Dagur - 08.05.1985, Qupperneq 6
6 - DAGUR - 8. maí 1985
Nýjar vélar á Svalbarðseyri:
„Þetta er algjör bylting"
- segir Sævar Hallgrímsson framleiðslustjóri hjá Kaupfélagi Svalbarðseyrar en framleiðslan
á „Fransman“ eykst um 12 tonn á viku
Ný vélasamstæða sem gjör-
byltir framleiðslu Kaupfélags
Svalbarðseyrar á Fransman
kartöflunum var sett upp í síð-
ustu viku. Nýju vélarnar eru
frá danska fyrirtækinu „San-
alco“ eins og fyrri vélarnar á
Svatbarðseyri en þetta fyrir-
tæki er stór aðili í framleiðslu
á þessum vélasamstæðum.
„Þetta er algjör bylting og það
má reyndar segja að þetta stökk
sem við tökum núna sé jafn stórt
og þegar fyrirtækið hóf fram-
leiðslu á Fransman kartöflunum
fyrir um fjórum árum,“ sagði
Sævar Hallgrímsson framleiðslu-
stjóri hjá Kaupfélagi Svalbarðs-
eyrar er við ræddum við hann.
„Þetta eru tæki til þess að gufu-
flysja kartöflur, og með tilkomu
þeirra getum við nýtt þær tegundir
sem til þessa hafa ekki verið not-
aðar í franskar kartöflur eins og
guilauga, rauðar og Helgu, en
vegna þess hversu djúp „augu“
eru í þeim hefur ekki reynst unnt
með okkar tækjum að flysja þess-
ar kartöflur nema stór hluti kart-
öflunnar hafi farið til spillis. Nú
getum við unnið þessar kartöflur
því gufuflysjunin er þannig að
aðeins hýðið fer af og það er hægt
að flysja inn í þessi „augu“.
Mér telst til að með þessum
nýju vélum bætum við nýtinguna
um 6% og ennþá meira þegar
kartöflur eru nýjar. Við munum
einnig stórauka framleiðsluna á
vacumsoðnum kartöflum en við
seljum mikið af þeim til veitinga-
húsa, mér sýnist að sú framleiðsla
muni aukast um helming. Síðast
en ekki síst bætum við einu tæki
við sem gerir okkur kleift að nýta
allan úrgang. Þetta er sigti sem
tekur vatnið sér og úrganginn
sér. Onnur vél skilar úrgangi sem
er hálfgerð kartöflumús eftir suð-
una og þessu dælum við út úr
húsinu. Það er búið að semja við
Sveinberg Laxdal bónda um að
hann taki þennan úrgang sem
svínafóður. Áður keyrðum við
þennan úrgang í sjóinn og því
fylgdu óþrif sem gott er að losna
við.“
- Hvernig hefur salan gengið
hjá ykkur að undanförnu?
„Hún hefur verið mjög góð og
aukist mikið eftir að innflutning-
urinn minnkaði. Samkeppnin er
aðallega við þá í Þykkvabænum
og við höfum enga ástæðu til þess
að kvarta."
- Nú er að sögn til óvenju
mikið af kartöflum eftir hina
miklu uppskeru á síðasta ári.
Hvernig gengur að nýta það hrá-
efni?
„Það er geysimikið til en ég hef
trú á að við getum bjargað þessu
að mestum hluta. Með hinum
nýju vélum hjá okkur getum við
aukið framleiðsluna um 12 tonn
á viku. Nú framleiðum við um 6
tonn á dag þannig að hér er um
geysilega aukningu að ræða.“
- Hvað starfa margir við þessa
framleiðslu?
„Hér vinna 10 manns á tveimur
vöktum og við framleiðum í 16
tíma á sólarhring. Það er ekkert
erfitt að fá fólk, húsmæður hér
hafa verið fúsar að vmna á kvöld-
vaktinni.“
- Hvað er að frétta af annarri
framleiðslu hjá ykkur eins og t.d.
varðandi kjötið?
„Kjötvinnslan hjá okkur
gengur ljómandi vel en við erum
ekki með neinar nýjungar í sjáifu
sér um þessar mundir. Við selj-
um mikið bæði austur og vestur
fyrir okkur, þá er Hagkaup á Ak-
ureyri stór viðskiptavinur og svo
seljum við talsvert suður líka.
Við erum ekki í mikilli sam-
keppni t.d. við Kaupfélag Eyfirð-
inga því að við erum með ólíka
vöru og má segja að það sé mjög
gott þar á milli og við höfum átt
góða samvinnu." gk-.
Sævar Hallgrímsson við hluta nýju vélasamstæðunnar.
