Dagur - 08.05.1985, Page 7

Dagur - 08.05.1985, Page 7
8. maí 1985 - DAGUR - 7 Eyfirskar konur: Gróðursetja tré jafn mörg íslenskum konum Þann 27. aprfl var haldinn fertugasti aðalfundur Sam- bands eyfirskra kvenna. í upphafi fundar bauð Kristrún Sigurðardóttir formaður kvenfélagsins Hvatar á Ár- skógsströnd sambandskonur velkomnar en Hvöt á Ár- skógsströnd sá um allt fund- arhald. Að því loknu var helgistund sem sr. Helgi Hróbjartsson sóknarprestur í Hrísey annaðist. Að helgistund lokinni setti formaður sambandsins, Ragn- heiður Sigvaldadóttir, fund og gengið var til dagskrár. Gestir fundarins voru Sólveig Alda Pétursdóttir ritari Kvenfélaga- sambands íslands, Ingibjörg Auðunsdóttir kennari, Birgitta Níelsdóttir nemandi frá Dalvík og Sigríður Hafstað húsfreyja að Tjörn í Svarfaðardal. Sólveig Alda fjallaði um starfsemi kvenfélagasambandsins og ræddi jafnhliða um orlof nor- rænna kvenna. Ingibjörg Auð- unsdóttir sagði frá fyrirhugaðri trjáplöntun hjá konum hér á Eyjafjarðarsvæðinu í tilefni af lokum kvennaáratugarins. Á fjölmiðlaráðstefnu K.í. á síð- astliðnu hausti kom fram ákveðinn vilji að minnast þess að 70 ár eru liðin frá því að kon- ur hér á landi öðluðust kosn- ingarétt og kjörgengi. Til þess að minnast þess hefur verið afráðið að gróðursetja tré jafn mörg íslenskum konum 1984. Gróðursetning á að fara fram á tímabilinu 8.-24. júní, þó með sérstakri áherslu á að gróðursett verði 19. júní, kvenréttindadag- inn. Sigríður Hafstað sem sótti fjölmiðlaráðstefnuna fyrir hönd S.E.K. gerði einnig grein fyrir þessum málum og öðru er fram kom á fjölmiðlaráðstefnunni. Birgitta Níelsdóttir flutti ávarp í tilefni árs æskunnar. Birgitta er 15 ára nemandi frá Dalvík og gerði hún efninu góð skil. Samband eyfirskra kvenna var stofnað í Glerárþorpi árið 1945 fyrir forgöngu Halldóru Bjarnadóttur. Innan vébanda þess eru 8 kvenfélög með 440 meðlimi. Félög þessi eru: Von á Siglufirði, Vaka á Dalvík, Til- raun í Svarfaðardal, Hvöt á Ár- skógsströnd, Kvenfélag Hrís- eyjar, Freyja í Arnarneshreppi, Kvenfélag Hörgdæla og Gleym- mér-ei í Glæsibæjarhreppi. Kvenfélagið Tilraun er elst þessara félaga og var stofnað 1915. Ekki er að efa að hug- sjónamaðurinn Guðjón Bald- vinsson frá Böggvisstöðum átti mikinn þátt í stofnun þess félags. Honum voru jafnrétt- ismál kvenna rík í huga á þeim árum og barðist með oddi og egg fyrir því að konur nytu fullra réttinda til jafns við karlmenn. Fyrstu stjórn S.E.K. skipuðu þær Þóra Stefánsdóttir Hjalt- eyri formaður, Stefanía Jóns- dóttir Daivík féhirðir og Jón- heiður Eggerts Glerárþorpi rit- ari. Á þessum 40 árum sem liðin eru frá stofnun Sambands ey- firskra kvenna hefur það lagt ýmsum góðum málum lið og safnað fé til líknarmála. Á aðal- fundi sínum nú samþykktu kvenfélagskonur áskorun til heilbrigðisráðherra að hann beiti sér fyrir því að tryggður verði rekstrargrundvöllur að hópskoðun með röntgenmynda- töku af brjóstum kvennavegna krabbameinsleitar. Samkvæmt læknaskýrslum liggur fyrir að árlega deyja 25 íslenskar konur af völdum brjóstkrabbameins. Núverandi stjórn sambands- ins er þannig skipuð: Formað- ur: Ragnheiður Sigvaldadóttir