Dagur - 17.04.1985, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 17. apríl 1985
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI:. 24222
ÁSKRIFT KR. 200 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 28 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GlSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN:
EIRlKUR ST. EIRlKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI: 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Hægrisveifla
og óeining
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefur nú verið
haldinn án þess að til stórtíðínda drægi. Þessu
geysilega stjórnmálaafli tókst ekki að samstilla
þannig krafta sína að kjörorð landsfundarins
hljómi sannfærandi. Fundurinn var haldinn und-
ir slagorðinu: Allir sem einn. Niðurstaða fundar-
ins var aukin frjálshyggja, fjölmörgum góðum og
gegnum sjálfstæðismönnum til mikillar hrelling-
ar. Krataflokkarnir tveir sem sótt hafa með aukn-
um þunga í fylgi Sjálfstæðisflokksins fengu
þarna sína óskaniðurstöðu.
„Spurningin um það, hvort þetta stjórnarsam-
starf stendur lengur eða skemur er komin undir
því hvort verkin verða látin tala á þeim málefna-
grundvelli sem lagður verður með stjórnmála-
yfirlýsingum þessa fundar," sagði Þorsteinn
Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í setn-
ingaávarpi sínu. Stjórnmálayfirlýsingin var síðan
byggð á verkefnaskrá sem 140 ungir sjálfstæðis-
menn lögðu fram á fundinum. Þessir sömu ungu
menn hafa ekki mikið álit á núverandi forystu
flokksins, eins og glöggt kom fram í ræðu Vil-
hjálms Egilssonar, hagfræðings VSÍ, sem mælti
fyrir tillögum þeirra. Hann sagði meðal annars:
„Starf í samstarfsnefnd um skattalækkanir fór
út um þúfur vegna áhugaleysis ráðherra Sjálf-
stæðisflokksins. Svo virðist sem stór hluti þing-
flokksins væri í raun á móti skattalækkunarleið-
inni. Hvorki þingmenn né ráðherrar Sjálfstæðis-
flokksins komu með eigin tillögur um leiðir,
heldur voru ýmsir þingmenn með sífelldar bá-
biljur og mótbárur.“ Þetta er forvitnileg og at-
hyglisverð yfirlýsing. Forystumenn launþega
héldu því fram á sínum tíma að engin meining
hafi verið í yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar, eink-
um forsætisráðherra, um skattalækkanir í stað
krónutöluhækkana í síðustu kjarasamningum.
Þá vita menn hvar hnífurinn stóð í kúnni, en
sjálfstæðismaðurinn ungi heldur áfram:
„Þessi vinnubrögð hjálpuðu ekki til að ná sam-
stöðu um skattalækkunarleiðina og eru kannski
eitt besta dæmi um það hvernig sumir ráðherrar
flokksins og þingmenn hafa reynt að veikja
formann Sjálfstæðisflokksins, með því að þvæl-
ast fyrir og spilla fyrir mörgu af því sem hann
hefur viljað ná frarn."
Þrátt fyrir óeininguna kom Sjálfstæðisflokkur-
inn sér saman um frjálshyggjustefnuskrá. Flokk-
urinn er að færast sífellt lengra út á hægri kant-
inn og ætti það að geta skýrt nokkuð línurnar í
íslenskum stjórnmálum. Það er svo annað mál
hvort Sjálfstæðisflokkurinn tryggir sér sama
fjöldagið áfram með þessari hægrisveiflu.
Eiríkur St. Eiríksson:
Þruma úr heið-
skím lofti “
Vegna kjörs „íþróttamanns Ak-
ureyrar 1984“ langar mig til að
beina nokkrum spurningufn til
þeirra sem stóðu að þessu kjöri
og þá sérstaklega þeirra þriggja
nefndarmanna sem almannaróm-
ur segir að hafi tekið sig saman
um að kjósa Halldór Áskelsson,
knattspyrnumann úr Þór í fyrsta
sætið.
Ég vil í upphafi taka fram að
ég tel Halldór Áskelsson, knatt-
spyrnumann alls góðs maklegan.
Hann hefur staðið undir nafni
sem efnilegasti knattspyrnumað-
ur bæjarins og hans bíður vafa-
laust glæst framtíð á knattspyrnu-
vellinum. Málið er hins vegar það
að tími Halldórs Áskelssonar er
ekki kominn og það kemur því
eins og „þruma úr heiðskíru
lofti“ fyrir fleiri en hann að ein-
mitt hann skuli hafa hlotið þetta
sæmdarheiti nú.
í þessu sambandi má einnig
benda á að Erlingur Kristjáns-
son, knattspyrnumaður úr KA
sem stendur landsliðinu nær en
Halldór, var kjörinn knatt-
spyrnumaður Akureyrar fyrir
1984 og hafi átt að kjósa knatt-
spyrnumann, því var Érlingur þá
ekki kjörinn? Ekki má heldur
gleymast að Erlingur er afbragðs
handknattleiksmaður sem hefur
átt stóran þátt í velgengni KA í
vetur.
