Dagur - 17.04.1985, Qupperneq 1
GULLSMIÐiR
> SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Litmynda-
framköllun
AKUREYHI
FERMINGAR-
GJAFIR
í MIKLU
ÚRVALI
68. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 17. apríl 1985
43. tölublað
Sigluvíkin biluð í Reykjavík:
80% veiðidaqa
fást bættir
- Tapið samt talsvert
Sigluvík SI 2 liggur nú í höfn í
Reykjavík vegna bilunar. í síð-
ustu veiðiferð skipsins kom í
Ijós að spil virkuðu ekki sem
skyldi og var Sigluvík því send
til hafnar í Reykjavík þar sem
skipið landaði 130 tonnum af
blönduðum afla sl. miðviku-
dag.
Við nánari athugun reyndist
bilunin alvarlegri en talið var í
fyrstu. í ljós kom að taka þurfti
spilin upp, renna öxla upp á nýtt
og skipta um legur í gír. Að sögn
Ingólfs Arnarsonar, fram-
kvæmdastjóra Þormóðs ramma
hf. á Siglufirði sem gerir togar-
ann út, var Sigluvíkin búin með
alla hvíldardaga á yfirstandandi
sóknartímabili sem lýkur um
næstu mánaðamót.
en þau mál verða rædd við ráðu-
neytið nú í lok vikunnar.
Prátt fyrir þetta er ljóst að tap
útgerðarinnar vegna þessarar bil-
unar er talsvert en mest munar
þó kannski um þau 130 tonn sem
togarinn þurfti að landa til
vinnslu í Reykjavík.
Stálvíkin sem einnig er í eigu
Þormóðs ramma hf. landaði á
Sigiufirði á þriðjudag í síðustu
viku, tæpum 70 tonnum af þorski
og 18 tonnum af grálúðu. Togar-
arnir hafa hvor um sig leyfi til að
veiða um 3.000 tonn af þorski og
Ingólfur Arnarson sagði því ljóst
að mikil áhersla yrði einnig lögð
á að veiða karfa til heilfrystingar
á Japansmarkað og í verðmiklar
umbúðir á Bandaríkjamarkað.
-ESE
Að undanförnu hefur verið unnið að því að setja frystibúnað í togarann Stakfell ÞH frá Þórshöfn. Meðfylgjandi
mynd tók ESE af togaranum í Hafnarfjarðarhöfn á dögunum.
- Skaðinn virðist þó ekki vera
eins mikill og talið var í fyrstu
því í reglugerð um stjórnun veið-
anna er kveðið á um að skip sem
sannarlega stöðvast í höfn vegna
bilunar í 15 daga eða lengur á
veiðitímabilinu, fái 80% þeirra
veiðidaga bætta með nýjum. Það
er ljóst að viðgerð verður ekki
lokið fyrr en í fyrsta lagi á
fimmtudag í næstu viku og við
höfum því góðar vonir um að fá
12 af þessum 15 veiðidögum
bætta, sagði Ingólfur Arnarson
Mikil aukning þorskafla!
- hjá bátum og togurum fyrstu þrjá mánuði ársins
Þorskafli báta og togara frá
Norðurlandi var mjög svipaður
í mars í ár og á sama tíma í
fyrra. Bátaaflinn hefur heldur
vaxið ef miðað er við þessi tvö
tímabil en togaraaflinn hefur
að sama skapi minnkað. Ef
miðað er við tímabilið janúar-
mars í ár og sama tímabil í
fyrra er heildarþorskaflinn
tæpum sjö þúsund lestum
meiri það sem af er þessu ári.
Farfuglar komnir
Farfuglarnir hafa þegar boðað
vorkomuna. í flugturninum
fengum við þær upplýsingar, að
þar hefði orðið vart við tjald,
sendlinga, rauðhöfða, urtendur,
svani, gæsir og stelka, til viðbótar
við þann stelk sem hefur haldið
sig við flugvöllinn í allan vetur.
Einnig höfum við haft spurnir af
lóu út við Skipalón, en þar gerir
hún hvað fyrst vart við sig á vorin
við Eyjafjörð. Einnig hafa glögg-
ir menn heyrt í hrossagauk. En hér
er um nokkurs konar undanfara að
ræða, því farfuglarnir koma ekki
í hópum fyrr en um sumardaginn
fyrsta. Þessir undanfarar eru því
eins óg nokkurs konar njósnarar,
en spurningin er hvernig þeir
koma boðum til hinna sem á eftir
koma. - GS
Hrossagaukurinn er kominn.
Þorskafli bátanna í mars sl. var
samtals 2.105 lestir en 1.803 lestir
á sama tíma í fyrra. Annar botn-
fiskafli var mjög svipaður á báð-
um viðmiðunartímabilum. Tog-
araaflinn nú var 4.008 lestir af
þorski á móti 4.889 lestum í
fyrra. Annar botnfiskafli togara
nú er hins vegar ekki nema 606
lestir en var 2.514 lestir í mars í
fyrra.
