Dagur - 29.03.1985, Side 13
29. mars 1985 - DAGUR - 13
Breskur
predíkari á
Sjómhœð
Breskur predikari, að nafni
David Richards, sem starfað
hefur sem predikari í 15 ár,
mun dvelja á Akureyri næstu
daga og halda samkomur fram
á páskadag (7. apríl).
Hann hefur haldið samkom-
ur undanfarið á Hjaltlandseyj-
um og í Reykjavík við mjög
góðar undirtektir.
Samkomutími verður nánar
auglýstur annars staðar, en
samkomurnar verða á Sjónar-
hæð, Hafnarstræti 63, og ef til
vill einnig víðar.
Sýtrng
endurbóta
ágömlum
Laugardaginn 30. mars verður
opnuð í Dynheimum, neðri
hæð, sýning, sem ber nafnið
Architecture and Renewal in
U.S.A. Sýningin fjallar eins og
nafnið bendir til um arkitektúr
og endurbætur gamalla bæjar-
hluta. Lýst er í máli og mynd-
um nokkrum úrlausnum am-
erískra arkitekta á þeim
vanda, sem upp kemur, þegar
gömlum miðhverfum stór-
borga tekur að hraka og þau
missa aðdráttarafl sitt fyrir
fólk og fyrirtæki. Sýnd eru
dæmi um endurskipulagningu
íbúðarhverfa, breytingu versl-
unarhverfis í íbúðarhverfi,
göngugötur, breytingu gamals
húss í tónlistarhöll, endurlífg-
un hafnarsvæða o.fl.
Sýningin var sett saman um
mitt ár 1983 og hefur síðan far-
ið til Póllands, Vestur-Þýska-
lands, Tyrklands, Kýpur og
Grikklands. Hún er á vegum
Menningarstofnunar Banda-
ríkjanna, en félagar í Arkit-
ektafélagi íslands greiddu fyrir
því að sýningin yrði sett upp
hér á Akureyri.
Sýningin í Dynheimum
stendur til skírdags, 4. apríl og
verður opin kl. 18-22 virka
daga, en kl. 15-22 aðra daga
nema laugardaginn 30. mars,
er hún verður opnuð kl. 17.
Kvikmyndasýningar verða í
tengslum við sýninguna og
verða þær auglýstar nánar í
Dynheimum.
Smellwinn
frá Skoda
hjá Skálafelli
Um helgina verður haldin
meiriháttar bílasýning á Akur-
eyri. Hún verður í Skálafelli
að Draupnisgötu 4 og þar gef-
ur að líta nýjustu gerðirnar af
Skoda. Þar á meðal verður
Rapid „smellurinn", sem hef-
ur „smellt í gegn að undan-
förnu“, eins og umboðið orðar
það í auglýsingu. Jafnframt er
þar sagt, að hér sé um að ræða
hörkutól á hálfvirði. Ekki skal
um það dæmt, en víst er bíll-
inn ódýr miðað við verð nýrra
bíla nú til dags. En sjón er
sögu ríkari og menn geta
kynnst þessu „hörkutóli“ í ná-
vígi um helgina. Sýningin er
opin á laugardag og sunnudag
frá kl. 13-17.
Bach í öndvegi
Nk. föstudag 29. mars kl.
20.30 heldur Tónlistarskóli
Akureyrar orgel- og strengja-
tónleika í Akureyrarkirkju.
Árni Hilmarsson leikur org-
elverk eftir Bach og kammer-
sveit skólans sem skipuð er og kammersveitarinnar
kennurum og nemendum Adagio eftir Albinoni.
leikur Brandenborgarkonsert Tónleikarnir eru fyrstu vor-
nr. 3 eftir sama tónskáld. tónleikar skólans og er að-
Tónleikunum lýkur með gangur ókeypis.
sameiginlegum flutningi Árna
Kyming
Vísindafélag Norðlendinga
efnir til kynningar á íslenska
fálkanum (Falco rusticoulus is-
landicus) á fundi sínum 30.
mars, laugardag. Þar mun
Ólafur Karl Nielsen fugla-
fræðingur segja frá rannsókn-
Iðunn sýnir
Um síðustu helgi hófst sýning
Iðunnar Ágústsdóttur á 29
áíslenska fálkanum
um sínum á fálkum á Norð-
austurlandi og sýna litskugga-
myndir, en Ólafur hefur rann-
sakað fálkann undanfarin tvö
Fundurinn verður í Mennta-
skólanum á Akureyri (gamla
skólahúsinu) og hefst kl. 4 síð-
degis.
