum sér til gagns og gleði. Til þess að gegna svo ábyrgðar- miklu starfi sem starf uppalandans yfirgang einstakra barna. Þau börn sem eru óframfærin, hlédræg og einmana þarf hún að hvetja til fé- lagslegra leikja. Jákvæð afstaða hennar til barnanna, umburðar- lyndi, tillitssemi og réttsýni getur á dagvistarheimilinu er, þarf vel menntað starfsfólk. Fóstrumenntunin veitir alhliða þekkingu á öllum þroskaþáttum barna, frá fæðingu til sjö ára aldurs. Fóstran ber ábyrgð á uppeldis- starfinu á sinni deild og barnahópn- um sem henni er trúað fyrir. Öryggiskenndin er grundvöllur- inn að heilbrigðum persónuþroska og forsenda fyrir eðlilegum félags- og vitsmunaþroska. Segja má því að geðvernd og andleg heilsuvernd sé einn veigamesti þáttur í starfi fóstrunnar. Félags- og vitsmunaþroski barna verður ekki efldur með því einu að gefa þeim kost á að leika sér með öðrum börnum og vera samvistum við þau. Hér hefur fóstran mikil- vægu hlutverki að gegna sem þátt- takándi og virkur leiðbeinandi þeg- ar þörf krefur. Oft þarf hún að örva börnin til leikja og jákvæðra sam- skipta í orði og verki. Hún þarf að hjálpa börnunum til að læra að vinna saman, sýna tillitssemi, virða annarra rétt og koma í veg fyrir LOKAGREIN orðið börnunum haldgóð félagsleg og siðferðileg fyrirmynd. Markvisst uppeldisstarf verður því aðeins árangursríkt að það sé unnið af lifandi áhuga á börnum og velferð þeirra í góðu samstarfi við foreldra og forráðamenn. Dagvistarheimili ættu að vera sjálfsögð viðbót við uppeldi allra barna, svo mikið gildi hafa þau í sjálfu sér. í dag vantar mikið á svo öll börn geti notið dagvistarheimila og þarf að gera stórátak í þeim efnum á allra næstu árum. Við hér á Akureyri höfum dreg- ist þó nokkuð aftur úr öðrum sveit- arfélögum hvað varðar uppbygg- ingu dagvistarheimila. Það gerir það að verkum að biðlistar hér eftir plássum eru mjög langir, jafnframt því sem þessi skortur á dagvistar- rýmum takmarkar þjónustuna sem fyrir hendi er. Má þar nefna: - Forgangshópar s.s. börn ein- stæðra foreldra. - Hámarksdvalartími á hvert barn er þrjú ár. (Þetta á ekki við um einstæða foreldra.) - Engin dagvistarrými fyrir yngri börn en tveggja ára. - Vöntun á rýmum fyrir sveigj- anlegri dvalartíma barna. Þjóðfélag okkar hefur tekið mikl- um og örum breytingum sem hafa afdrifarík áhrif á uppeldisaðstæður barna. Bitnar þessi þróun mest á ungum börnum. Foreldrar í dag óska eftir uppeld- isaðstoð til handa börnum sínum og þurfa á henni að halda. Því hlýtur það að vera mikið hagsmunamál foreldra ungra barna hér á Akureyri að dagvistarmál verði sett ofar á framkvæmdalista bæjaryfirvalda. Bridgefélag Akureyrar: Zaríoh og félagar sigruðu í Sjóvá- hraðkeppninni Síðastliðinn þriðjudag lauk Sjóvá-sveitahraðkeppni Bridge- félags Akureyrar. Spilað var fjögur spilakvöld. Alls tóku 22 sveitir þátt í keppninni og var spilað í tveimur riðlum. Sigurvegari að þessu sinni var sveit Zarioh Hamadi en þeir fé- lagar tóku forystuna strax í fyrstu umferð og héldu henni