Dagur - 29.03.1985, Blaðsíða 16

Dagur - 29.03.1985, Blaðsíða 16
Munið að panta tímanlega borð í Smiðju því flestar helgar fullbókast. Ath. Fyrri tíminn er frá kl. 18.30-21.00 og seinni tími frá kl. 21.00. Akureyri, föstudagur 29. mars 1985 Flokkur mannsins fékk 12 Það var nokkur spenna á aðal- fundr Akureyrardeildar KEA í gærkvöld, en þar voru í fyrsta skipti í fjöldamörg ár lagðir fram tveir listar til fulltrúa- kjörs á aðalfund KEA í vor. Fóru leikar svo að A-listi stjórnarinnar hlaut 108 menn kjörna en B-listi Friðriks Ein- arssonar 12 menn kjörna. 131 greiddi atkvæði á fundinum, þannig að 14 atkvæði stóðu á bak við fulltrúa B-Iistans. Töluverðar umræður urðu um þessi framboðsmál á fundinum og kom m.a. fram að aldrei fyri hefði flokkspólitískur listi verið borinn fram, en að B-listanum stóðu aðilar í Flokki mannsins, sem höfðu fengið til liðs við sig fleira fólk. Valur Arnþórsson, kaupfélags- stjóri, kvaðst fagna því að ungt fólk kæmi til starfa í samvinnu- nreyfingunni. Menn yrðu þó að vanda sín vinnubrögð og sigla undir réttu flaggi. KEA og sam- vinnuhreyfingin ættu illa heima í þeirri poppsamkomu sem skemmtanaiðnaður, fjölmiðlar og pólitík mynduðu. Það væri slæmt mál ef menn gengju um borg og bý til að safna stuðnings- mönnum og notuðu til þess sama róginn og andstæðingar sam- vinnumanna, sem væri byggður á algjörum þekkingarskorti,- HS Gengið til Eins og Dagur skýrði frá sl. miðvikudag voru tilboð þau er bárust í uppsetningu heita- vatnsmæla fyrir Hitaveitu Ak- ureyrar öll mun hærri en kostnaðaráætlun Hitaveitu Akureyrar hafði gert ráð fyrir. A fundi í stjórn hitaveitunnar Sérferðir á Piaf? Komið hefur til tals að Flug- leiðir gangist fyrir ferðum til Akureyrar fyrir þá sem hafa áhuga á að sjá sýningu Leikfé- lags Akureyrar á Edith Piaf. Þessar ferðir, ef af þeim verður, eru þannig hugsaðar að flogið yrði með Fokker vélum félagsins og piyndu vélarnar bíða á flugvellinum þar til eftir sýn- ingu og leikhúsgestir síðan fljúga beint suður að sýningu lokinni. Ekki hefur verið tekin endan- leg ákvörðun um hvort af þessu verður, en umræðan um þetta mál er að sjálfsögðu til komin vegna þess hversu erfitt er með hótelrými í bænum. Hefur margt fólk orðið að hætta við eða fresta leikhúsferð til Akureyrar vegna þess í hvaða ástandi hótelmálin eru. gk-. Hugmyndir um útgerð raðsmiðabátanna kynntar bæjarráði: ÚA boðin þátttaka A bæjarráðsfundi í gær, kynnti Atvinnumálanefnd Akureyrar niðurstööur úttektar sem gerð hefur verið á hugsanlegri út- gerð raðsmíðabátanna tveggja sem verið hafa í smíðum í Slippstöðinni á Akureyri um alllangt skeið. Kvaddir voru til sérfróðir ráðgjafar og niður- staða þeirra er að hægt sé að gera bátana út á hagkvæman máta frá Akureyri, fáist þeir á viðunandi kjörum. Að sögn Jóns Sigurðarsonar, formanns atvinnumálanefndar er gert ráð fyrir því að hægt verði að gera þessi fjölveiðiskip út á fleiri en einn máta. Aðspurður sagði Jón að einn möguleikinn væri að koma fyrir heilfrystibún- aði um borð