Dagur - 21.06.1985, Blaðsíða 3

Dagur - 21.06.1985, Blaðsíða 3
21. júní 1985 - DAGUR - 3 Stofnskrárfundur málfreyju- deildanna Mjallar og Rúnar var haldinn 20. apríl sl. í Lóni við Hrísalund. Fundinn sóttu málfreyjur víðs vegar af landinu. Hátíðin hófst með boði bæjarstjórnar Akureyr- ar síðdegis, en hátíðarfund- urinn hófst síðan kl. 19.00. Fundinn sátu um 100 manns. Aðalræðu kvöldsins flutti séra Birgir Snæbjörnsson sóknarprestur, Deild verður fullgildur að- ili að alþjóðasamtökum mál- freyja, I.T.C., við afhend- ingu stofnskrár. Halldóra Arnórsdóttir afhenti mál- freyjudeildinni Mjöll alþjóð- legu stofnskrána, en Sigrún Sigurðardóttir afhenti stofnskrána málfreyjudeild- inni Rún. Þessar konur eru báðar í málfreyjudeildinni Kvisti, Reykjavík, og hafa þær verið Akureyrardeildun- um leiðarljós frá upphafi. Samtökin voru upphaflega stofnuð vestur í Ameríku af konu sem hét Ernestine White. Markmið hennar var að hjálpa konum svo að þær mættu öðlast þroska, siðfágun og virðingu, styrkja persónu- leika sinn, bæta hæfileikann til eðlilegra samskipta og tjá sig á réttan hátt til þess að vera í forystu á heimili, í sveitarfélagi og í þjóðfélag- inu. Akureyrardeildirnar Mjöll og Rún voru stofnaðar 26. febrúar 1984, og voru stofn- félagar í hvorri deild 30. í dag starfa 22 konur í mál- freyjudeildinni Mjöll undir forsæti Sonju Sveinsdóttur og 29 konur í málfreyjudeild- inni Rún, en forseti þeirrar deildar er Hulda Eggerts- dóttir. Málfreyjur Helgi Bergs, bæjarstjóri, tekur á móti Aðalheiði Alfreðsdóttur, málfreyju, en bæjarstjóri hélt málfreyjunum hóf í tilefni stofnskrárfundarins. Málfreyjur á málfundi. Dórothea Bergs heilsar upp á Heiðrúnu Steingrímsdóttur. Stelpur -núeríag Pað er margt sérkennilegt sem rekur á fjörur okkar á Degi. Par á meðal er eftirfarandi bréf þar sem karlmaður í Bandaríkjun- um er að auglýsa eftir konu á íslandi. Maðurinn á ekki í erfið- leikum með að telja upp eigin kosti í 10 liðum og samhliða setur hann upp þá eiginleika sem vœntanleg eiginkona þarfað hafa til að bera. En hér er bréfið í lauslegri þýðingu: Ég er myndarlegur bandarískur karlmaður. Ég rek eigið fyrir- tæki. Ég stjórna því sjálfur með aðstoð annarra, til að fyigjast með að öllum kröfum sé fullnægt. Ég hef mikinn áhuga á að kynnast íslenskri konu og ef (seinna) okkur líkar vel hvoru við annað, vil ég gjarnan giftast henni. Bandarískar konur eru fal- legar og hafa fágaða framkomu, en þær eru kuldalegar og ekki nógu tilfinningaríkar. Fannig vii ég að konur séu við menn sína. Listinn hér fyrir neðan hefur að geyma þá eiginleika sem ég hef og þá eiginleika sem ég sækist eftir hjá konu. íslensk kona: 1. Heiðarleiki 2. Fegurð 3. Tilfinninganæmi 4. Tryggð 5. Gáfur 6. Metnaður 7. Kvenleiki 8. Aldur 22-32 ára 9. Einhleyp 10. Barnlaus (kannski 1) Bandarískur karlmaður: 1. Heiðarleiki 2. Myndarlegur 3. Gáfaður 4. Tilfinninganæmur 5. Metnaður 6. Fjárhagslega sjálfstæður 7. Tryggur 8. Einhleypur 9. Aldur 35 ára 10. Hefur gaman af börnum Fær sem hafa áhuga vinsamlega sendið bréf og nýlega mynd (ekki eldri en 30 daga gamla) til: P.O. box 93396 Cleveland, Ohio, USA 44101 Ég mun senda sömu skilyrðin. upplýsingar til baka, til þeirra sem uppfylla Með kveðju. Öflugt leiklistarstarf á Norðurlmidi Aðalfundur Leikfélagasambands Norðurlands var haldinn á Hótel Húsavík laugardaginn 25. maí sl. Voru þar mœttir 30 fulltrúar frá 8 leikfélögum. Fundarstjóri var kos- inn Theodór Júlíusson frá Leikfé- lagi Akureyrar. Sambandið var stofnað á Akureyri um hvítasunnuna 1983 og hefur það haldið fundi haust og vor síðan. Aðalmarkmið sambandsins er að efla og viðhalda leiklistarstarfsemi á Norðurlandi m.a. með því að hafa sem öflugust innbyrðis tengsl milli aðildarfélaganna, sameiginleg nám- skeið, menningarhátíðir o.þ.h. í anda þessa markmiðs var á þessum fundi sýnt leikrit þar sem 5 leikarar frá 4 leikfélögum fóru með hlutverk. Leikararnir höfðu aldrei hist áður, en fengið send handrit með nokkrum fyrirvara. Leikritið var sýnt tvisvar sinnum. í fyrra skiptið án samæfing- ar, en í seinna skiptið eftir að hópur- inn hafði unnið verkið undir leiðsögn Þráins Karlssonar frá Leikfélagi Ak- ureyrar. Var mál manna að þessi til- raun hefði tekist mjög vel og eru uppi ýmsar hugmyndir um áframhaid á slíkri samvinnu. Kristján Hjartarson frá Leikfélagi Dalvíkur sem verið hafði formaður Sambands leikfélaga á Norðurlandi frá stofnun þess og Pétur Haraldsson frá Leikfélagi Ongulsstaðahrepps, sem verið hafði gjaldkeri, gáfu ekki kost á sér til endurkjörs. Núverandi stjórn Leikfélagasambands Norður- lands skipa: María Axfjörð, Leikfé- lagi Húsavíkur, formaður, Leifur Guðmundsson, Leikfélagi Önguls- staðahrepps, gjaldkeri og Vera Sig- urðardóttir, Kröflu, Hrísey, ritari. ÆTTARMOT Afkomendur Ágústu Sigurðardóttur og Gunn- laugs Jónssonar halda ættarmót að Freyjulundi í Arnarneshreppi dagana 13. og 14. júlí nk. Hafið með ykkur tjöld. Tilkynnið þátttöku fyrir 1. júlí í síma 96-25477 og 96-22651 Afkomendur. Vörubílstjorar - jeppaeigendur og aðrir bílaeigendur. Höfum tekiö í notkun mjög fullkomna vél sem jafnvægisstillir (ballanserar) allar stærðir hjólbarða. Felgustærð 10-26 tommur. Komið og reynið viðskiptin Hjólbarðaþjónustan Hvannavöllum 14b, Akureyri • Sími 22840 Rokk-A-Bl Lakkskór í stfl fimmta áratugarins Töff herra-lakkskór frá Svartir og rauðir. SÍMI (96) 21400

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.