Aðalfundur Einingar:
Félögum fækkaði um
- Atvinnuleysisbætur námu hátt í 20 milljónir króna
Aðalfundur Verkalýðsfélags-
ins Einingar var haldinn í Húsi
aldraðra á Akureyri sunnudag-
inn 21. aprfl. Á fundinum flutti
formaður skýrslu stjórnar um
starfið á liðnu ári, og kom þar
fram, að það hefur að mestu
verið með hefðbundnum
hætti.
Mjög mikil vinna fór í gerð
nýrra kjarasamninga, útgáfu
þeirra og daglegt eftirlit. Auk
aðalkjarasamnings, sem að
mestu hefur verið gerður í sam-
floti með öðrum félögum innan
Verkamannasambands íslands
og ASÍ hin síðustu árin, hefur
félagið fjölda sérsamninga við
einstök fyrirtæki og stofnanir og
vegna einstakra starfshópa. Auk
þess er mikið starf bundið af-
greiðslu atvinnuleysisbóta og
annarri félagslegri þjónustu. At-
vinnuleysi var því miður talsvert
á árinu og námu greiddar bætur
til Einingarfélaga hátt í 20 millj-
ónum króna. Dagpeningar og
styrkir frá sjúkrasjóði félagsins
voru 3,1 milljón.
Auk hins hefðbundna og dag-
lega starfs hefur síðustu tvö árin
mikil vinna verið bundin fram-
kvæmdum við byggingu hins nýja
verkalýðshúss við Skipagötu 14
á Akureyri, þar sem öll verka-
lýðsfélög bæjarins koma til með
að hafa starfsemi sína undir einu
þaki. Um síðustu áramót hafði
Eining alls lagt til byggingar húss-
ins fimmtán og hálfa milljón
króna. Framkvæmdum er nú það
langt komið, að nokkur félög
hafa þegar flutt í nýja húsið og
Eining mun að líkindum geta
flutt þar inn um næstu mánaða-
mót.
Aðalfélagar í Verkalýðsfélag-
inu Einingu eru nú 3200 og hefur
fækkað um liðlega 100 frá aðal-
fundi í fyrra. Þá eru aukafélagar
646 og hefur þeim fækkað um
meira en 200. Almennir félags-
fundir voru 3 á árinu, stjórnar-
fundir 13 og trúnaðarráðsfundir
7, auk þess fjölmargir fundir með
einstökum starfshópum. 5 félagar
sóttu á árinu námskeið í Félags-
málaskóla ASÍ, 21 sótti námskeið
fyrir trúnaðarmenn á vinnustöð-
um og 11 sóttu sérstakt félags-
málanámskeið, sem féiagið
gekkst fyrir að Illugastöðum.
Mjög góð nýting var á orlofshús-
um félagsins og tvær ferðir voru
farnar á vegum ferðanefndar,
önnur um hálendið en hin vestur
á Snæfellsnes. Þá var að venju
farin eins dags ferð með aldraða
félagsmenn.
Ýmsar starfsnefndir og stjórnir
sjóða voru kjörnar á aðalfundin-
um. Þá var ennfremur lýst kjöri
stjórnar og trúnaðarmannaráðs,
sem fram fór fyrr í vetur. Aðeins
einn listi barst, þegar auglýst var
eftir framboðslistum, og varð
hann því sjálfkjörinn. Aðalstjórn
félagsins er nú þannig skipuð:
Formaður Jón Helgason, Akur-
eyri. Varaformaður Sævar Frí-
mannsson, Akureyri. Ritari Úlf-
hildur Rögnvaldsdóttir, Akur-
eyri. Gjaldkeri Aðalheiður Þor-
leifsdóttir, Akureyri. Meðstjórn-
endur Björn Snæbjörnsson, Ak-
ureyri, Guðrún Skarphéðinsdótt-
ir, Akureyri og Matthildur Sig-
urjónsdóttir, Hrísey. í trúnaðar-
mannaráði sitja 35 manns, að
stjórnarmönnum meðtöldum.
Á aðalfundinum gaf formaður
lauslegt yfirlit um rekstur Lífeyr-
issjóðsins Sameiningar, en sjóð-
félagar eru nær eingöngu Eining-
arfélagar eða aðrir, sem um
lengri eða skemmri tíma hafa
unnið á starfssviði félagsins. Ið-
gjaldatekjur sjóðsins námu á
liðnu ári 33,3 milljónum króna og
tekjur af vöxtum og verðbótum
liðlega 24 milljónum. Á árinu
fékk alls 501 einhverjár lífeyris-
greiðslur frá sjóðnum, samtals
16,5 milljónir króna. Þá fengu
242 sjóðfélagar lán á árinu, sam-
tals að upphæð kr. 31,7 milljón.