Dagur - 31.07.1985, Síða 1
GULLSMIÐIR
l SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREVRI
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
Litmynda-
framköllun
68. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 31. júlí 1985
83. tölublað
Landsmót íslands í golfi hófst á Jaðarsvelli í morgun. Það voru þeir Jón Sólnes og Jón Guðmundsson, heiðursþátt-
takendur, sem slógu fyrstu höggin. Hér er það Jón Sólnes sem reiðir til fyrsta höggsins. Mynd: KGA
Undirskriftalistar í
„Við erum fyrst og fremst að
mótmæla þeim umhverfis-
breytingum sem verða á gamla
Innbænum, ef þetta deiliskipu-
lag verður samþykkt og fram-
kvæmdir hafnar samkvæmt
því,“ sagði Sigríður Ólafsdóttir
í samtali við Dag. Sigríður
stendur ásamt fleiri Innbæing-
um fyrir undirskríftasöfnun,
þar sem mótmælt er ýmsum at-
riðum í nýgerðu deiliskipulagi
af Innbænum.
„Við fréttum af öðrum lista,
sem var í gangi, en þar var mót-
mælt fyrirhugaðri íbúðabyggð
austan Aðalstrætis og Hafnar-
strætis," sagði Sigríður. „Við leit-
uðum eftir því að fá að skrifa á
þann lista, en þá var búið að skila
honum inn, auk þess sem við
vildum hafa mótmælin víðtækari.
Það er ljóst, að þetta deili-
skipulag hefur í för með sér mikl-
ar umhverfisbreytingar á Inn-
bænum, sem ég sé ekki ástæðu til
að sætta sig við þegjandi. Þess
vegna fórum við af stað með
þessa undirskriftasöfnun. Undir-
tektir hafa verið góðar, en við
ætluðum okkur allt of stuttan
tíma í þetta. Það hefur líka kom-
ið okkur á óvart, að ótrúlega
Nokkur innbrot og bílstuldir upplýst:
Þjófamir sofnuðu
í Akraborginni
- Voru vaktir af lögreglunni eftir nokkrar
ferðir yfir sundið
Þeir sváfu heldur betur á verð-
inum, bflþjófarnir sem rann-
sóknarlögreglan á Akureyri
Iýsti eftir í Degi á föstudaginn
í síðustu viku.
Þjófarnir sem reyndust vera
tveir, 14 og 16 ára gamlir, höfðu
stolið einum bíl á Akureyri og
ekið á honum út á Þelamörk þar
sem þeir stálu öðrum bíl sem þeir
notuðu til að aka suður á Akra-
nes. Þeir tóku sér svo far með
Akraborginni til Reykjavíkur en
sofnuðu um borð og gleymdu að
fara í land í Reykjavík. Þegar
bíllinn fannst á hafnarbakkanum
og piltarnir sofandi um borð fór
menn að gruna að þarna væru
bílþjófarnir komnir.
Þeir reyndust hafa fleira á sam-
viskunni því í ljós kom að þeir
höfðu líka stolið bíl til að komast
norður en sá hafði reyndar ekki
dugað þeim nema upp í Hval-
fjörð og tóku þeir sér þá bara far
með rútu það sem eftir var leiðar-
innar. Áður en þeir lögðu af stað
suður höfðu þeir brotist inn í
þrjú fyrirtæki á Akureyri og haft
á brott með sér úr einu þeirra um
Margir Innbæingar óhressir með deiliskipulagið:
gangi
margir hafa alls ekki kynnt sér
skipulagið," sagði Sigríður Ólafs-
dóttir.
Skipulagsnefnd Akureyrar
stóð fyrir sýningu á umræddu
deiliskipulagi í Dynheimum og
að henni lokinni var haldinn al-
mennur borgarafundur um
málið. Að sögn Finns Birgisson-
ar, skipulagsstjóra, var hvort
tveggja fremur illa sótt. Frestur
til að senda inn kærur vegna
skipulagsins rennur út í dag og í
gær hafði aðeins ein kæra borist.
Finnur gat þess, að skipulagið
hefði fengið mjög góða kynningu
í bæjarblöðunum, þannig að
bæjarbúar hafi talið sig vita hvað
þarna var á ferðinni og sætt sig
við það. Þess vegna hafi þeir ekki
sótt sýninguna og fundinn. En
hvernig verða hugsanlegar kærur
afgreiddar?