í bátunum. - Við höfum gert okkur hug- myndir um það hvað sé eðlilegt að greiða fyrir þessi skip og við munum óska eftir viðræðum við Slippstöðina um kjör og hugsan- legan afhendingartíma, nú á næstunni. Við munum einnig óska eftir viðræðum við Útgerð- arfélag Akureyringa um það hvort þeir hafi áhuga á að taka þátt í hugsanlegri útgerð. Hafi þeir ekki áhuga er frystimögu- leikinn enn fyrir hendi, sagði Jón Sigurðarson. - Hvað með kvótamálin? - Við gerum ráð fyrir því að þessir bátar sem byggðir eru með fullu samþykki og fyrirgreiðslu ríkisstjórnarinnar, fái kvóta þeg- ar sýnt verður fram á hagkvæmni útgerðarinnar. - Hvernig er gert ráð fyrir að hægt verði að fjármagna kaupin á raðsmíðabátunum? - Um það er of snemmt að segja í smáatriðum en Akureyr- arbær á að geta bjargað þeim málum ef vilji er fyrir hendi. Það er a.m.k. ljóst að það er ekkert vit í að láta þessi skip liggja ónot- uð í Slippstöðinni, sagði Jón Sig- nrAíircnn í fyrrakvöld lagði Wilhelm V. Steindórsson hitaveitustjóri til að öllum tilboðunum yrði hafnað, en leitað yrði samninga við verk- taka til þess að vinna verkið. Þessu hafnaði stjórn H.A. á fundinum, eftir að stjórnin hafði endurskoðað kostnaðaráætlun veitunnar, og var samþykkt að ganga til samninga við Harald Helgason sem átti lægsta tilboðið í uppsetningu mælanna. Kostnaðaráætlun H.A. nam um 1,7 millj. króna. Tilboð Har- aldar var tæpar 2,7 milljónir en hæsta tilboðið sem barst og var frá hópi 8 fyrirtækja sem í eru flestir pípulagningamenn bæjar- ins hljóðaði upp, á 4,8 milljónir króna. gk-. Hörður skilaði séráliti Eins og fram hefur komið í Degi var eigandi Offsetstof- unnar á Akureyri sýknaður fyrir héraðsdómi af öllum ákæruatriðum ákæruvaldsins fyrir meint brot á iðnlöggjöf. Vegna þessa hafði Hörður Svanbergsson sem sat í dómnum ásamt Sigurði Eiríkssyni og Gunnari Berg, samband við blað- ið og vildi láta það koma fram að hann hefði skilað séráliti þar sem komið hefði skýrt fram að hann hefði viljað láta sakfella eiganda Offsetstofunnar fyrir offsetprent- un. - Ég var sammála því að hann hefði ekki brotið af sér hvað varðar tvö ákæruatriði, ljós- myndatækni og filmuvinnu en varðandi þriðja atriðið, offset- prentunina, var ég ekki í nokkr- um vafa um sakhæfni ákærða, sagði Hörður Svanbergsson, en þess má geta að hann var eini dómarinn sem menntaður er í þessu fagi. Sérálit Harðar breytir því þó ekki að eigandi Offsetstofunnar var sýknaður af öllum ákæruat- riðum. - ESE Ekki voru þær uppörv- andi fréttirnar af veður- horfum sem við fengum hjá henni Unni Ólafs- dóttur á Veðurstofu ís- lands í morgun. - Það verður mjög svipað veður áfram. Kannski aðeins hægari vindur en kalt eins langt fram í tímann og við sjáum, sagði Unnur. Ævintýraheimur Fatnaður á alla fjölskylduna í fjölbreyttara úrvali en nokkru sinni fyrr. ★ ★ ★ í vefnaðarvörudeild er alltaf eitthvað nýtt að v gerast á hverjum degi. ★ ★ ★ Póstsendum. Miðstöð hagstæðra viðskipa.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.