Mönnum er enn í fersku minni
hvernig íþróttafréttamenn fjöl-
miðlanna fyrir sunnan fóru með
Bjarna Friðriksson, júdómann og
bronsverðlaunahafa í kjörinu um
íþróttamann ársins. Knatt-
spyrnumaöurinn Ásgeir Sigur-
vinsson var kjörinn en „litla“
íþróttagreinin júdó gleymdist.
Menn héldu að ámóta óréttlæti
gæti ekki endurtekið sig en því
miður þá virðist það hafa gerst í
kjörinu um „íþróttamann Akur-
eyrar“ fyrir árið 1984.
Kári Élíson, kraftlyftingamað-
ur frá Akureyri varð í öðru sæti í
kjörinu, fjórum stigum á eftir
Halldóri. Nefndarmönnum til
fróðleiks skal þess getið að Kári
varði á árinu 1984 Norðurlanda-
meistaratitil sinn í 67,5 kg flokki.
hann hlaut silfurverðlaun á
Evrópumóti og varð í fjórða sæti
á heimsmeistaramóti. Kári varð
stigahæsti einstaklingur íslands-
meistaramótsins í kraftlyftingum
á árinu og hann átti stóran þátt í
sigri Akureyrarsveitarinnar í
stigakeppni mótsins eins og
reyndar í sigri Akureyringa á fé-
lagsliðamótinu skömmu áður.
Kári setti fjölmörg íslandsmet á
árinu og sæg Akureyrarmeta og
það sem kannski var mest um
vert, hann sló met Guðmundar
Gíslasonar, sundkappa í settum
íslandsmetum. íslandsmet Kára
nálgast nú annað hundraðið. Því
er enn við að bæta að Kári varð
Akureyrarmeistari í skák á því
herrans ári 1984. Þetta er langur
afrekalisti og hefði allt verið með
felldu hefði aðeins brot af þessu
átt að duga til titilsins „íþrótta-
maður Akureyrar 1984“.
Ekki rekur mig minni til að
hafa séð neinn nefndarmanna á
kraftlyftingamótum síðasta árs
en það er engin afsökun. Afrek
Kára eru á allra vitorði.
Nú langar mig til að spyrja.
Hvaða afrek vann Halldór
Áskelsson sem taka afrekum
Kára Elísonar fram (nú eða af-
rekum Nönnu Leifsdóttur, skíða-
konu)? Er það rétt sem heyrst
hefur að þrír nefndarmanna sem
allir eru í Þór, hafi tekið sig sam-
an um að kjósa Halldór í fyrsta
sætið til þess að bæta félaginu
það upp að KA-maður var kjörinn
knattspyrnumaður ársins?
Hvernig stóðu nefndarmenn ann-
ars að kjörinu? Hefði Kári þurft
að vinna heimsmeistaratitil eða
Evrópumeistaratitil til að hljóta
„sæmdarheitið" „íþróttamaður
Akureyrar“?
Nú verð ég sennilega ekki tal-
inn hlutlaus aðili í þessu máli, þar
sem ég bæði æfi kraftlyftingar og
þekki Kára Elíson persónulega.
Hins vegar er ég hvorki það vit-
laus né blindaður af félagaríg að
ég sjái ekki hvers konar óréttlæti
hér hefur verið framið. Það er
nauðsynlegt fyrir íþróttabanda-
lag Akureyrar að þvo þennan
smánarblett af sér og búa þannig
um hnútana að kjör „íþrótta-
manns Akureyrar" verði ekki
skrípaleikur eða „pólitísk“
hrossakaup fótboltafélaganna í
bænum. Það er lágmarkskrafa að
fengnir verði vandaðir menn til
að sjá um þetta kjör þannig að
mark verði á takandi.
Með íþróttakveðju.
Eiríkur St. Eiríksson.
Eþíópíumennirnir skoða einn af togurum ÚA
Mynd: KGA
Eþíópíumenn áhuga-
samir um samstarf
- Það er einkum á þrenns
konar vettvangi sem Eþíópíu-
menn vilja eiga við okkur
samstarf. A sviði orkumála og
vatnsöflunar, á flskveiðasvið-
inu og í sambandi við ýmiss
konariðnað,sagði Jón Sigurð-
arson, bæjarfulltrúi og for-
maður Atvinnumálanefndar
Akureyrar er hann var spurður
um heimsókn fjögurra fulltrúa
Eþíópíustjórnar til Akureyrar.
Eþíópíumennirnir, m.a. einn
ráðherra og yfirmaður vatnsöfl-
unarnefndar landsins, hafa dval-
ist hér á landi að undanförnu í
boði Hjálparstofnunar Rauða
krossins og þjóðkirkjunnar og
kynnt sér það sem Islendingar
hafa upp á að bjóða. Það voru
svo bæjarstjórn Akureyrar og
Iðnaðardeild Sambandsins sem
sáu um að bjóða þeim til Akur-
eýrar en hér skoðuðu Eþíópíu-
mennirnir m.a. Sambandsverk-
smiðjurnar, Útgerðarfélagið,
Slippstöðina og Hitaveitu Akur-
eyrar. - ESE