Dagur


Dagur - 17.04.1985, Qupperneq 9

Dagur - 17.04.1985, Qupperneq 9
17. apríl 1985 - DAGUR - 9 Víkingur Traustason. Kraftlyftingar: Kötturinn og Bangsinn á EM Skíðamót Slipp- stöðvar- manna Hið árlega skíðamót Slipp- stöðvarínnar hf. var haldið í Hlíðarfjalli nú um páskana í níunda sinn. Fór svigkeppnin fram á föstudaginn langa en gangan á taugardag. Fyrsta mótið var haldið 1977 og þá keppt í ofurlítið óþokkalega Iagðri svigbraut, sem menn miklast nú af að hafa sloppið heilir í gegnum. Síðan þá hefur bæst við keppni í göngu, niðjakeppni í göngu og svigi og keppni í svigi kvenna. Vegleg verðlaun eru veitt í öllum þessum fimm flokkum. Umfang mótsins er orðið tölu- vert mikið, sem sést best á því að þátttakendur nú voru fimmtíu og tveir talsins. Skíðaráð Slippstöðvarinnar hf. (S.R.S.) þakkar starfsmönnum Skíðastaða fyrir ómetanlega hjálp við mótshaldið. Úrstit: Svig karla: 1. Pórhallur Bjarnason 65,59 2. Haukur Jóhannsson 69,81 3. Guðmundur Svansson 71,21 Svig niðja 15 ára og yngri: 1. Laufey Árnadóttir 68,65 2. Linda Björk Pálsdóttir 72,36 3. Sísý Malmquist 73,90 Svig kvenna: 1. Svanhildur Guðm.d. 53,25 2. Elín Guðmundsdóttir 55,37 3. Pórey Aðalsteinsdóttir 60,27 5 km ganga karia: Min. 1. Árni Freyr Antonsson 20,17 2. Jóhannes Kárason 21,30 3. Baldvin Stefánsson 22,47 2,5 km ganga niðja 15 ára og yngri: Mín. 1. Kári Jóhannesson 13,08 2. Svavar Þ. Guðmunds. 13,16 3. Bolli P. Sigurðsson 16,37 Kraftlyftingamennirnir kunnu, Kári Etíson og Víkingur „Heimskautabangsi“ Trausta- son frá Akureyri, verða báðir í eldíinunni á Evrópumeistara- mótinu í kraftlyftingum sem haldið verður í Den Haag í Hollandi 10.-12. maí næst- komandi. Kári á silfur að verja í 67,5 kg flokknum en Víking- ur tekur nú þátt í Evrópu- meistaramóti eftir nokkurt hlé. Báðir eru þeir Kári sem hefur viðurnefnið „Kötturinn" og Vík- ingur í mjög góðu formi um þess- ar mundir. Kári náði 685 kg í samanlögðu í 75 kg flokki á síð- asta íslandsmóti og Víkingur lyfti þriðju mestu þyngd sem íslend- ingur hefur lyft, 860 kg. Á þessu Evrópumóti keppir Kári í 67,5 kg flokki og það er því viðbúið að „léttingin“ muni kosta hann nokkur kíló. Víkingur keppir hins vegar í 125 kg fl. og ætti því að koma mjög sterkur til leiks eins og á íslandsmótinu. Að sögn Kára Elísonar eru möguleikar hans á að komast á verðlaunapall mjög góðir og með smá heppni er langþráður Evrópumeistaratitill í sjónmáli. Víkingur á hins vegar undir högg að sækja en 850 kg gáfu þriðja sætið í 125 kg fl. í fyrra þannig að möguleikar á bronsi ættu að vera fyrir hendi. Þess má geta að Kári varð fjórði og Víkingur áttundi á síðasta heimsmeistaramóti. - ESE 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 Hjalti með 8 rétta Hjalti Gunnþórsson náði bcstum árangri spámanna okkar í síðustu viku. Hann var með 8 lciki rétta, Guðmundur Frímannsson 6, Hinrik Þórhallsson 5 og Sig- urður Pálsson með 4 rétta. Eftir 2 umferðir hefur Guðmundur Frímannsson forustu með 12 rétta, Hjalti er með 11, Sigurður 9 og Hinrik 7. Við skellum okkur í næstu umferð og það er ekki annað fyrirsjáanlegt en hörkukeppni spekinganna fjögurra. Dagur39 Víkurfr. 