Allir áhugamenn um fugla
og fuglaskoðun eru velkomnir
á fundinn.
Stjórn V.N.
olíu- og pastelverkum í blóma-
skálanum Vín við Hrafnagil.
Sýningin átti aðeins að standa
um síðustu helgi, en aðsókn
var mjög góð, þannig að
ákveðið var að framlengja
hana fram til næstu helgar. í
dag er blómaskálinn opinn frá
kl. 1-7, en á morgun og sunnu-
daginn er opið frá kl. 10-
23.30. Myndirnar eru allar til
sölu. Það er því gráupplagt
fyrir Eyfirðinga, að bregða sér
bæjarleið um helgina, njóta
myndverka Iðunnar í Vín og
í Vín
fá sér hressingu þar í leiðinni.
Þar að auki geta menn fjárfest
þar í blómstrandi páskaliljum,
sem fást á hagstæðu verði.
Basarog
kaffisala í
Skjakkrvík
Morgunverður í rúmið
S.l. laugardagskvöld sýndi
leikdeild Umf. Möðruvalla-
sóknar leikritið „Morgunverð-
ur í rúmið“ í félagsheimilinu
Freyjulundi. Höfundur þessa
gamanleiks er Jack Popple-
well, en þýðandi Halldór
Ólafsson. Leikstjóri er Ari H.
Jósavinsson og Þráinn Karls-
son Ieiðbeindi við uppsetn-
ingu. Ekki verður fjallað um
frammistöðu einstakra
leikara, en allir eru þeir lítið
sviðsvanir. Þó finnst mér ekki
annað hægt, en að geta um
góða frammistöðu Péturs Þór-
arinssonar, sem sýnir mikil og
skemmtileg tilþrif.
Aðrir leikendur eru Hafdís
Ragnarsdóttir, Eygló Jóhann-
esdóttir, Ásta Ferdinandsdótt-
ir, Jósavin Arason, Brynjar
Ragnarsson, Ragnar Brynjars-
son, Árni Magnússon og Jónas
Bjarnason.
í góðri samvinnu tekst þess-
um leikhóp að skila hlutverk-
um sínum á þann hátt að
áhorfendur skemmta sér virki-
lega vel. Og þá er aðaltilgang-
inum með þessari leiksýningu
náð. Það er því hægt með
góðri samvisku að hvetja fólk
til að sækja þessa leiksýningu,
ef það kann að meta græsku-
laust gaman.
Næstu sýningar verða í
Freyjulundi n.k. laugardags-
og sunnudagskvöld.
Þóroddur Jóhannsson.
Laugardaginn 30. mars kl. 14
verður basar og kaffisala að
Dvalarheimilinu Skjaldarvík.
Á boðstólum verður til sýnis
og sölu fjölbreytileg handa-
vinna vistmanna, sem þeir
hafa unnið f vetur. Má þar
nefna, auk sokka og vettlinga,
barnafatnað, peysur, púða,
dúka, myndir, margs konar
páskaskraut o.fl. o.fl. Kaffi og
meðlæti.
Gjörið þið svo vel. Verið öll
velkomin í Skjaldarvík á laug-
ardaginn klukkan tvö.
Nýstárlegur
kökubasar
Nemendur í Verkmenntaskól-
anum gangast fyrir óvenju-
legum kökubasar í gamla Iðn-
skólanum við Þingvallastræti
á laugardaginn. Þar verður
boðið upp á dýrindiskökur og
brauð af öllum mögulegum
gerðum og stærðum. Ópið
verður á laugardaginn frá kl.
14-17, en auk þess geta sæl-
kerar hringt í síma 26812 og
þá fá þeir senda tertu um hæl.
Sendingarkostnaðurinn er
enginn. Hér er því um meiri-
háttar menningarviðburð að
ræða, að sögn nemendanna.