„Að sjálfsögðu verður tekið
fullt tíllit til þeirra athugasemda,
sem okkur kunna að berast. Þær
verða ræddar í skipulagsnefnd og
bæjarstjórn og síðan munu þær
fylgja endanlegu deiliskipulagi til
Skipulagsstjórnar ríkisins, ásamt
greinargerð um hvernig þær hafi
verið afgreiddar," sagði Finnur
Birgisson.
Það kom fram í samtalinu við
Finn, að hugsanlega verði fyrstu
lóðirnar í Innbænum byggingar-
hæfar á næsta ári. - GS
50 þúsund krónur. Einnig upp-
lýstist að þeir höfðu áður brotist
inn á nokkrum stöðum í Reykja-
vík. -yk.
Nýja Alþýðuhúsið:
Leigjendur
fundnir að
veitingasal?
„Þaö bendir allt til þess aö við
tökum þetta á Ieigu,“ sagði
Fríðjón Árnason, einn að-
standenda Svartfugls sf. en að
undanförnu hafa staðið yfir
samningaumleitanir milli
Svartfugls og stjórnar Alþýðu-
hússins um útleigu á 4. og 5.
hæð Alþýðuhússins.
Svartfugl sf. er nýstofnað fyrir-
tæki með veitingarekstur sem
aðalmarkmið og eru aðstandend-
ur Svartfugls bræðurnir Friðjón
og Zophonías Árnasynir og
Gunnlaug Ottesen. Friðjón sagð-
ist búast við að ef af samningum
yrði myndu þau leigja salina á
báðum hæðum út til samkomu-
halds í vetur en síðar myndu þau
opna matsölustað á efstu hæð-
inni. -yk.
Laxveiði:
„Heldur
skáni en
í fyrra“
„Svona heilt yfir, held ég að
laxveiðin sé heldur skárri
nú en í fyrra,“ sagði Einar
Long hjá versluninni Eyfjörð
sem selur veiðileyfi í nokkrar
ár á Norðurlandi.
Að vísu hefur enginn lax veiðst
í«Eyjafjarðará og hann vissi bara
um einn lax sem veiðst hefði í
Hörgá í sumar en í báðum þess-
um ám er hins vegar mikið af sil-
ungi. Illa hefur gengið að fá sil-
unginn til að bíta á agn veiði-
manna og telja sumir að það sé
vegna kulda í ánum. í sumum ám
er laxveiði mun meiri en í fyrra
og hefur Dagur áður flutt fregnir
af mikilli veiði í Skjálfandafljóti.
Þó nokkuð hefur einnig veiðst í
Laxá í Aðaldal og austur í
Vopnafirði hefur veiðin verið
mun betri en í fyrra. Vestan úr
Húnavatnssýslu berast hinsvegar
fréttir af dræmri veiði, a.m.k. í
-yk.
sumum am.
Skipagata 13 - Drangshúsið:
Ekki rifið á næstunni
Það eru fleiri hús en gamla
„Eimskipafélagshúsið“ sem
eru í veginum fyrir Miðbæjar-
skipulagi Akureyrar og eiga að
víkja. Við Skipagötu 13 er hús
sem lengst af hýsti afgreiðslu
Drangs og var farið fram á það
við eigendur hússins fyrir fjór-
um árum að það yrði flutt
burtu.
nus.
Jón Steindórsson, einn eigenda
hússins var spurður af því hvenær
þeir hyggðust fjarlægja húsið.
„Það stendur ekki til á næst-
unni,“ sagði Jón.
Hann bætti því við að samn-
ingaviðræður milli eigenda húss-
ins og bæjarins væru að hefjast og
varla tímabært að segja nokkuð
um það hvað út úr þeim kæmi.
Jón kvaðst telja að eigendur
hússins ættu rétt á bótum fyrir
það ef það yrði fjarlægt en
Hreinn Pálsson bæjarlögmaður
segir að eigendurnir eigi ekki rétt
á neinum bótum þar sem húsið
hafi á sínum tíma verið byggt
skv. bráðabirgðastöðuleyfi sem
sé löngu útrunnið. -yk.