34 Dagsmenn juku forskot sitt í keppninni gegn Víkurfréttum í Keflavík. Spámenn Dags voru með samtals 23 rétta á móti 21 hjá Víkurfrétt- um og staðan er því þannig að Dagur er með 39. Víkurfréttir 34. Arsenal-Sheff.Wed Coventry-WBA Ipswich-Liverpool Leicester-N.Forest Newcastle-Southampton West Ham-Luton Barnsley-Birmjngham Cardiff-Huddersf. Charlton-Blackburn Leeds-Oxford Portsmouth-M.City Wolves-Fulham 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 Sigurhátíð hjá Þórsumm „Ég held að það sé einsdæmi að annað félagið vinni alla Ak- ureyrarmeistaratitlana í yngrí flokkunum,“ sagði Páll Stef- ánsson formaður handknatt- leiksdeildar Þórs, en félagið hefur staðið sig vel með yngrí flokka sína í vetur. Þórsarar héldu „sigurhátíð" fyrir yngri flokkana á dögunum og afhentu þá viðurkenningar til allra flokkanna og einnig til markakónga. Annars urðu úrslit- in í yngri flokkum Akureyrar- mótsins í handknattleik þessi: 6. flokkur a: Þór-KA: 8:7 og 5:5; 6. flokkurb: Þór-KA:14:5 og 3:9; 6. flokkur c: Þór-KA: 3:8 og 3:7. í síðasttalda leiknum mætti KA með b-lið og tapaði þar með titlinum. 5. flokkur a: Þór-KA: 12:2 og 15:3; 5. flokkur b: Þór-KA: 11:3 og 4:6; 5. flokkur c: Þór-KA: 12:3 og 4:6; 4. flokkur a: Þór- KA: 10:8 og 13:11; 4. flokkur b: Þór-KA: 9:5 og 12:7; 3. flokkur a: Þór-KA: 15:11 og 12:8. Markakóngar Þórs í vetur urðu: Guðmundur Benediktsson í 6. fl. a, Arnar Sigurðsson í 6-b, Jóhann Bessason í 6-c, Rúnar Sigtryggsson í 5-a, Haukur Ragn- arsson í 5-b, Guðlau^ur Hall- dórsson í 5-c, Árni Þ. Árnason í 4-a, Þórir Áskelsson í 4-b, Sig- urpáll Á. Aðalsteinsson í 3. flokki, Steinunn Geirsdóttir í 3. fl. kvenna, Inga Huld Pálsdóttir í m.fl. kvenna og Sigurður Páls- son í m.fl. karla. Lands- leikur í Höll- inni Nú hefur verið ákveðið að landsleikur í körfubolta á milli Islands og Luxemborgar fari fram í íþróttahöllinni á Akur- eyri og verður leikurinn sunnu- daginn 28. aprfl. Þetta verður fyrsti landsleikur- inn í körfuknattleik sem fram fer á Akureyri og ættu áhorfendur að sjá nokkuð jafna viðureign, því þessar þjóðir hafa jafnan spil- að hörkuleiki og gengið á ýmsu. Við munum segja nánar frá leiknum síðar. Akureyrarmót í stórsvigi: Ingólfur og Guðrún J. unnu Þórsarar urðu sigursælir á Ak- ureyrarmótinu í stórsvigi sem haldið var í Hlíðarfjalli um helgina, en keppt var í karla-, kvenna- og unglingaflokkum. Ingólfur Gíslason Þór sigraði í karlaflokki á 106,60 sek., annar varð Björn Víkingsson Þór á 107,04 sek. og þriðji Þór Ómar Jónsson Þór á 110,04 sek. í kvennaflokki sigraði Guðrún J. Magnúsdóttir Þór sem sama og ekkert hefur æft í vetur vegna meiðsla. Hún var á 114,60 sek. Önnur varð Signe Viðarsdóttir KA á 116,37 sek. og þriðja Hermína Gunnþórsdóttir KA á 122,8 sek. Þess má geta að Guðrún H. Kristjánsdóttir og Tinna Traustadóttir eru erlendis og kepptu ekki. í flokki pilta 15-16 ára sigraði Brynjar Bragason KA á 107,82 sek. Björn B. Gíslason KA varð annar á 108,28 sek. og Valdimar Valdimarsson KA þriðji á 108,37 sek. í flokki stúlkna 15-16 ára sigraði Gréta Björnsdóttir Þór á 114,40 sek., önnur varð Kristín Jóhannsdóttir Þór á 115,91 sek. og þriðja Helga Sigurjónsdóttir Þór á 1Í7.72 sek. Heimsmet í Úlafsfirði Unglingar í Ólafsfirði settu heimsmet um helgina, en þá spörkuðu þeir bolta á undan sér á flugveliinum í 42 kiukku- stundir. Hver unglingur sá um boltann í hálftíma í senn og voru þeir að frá því á föstudag og fram að há- degi á sunnudag, og létu vont veður ekkert á sig fá. Tilgangur- inn með þessu var að safna fé sem nota á til knattspyrnuferða- laga í sumar. Þór: KA í kvöld Síðari leikur Þórs og KA í m.fl. karla í Akureyrarmótinu í handknattleik verður háður í íþróttahöllinni í kvöld og hefst kl. 20. í fyrri leik liðanna sigraði KA með eins marks mun eftir mjög jafna viðureign og ef að líkum lætur verður ekkert gefið eftir í kvöld. Heyrst hefur að Helgi Ragnarsson þjálfari KA sem hef- ur æft í laumi í allan vetur ætli að leika með KA og Guðjón Magn- ússon þjálfari Þórs mun víst hafa á prjónunum einhver leynivopn sem hann leiðir inn á gólfið í kvöld.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.