Dagur


Dagur - 13.05.1985, Qupperneq 2

Dagur - 13.05.1985, Qupperneq 2
2 - DAGUR - 13. maí 1985 Við hvað ætlarðu að vinna í sumar? Ingólfur Jónsson: Ja, það er nú bara ekki ákveð- ið. Páll Gíslason: Ég hef enga vinnu. Kjartan Guðmundsson: Á Svalbarðseyri. Ég veit ekki við hvað. Hjördís Stefánsdóttir: Ég fæ vinnu á frystihúsinu. Unnið af Kristínu M. Jóhanns- dóttur og Olgeiri Þór Marinós- syni. Þeir litu inn á ritstjórn Dags fyrir stuttu, tveir menn um fertugt. Vilhjálmur Friðþjófs- son og Þórir Haraldsson. Þeir báru þess merki að lífið hafði ekki leikið við þá. Andlitin þreytulegri en fólk á að venjast hjá mönnum á þessum aldri. „Jú, svona getur brennivínið farið með mann,“ sagði Vil- hjálmur. „Ég var búinn að drekka árum saman, og réði ekk- ert við þetta, var gjörsamlega kominn í ræsið. Þetta var orðinn einn allsherjar brennivínsvíta- hringur. Það var engin undan- komuleið, bara að útvega sér eitthvað að drekka. Samt var vilji til að reyna að hætta, en Bakkus var alltaf sterkari.“ - Hvernig er hægt að halda sér gangandi fjárhagslega með svona mikilli drykkju? „Það er hægt með ýmsu móti. T.d. var ég í vinnu stund og stund, allt upp í nokkra mánuði. Síðan var dottið rækilega í’ða. Þá var að fara að slá, reyna að fá lán hjá Pétri og Páli, það gekk oft ótrúlega vel.“ - Þú segir að þú hafir haft vilja og löngun til að hætta drykkj- unni. „Já, viljinn var fyrir hendi, en getan til að hætta var aftur á móti ekki til. Ég var búinn að reyna allar mögulegar leiðir. Búinn að fara á allar meðferðarstofnanir sem til voru, en þær gögnuðu mér ekki.“ - Nú ertu „edrú“? „Já, ég hafði ekki reynt Hlað- gerðarkot, sem Samhjálp rekur. Þar komst ég inn fyrir um það bil tveimur árum. Það má segja að það hafi gjörbreytt lífi mínu.“ - Á hvern hátt? „Ég fékk trú á sjálfan mig að nýju, því það má segja að sjálfs- virðing hverfi fullkomlega þegar maður er kominn þetta langt í óreglunni. Þarna kynntist ég líka trúnni á Jesúm Krist. Það má segja með sanni, að trúin á Krist sé lyk- illinn að lækningunni við þessari drykkjusýki, að minnsta kosti hvað mig varðar. En ég vil taka það skýrt fram að ég er alls ekki að lasta aðrar meðferðarstofnan- ir, síður en svo. Það er vitað mál að þær vinna stórkostlegt starf, og hjálpa mörgum, en það dugði þeirra sem eru í svipaðri stöðu og þeir voru sjálfir.“ - Hvernig gengur svo salan? „Hún gengur mjög vel,“ segir Vilhjálmur. „Bókin sem við erum að selja núna heitir Reyndu aftur maður og segir einmitt frá ungum manni sem lendir í glæp- um í New York, er grunaður um morð, lendir í fangelsi, en slepp- ur og snýst á sveif með mönnum Guðs, virkilega góð bók,“ segir hann. - Hvernig er svo að vera laus úr þjónustu Bakkusar? „Það er alveg yndislegt," segir Vilhjálmur. „Allt annað líf, nú fer maður fyrst að átta sig á því hvað það er að lifa góðu lífi,“ segir Þórir. Við sendum þessum lífsreyndu mönnum bestu kveðjur og þökkum þeim fyrir spjallið. gej Vilhjálmur Friðþjófsson og Þórir Haraldsson. bara ekki fyrir mig. Það var sem sagt Hlaðgerðarkot, og það sem þar er gert sem breytti mínu lífi í þá átt, að mér þykir aftur þess virði að lifa því. An þess væri ég eflaust enn í drykkju og ólifnaði í Austurstrætinu.“ - En nú ert þú Akureyringur, hvers vegna ekki í drykkju og ólifnaði í Hafnarstræti á Akur- eyri? „Það er líklega vegna þess að hér er ekkert skýli, eða afdrep fyrir slíka útigangsmenn, og þess vegna fær Reykjavík þann vafa- sama heiður að hafa þessa menn á sínu svæði. Svo er líka um stærri markað að ræða í Reykja- vík, ef svo má segja.“ - Þórir, hvernig er þín saga? „Hún er nú ósköp svipuð sög- unni hans Vilhjálms. Ég byrjaði að drekka fyrir um það bil 20 árum. Drykkjan hefur truflað mitt líf í 17 ár. Stefnan hefur ver- ið niður á við í þann tíma, og síð- ustu 5 árin var hún beint niður. Þessi 5 síðustu ár breyttu mér úr venjulegum borgara í betlandi róna. En síðustu 2 ár hef ég verið edrú og það á ég eingöngu að þakka því að ég komst í kynni við starfið að Hlaðgerðarkoti, og trúnni á Jesúm Krist.“ - Hvað eru svo tveir fyrrver- andi drykkjumenn að gera á Ak- ureyri? „Við erum að selja hér bók á vegum Samhjálpar. Þannig er að Samhjálp hefur gefið út sögur sem tengjast lífi manna sem hafa farið illa út úr samskiptum við þjóðfélagið, orðið undir eins og sagt er, lent í glæpum og eitur- lyfjum, en hafa snúið baki við fyrrverandi líferni og snúist til trúar á Krist og hafið störf í þágu Akið hægar Lesandi blaðsins hafði samband við okkur og vildi koma á fram- færi við ökumenn í þessum bæ að fara örlítið hægar á leið sinni um syðsta hluta Hörgárbrautar. „Það er eins og menn séu í eilífum kappakstri á þessari leið,“ sagði hann. Aðspurður sagðist hann geta ímyndað sér að það væri hlaupið vor í ökumenn. Það þarf varla að benda öku- mönnum á að þarna er mikil um- ferð gangandi fólks, og merkt gangbraut, sem þarf að taka tillit til. Góðir ökumenn, sýnið nú að- gæslu og léttið á bensínfætinum. Kaflinn sem lesandi okkar hef- ur í huga, er frá brúnni að Höfða- hlíð.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.