Ef litið er á fyrstu þrjá mánuði
beggja ára, kemur í ljós að
þorskafli bátanna var 2.866 lestir
í fyrra en 5.305 lestir í ár. Annar
botnfiskafli, þ.e. karfi, grálúða,
langa og keila er hins vegar mjög
svipaður eða 397 lestir í ár á móti
395 lestum í fyrra. Hjá togurun-
um er þetta hlutfall hins vegar
mun óhagstæðara eða 3.047 lestir
í ár á móti 7.336 í fyrra. Þorskafli
togaranna er hins vegar rúmum
4.500 lestum meiri í ár, 14.191
lest á móti 9.642 sem gerir mikið
meira en að vega upp á móti
minna magni af karfa og öðrum
botnfisktegundum.
Af einstökum löndunar-
höfnum bar Akureyri nokkuð af
hvað varðar magn af þorski sem
þar barst á land, 1.089 lestir í
mars en næst á eftir kom Siglu-
fjörður með 846 lestir. Frá ára-
mótum hefur einnig mest af
þorski borist á land á Akureyri,
3.796 lestir, 2.475 á Dalvík, 2.433
á Siglufirði, 2.327 í Ólafsfirði,
1.459 á Sauðárkróki, 1.124 á Ár-
skógsströnd, 1.188 á Húsavík og
1.109 á Skagaströnd.
- ESE
Fulltrúi húsnæðismálastjórnar ræðir við húsbyggjendur og kaupendur á Akureyri í dag:
Viðbótarlán standa til boða
„Fulltrúi okkar verður á Akur-
eyri í dag, á Dalvík á morgun
og í Ólafsfirði á föstudag,“
sagði Guðmundur Gunnars-
son, fulltrúi hjá Húsnæðis-
málastjórn ríkisins, í samtali
við Dag.
Fulltrúi húsnæðismálastjórnar
er á ferð um landið til viðræðna
við þá húsbyggjendur og hús-
kaupendur, sem nú eiga í
greiðsluerfiðleikum. Að sögn
Guðmundar eiga þeir möguleika
á 150 þ. kr. láni frá stofnuninni,
en auk þess kemur til hugsanleg
skuldbreyting banka. Rætt hefur
verið um, að þeir sem eiga í van-
skilum eigi kost á þessari fyrir-
greiðslu. Guðmundur var spurð-
ur um hvað átt væri við með
„vanskilum" í þessu tilviki.
„Hér er átt við fólk sem á í
erfiðleikum með að standa skil á
greiðslum vegna íbúðarbyggingar
eða íbúðarkaupa, en það þarf
ekki að vera komið í dúndrandi
vanskil,“ svaraði Guðmundur.
„Við lítum á greiðslugetuna á
móti greiðslubyrðinni og ef
greiðslubyrðin er meiri en
greiðslugetan þá lítum við þannig
á, að fólkið sé í vanskilum. Gott
er að viðkomandi sé búinn að
fylla út sérstaka umsókn áður en
til viðtalsins kemur. Við hlustum
á viðhorf umsækjandans, en síð-
an eru þær upplýsingar sem fyrir
liggja settar í tölvu og athugað
hvort hægt er að bjarga þessu
fólki með því fjármagni sem við
höfum yfir að ráða og með þeirri
aðstoð sem bankarnir hafa komið
inn með líka.“
- Hvað tekur þetta langan
tíma, hvað líður langur tími frá
því umsókn er lögð inn þar til
umsækjandi getur átt von á láns-
fénu?
„Eins og ástandið er í dag
tekur þetta lágmark einn mánuð,
sennilega nær einum og hálfum
mánuði. Lánstíminn er 5-10 ár
og kjörin eru þau sömu og á
húsnæðismálastjórnarlánunum;
lánskjaravísitala og 3'/5% vext-
ir,“ sagði Guðmundur Gunnars-
son.
Samkvæmt upplýsingum á
skrifstofu byggingafulltrúa Akur-
eyrarbæjar, er fullbókað í viðtöl
hjá fulltrúa húsnæðismálastjórn-
ar í dag. Hins vegar sagði Guð-
mundur víst, að bætt yrði við
tímum eftir þörfum. Það er sem
sé enn tekið á móti viðtalspönt-
unum á skrifstofu Akureyrarbæj-
ar og sömu sögu er að segja um
bæjarskrifstofurnar á Dalvík og í
Ólafsfirði.' íbúum sveitahrepp-
anna við Eyjafjörð er bent á að
snúa sér til þeirrar bæjarskrif-
stofu, sem næst er af þeim skrif-
stofum sem áður hafa verið
nefndar. Umsækjendur um við-
bótarlán þurfa að hafa ljósrit af
síðustu skattaskýrslu, auk þess
sem þeir þurfa að fylla út
umsóknareyðublöð, sem liggja
frammi á skrifstofunum.
-GS