allan tímann. Auk Zarioh eru í sveit- inni, Jón Sæmundsson, Karl Steingrímsson og Birgir Svein- björnsson. Röð efstu sveita varð þessi: 1. Sv. Zarioh Hamadi 1213 2. Sv. Antons Haraldssonar 1200 3. Sv. Júlíusar Thorarensen 1193 4. Sv. Arnar Einarssonar 1184 5. Sv. Páls Pálssonar 1168 6. Sv. Hauks Harðarsonar 1152 7. Sv. Sigurðar Víglundssonar 1130 8. Sv. Jóns Stefánssonar 1127 9. Sv. Hauks Sverrissonar 1124 10. Sv. Stefáns Vilhjálmssonar 1113 Meðalárangur var 1080 stig. Keppnisstjóri félagsins er Albert Sigurðsson. Halldórsmótið, sem er minn- ingarmót um Halldór Helgason, hefst nk. þriðjudag 2. apríl. Þátt- töku þarf að tilkynna til stjórnar fyrir kl. 20 á sunnudagskvöld. Nú um helgina er spilaður hluti af íslandsmótinu í bridge í Fé- lagsborg. Mótið hefst kl. 20.15 á föstudagskvöld og verður fram haldið á laugardag kl. 1 e.h. Einnig verður spilað á sunnudag. Leikfélag Húsavíkur sýnir Gamanleikinn Ástin sigrar eftir Ólaf Hauk Símonarson. Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson. Næstu syningar: Þriðjudag 2. apríl kl. 20.30. Miðvikudag 3. apríl ki. 23.30. Miðnætursýning. Laugardag 6. apríl kl. 16.00. Miðapantanir í síma 41129. Sætaferðir frá Akureyri. Uppl. hjá Öndvegi hf. sími24442. Þegar sjónvarpið sýndi mynd af Aðalsteinn kvað svo um lélegan Sólbak á leið til Bretlands með hin „starfskraft": skipin í drætti, kom Aðalsteini Ól- afssyni þessi vísa í hug. (Frúin er að Hann var latur lífs á braut, sjálfsögðu forsætisráðherra Breta.) hka rati að mestu. Starfs í mati stig ei hlaut, Slæma heimsókn frúin fær, stóð á gati í flestu. að forðast slfkt er vandi. Fótum hennar færist nær Gestur Ólafsson nefnir þessa vísu flotinn ósigrandi. sína karlagrobb: Eftir kjarasamninga og gengisfell- ingu kvað Aðalsteinn Ölafsson: Alltaf vann ég á við þrjá eða kannski nokkru fleiri. Þegar ég segi þessu frá þá er líkt og enginn heyri. Ellin færist að og þá finnst Gesti Fátt er nú um fisk í sjónum Ólafssyni óþarfi að kvíða. og fækkar enn. Þó að nokkuð þyngi spor Leika sér að litlum krónum þá er engu að kvíða. litlir menn. Fylgir hverjum vetri vor og von sumarblíða. Minn er orðinn fótur fúinn, fjörið dofnað, höndin þreytt. Voðalega verð ég lúinn við að gera ekki neitt. í moldu verður lík mitt lagt, Ijós af skari strokið. Það er ekki þar með sagt að þá sé öllu lokið. Aðfaranótt 3. mars var mikið um drykkjuskap á Akureyri. Sagði lög- reglan þetta stafa af góða veðrinu. Aðrir kenndu það sjómannaverk- fallinu. Þá varð þessi vísa til: Blíða veðrið boðar gott. Börðu allir næsta mann. Sumir voru bornir brott, beina leið á spítalann. Páll Pétursson alþ.m. hefur haft uppi nöldur út af ástandi og horfum í pólitíkinni og framferði ríkis- stjórnarinnar. Nú skal þessu lokið. Nú má skála, nú er gaman. Norrænt þing er sett á stall. Nú skal pressa piltinn saman, Páll er leiddur upp á fjall. Ekki er séð hver áhrif hefur upphefðin á sveitamann þar sem enginn eftir gefur eyri fyrir náungann.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.