Dagur - 31.07.1985, Blaðsíða 8

Dagur - 31.07.1985, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 31. júlí 1985 Sumarútsalan hefst hjá Önnu Maríu, Sunnuhlío i dag miðvikudag 31. júlí. Alls konar garn, bómull, ull, móhair, lopi, silki og allt þar á milli. Útsaumsmyndir, dúkar og handklæði svo eitthvað sé nefnt. Komdu meðan úrvalið er sem mest. P“T Hannyrðaverslunin HfinnVRÐflVÖRUR (InnaAicvúw Sunnuhlíð sími 25752. HÖFUM OPNAÐ VERÐBRÉFAMARKAÐ Við höfum opnað verðbréfamarkað á Akureyri Önnumst kaup og sölu hvers konar verðbréfa. Skrifstofan er á Gránufélagsgötu 4 — JMJ-húsinu á 3. hæð — og verð- ur opin kl. 10-12 og 14-17 virka daga. Símar 23151 og 23484. VERÐBRÉFASALINN S.F. Reykjavíkur-maraþon fyrir alla landsmenn Reykjavíkur Maraþon fer fram í annað sinn sunnudaginn 25. ágúst nk. Maraþonið 1984 fékk mjög góðar undirtektir innan- lands og utan og hefur hlaupið fengið jákvæða umfjöllun í ýmsum erlendum tímaritum. Um þrjú hundruð hlauparar mættu til leiks í þetta fyrsta al- þjóðlega maraþonhlaup á Is- landi, þar af rúmlega 100 út- Iendingar. Reykjavíkur Maraþon er nú aðili að AIMS, alþjóðasam- tökum maraþonhlaupa. Með því fær hlaupið mikla kynningu urn allan heim. Kynningarrit þeirra er gefið út í 300.000 eintökum og auk þess er Reykjavíkur Mara- þon kynnt sérstaklega í samvinnu við Flugleiðir í sambandi við þau maraþonhlaup sem aðild eiga að AIMS. Reiknað er með að þátttöku- fjöldi í ár verði um 600, með nokkuð jafnri skiptingu milli ís- lendinga og útlendinga. Fyrir- spurnir um hlaupið aukast stöð- ugt og þátttökutilkynningar eru farnar að berast inn. Vitað er um þátttöku ýmissa góðra hlaupara og ber þar hæst Þýskalandsmeist- arann og sigurvegara í Frankfurt Maraþon í ár Herbert Steffny. Hann á best 2 klst. og 12 mínútur í maraþonhlaupi. Hlaupadrottn- ingin Lesley Watson sem sigraði í kvennaflokki í Reykjavíkur Maraþon í fyrra á ágætum tíma mætir aftur til leiks, en hún var mjög ánægð með dvölina hér og hlaupið. Þess má geta að íslands- met Sigurðar P. Sigmundssonar er 2.21,20 sett í London Mara- þon 1984. Það eru Flugleiðir hf., Ferða- skrifstofan Úrval hf., Reykjavík- urborg og Frjálsíþróttasamband Islands sem standa að undirbún- ingi og framkvæmd Reykjavíkur Maraþon. Kynningarbæklingi hefur verið dreift í Evrópu og í Bandaríkjunum og einnig hefur hlaupið verið auglýst í útbreidd- um tímaritum. Liður í því að auka þátttöku landans í hlaupum sem þessum er „Hlaup æskunnar“, en það fór fram laugardaginn 29. júní á sama tíma á þremur stöðum á landinu, Reykjavík, Sauðárkróki og Egilsstöðum. Sigurvegurum í hverjum aldursflokki verður boð- ið til þátttöku í Reykjavíkur Maraþoni, stystu vegalengd. Vinningshafar utan af landi ferð- ast til Reykjavíkur í boði Flug- leiða og sér Reykjavíkurborg þeim fyrir gistingu. Að Hlaupi æskunnar standa Rás II og Reykjavíkur Maraþon. Eins og síðasta ár verður boðið upp á keppni í þremur vega- lengdum. Maraþonhlaup 42 km, hálf-maraþon, 21 km og 7 km skemmtiskokk. Keppt verður í níu aldursflokkum karla og kvenna. Skráningarfrestur er til 20. ágúst og er tekið við þátt- tökutilkynningu hjá Ferðaskrif- stofunni Úrval og hjá Frjáls- íþróttasambandi íslands. Vakin er sérstök athygli á því að Reykjavíkur Maraþon er ekki aðeins fyrir góðu hlauparana, heldur fyrir alla, því hægt er að velja um þrjár vegalengdir, eftir getu hvers og eins. Þá eru fatlaðir jafnt í hjólastólum sem aðrir boðnir sérstaklega velkomnir til þátttöku. Frá kjörbúð KEA Byggðavegi 98 Við grillum úti ef veður leyfir föstudaginn 2. ágúst frá kl. 2-6 e.h. Komið og bragðið á úrvals grillréttum frá Kjötiðnaðarstöð KEA. ★ Einnig kynnir Sana Diet - Seven Up Kynningarafsláttur. Lítið inn á föstudaginn Kjðriiúð KEA Byggðavegi 98 máttu nú taka bílinn það var í góðu lagí En flD PIOIMŒER tækið og hátalarana fá þeir alls ekki ÖD PIONEER bíitæki og hátalarar í úrvali fyrir verslunarmannahelgina

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.