Dalvík, ritari: Ragnhildur Sig- fúsdóttir Einarsstöðum, gjald- keri: Edda Jensen Hauganesi. Samvinnu- dagur á Blönduósi vetur er til 10. júní. Nemendur Samvinnuskólans voru alls 113 í vetur og luku 40 samvinnuskólaprófi. í hópi nem- endanna voru 34 í framhaldsdeild sem starfar í Reykjavík, og af þeim hópi gangast 18 undir stúd- entspróf nú í vor. 8009 manns hafa tekið þátt í starfsfræðslunámskeiðum Sam- vinnuskólans frá því að þeim var hrundið af stað 1977, en úr þess- um hópi hafa 267 sótt námskeið skólans á liðnum vetri. Nú í vor verða um 35 námskeið á jafn- mörgum stöðum í landinu auk Bifrastar. Framhaldsdeild Samvinnuskól- ans verður slitið í Reykjavík laugardaginn 11. maí næstkom- andi. Hæsta einkunn á samvinnu- skólaprófi hlaut þessu sinni Sig- ríður Helga Sveinsdóttir úr Borg- arnesi, 9,00. í skólaslitaræðu sinni minntist Jón Sigurðsson aldarafmælis Jón- asar Jónssonar, fyrsta skólastjóra Samvinnuskólans, og sagði með- al annars: „Lífið og blómi þess átti að vera hugsjón skólanna. Þaðan áttu frjálsir, glaðværir og andlega hraustir menn að ganga út í atvinnulífið og til þátttöku í menningarstarfsemi þjóðarinnar. Jónas fyrirleit þá hugsun að þjóð- in ætti að skiptast í andlegar stéttir, lærða menn og almúga. Hann vildi að skólarnir legðu grunninn að áhuga allra á sjálfs- námi, á sannri og lífvænlegri mennt og menningu sem af and- legu hungri og frjálsri og forvit- inni þekkingarleit leiðir. Þannig átti sönn hámenning og mikill lærdómur um leið að dafna sem þjóðleg alþýðumenning." „Sú nýjung frá liðnum vetri sem ef til vill verður nemend- um minnisstæðust er samþætt- ingarverkefnið sem efnt var til rúma viku í janúar síðastliðn- um. Þá var starfí skólans sprett upp og þar með bekkjaskipt- ingu og stundatöflu, en náms- greinar samþættar. 16 fímm manna nemendahópar störf- uðu að því verkefni hver um sig að stofna nýtt fyrirtæki sem hópurinn hafði áður valið sér sjálfur. Það gekk mikið á og störfín stóðu langt fram á nætur. Það er vissulega lær- dómsríkt að kynnast því af eig- in raun hvflík orka leysist úr læðingi þegar áhugi, kapp og eigið frumkvæði nemendanna fær að njóta sín eins og hérna varð. Samvinnuskólinn mun að sjálfsögðu reyna að Iæra af þessari reynslu og efna til slíkra samþættra verkefna framvegis. Aftur á móti eigum við, stjórnendur og starfsmenn skólans, enn eftir að fjalla bet- ur um reynsluna af samþætt- ingunni því að augljóst er að þarna náðist árangur sem ekki fæst með hefðbundnu skóla- starfí. Ég held því ekki fram að þar með eigi að víkja öðru skólastarfí til hliðar en ég full- yrði að af nýjungum af þessu tagi má mjög margt Iæra.“ Þetta kom meðal annars fram í yfirlitsræðu Jóns Sigurðssonar skólastjóra Samvinnuskólans á Bifröst við skólaslit 1. maí síðast- liðinn, en þá lauk 67. skólaári Samvinnuskólans og 30. ári hans á Bifröst í Norðurárdal. Um- sóknarfrestur um skólavist næsta éemm OallacLaga íslenska MAÍ1985 112 3 4 56| 7 |891011 12 15 14 15 16 17 18 19 20121122232^25 26 27|28|29 30 31 FÉLAG ÍSLENSKRA IÐNREKENDA Hallveigarstígl 101 Reykjavfk sími 91 27577

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.